Leita í fréttum mbl.is

Pippa í keng eftir gamla sénsinn

furutre_1085279.jpgEftir myndinni af Pippu, eða Pípí eins og sum kalla hana, að dæma hefur hún borið heldur skarðan hlut eftir viðskipti sín við gamla viðhaldið sitt, hann Gorg Percý. Ekki er annað að sjá en vesalings telpan sé með gigt í mjaðmagrindinni og þar af leiðandi í keng. Trúlegar hefur Gorgur, ódámurinn sá arni, hoggið einum of oft í sama knérunninn Pippu þarna í Madrid.

Svo getur auðvitað hugsast að Pippa hafi verið í spreng þegar myndin var tekin og ekkert toilet nærsveitis utan gangstéttin.


mbl.is Pippa skrúfar upp kynþokkann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahah já henni er greinilega mál blessaðri en hver er eiginlega þessi Pippa?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.5.2011 kl. 17:55

2 Smámynd: Björn Jónsson

Ha ha ha ha, góður.

Hversu auðvelt væri líf okkar sem störfum á gólfinu, ef þetta væri okkar mestu áhyggjur.

Gott er þó að eiga einn hér á blogginu, eins og þig, sem lyftir andanum á flug.

Eigðu góðar stundir þarna á nesinu.

Gott er að sjá að straumar Snæfellsjökuls nýtast einhverjum.

Björn Jónsson, 20.5.2011 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband