Leita í fréttum mbl.is

Verkalýðsaðallinn þekkir öðrum betur sviknar og innihaldslausar umbúðir

asiAtvinnuverkalýðsrekandinn og baráttuhetjan Sigurður Bessason er manna kunnugastur um umbúðir án innihalds, en hann hefur í áraraðir slengt innihaldslausum kjarasamningum eins og útmignum og skitnum sængurfötum framan í láglaunafólkið sem borgar honum margföld verkamannalaun á mánuði.

Þeir eru kyndugir kallar þessir öreigahöfðingjar, hver öðrum undirgefnari auðvaldinu, svikulli og auðvirðilegri. Hver man ekki þegar þessir aumingjar skriðu eins og blauðir kleprahvolpar undir borð þegar alþýðan fór útá strætin til að berjast í Hruninu.  Og fyrir nú utan að hafa leikið sér að því að halda landssamtökum verkafólks til fjölda ára í flóabanalagsískum klofningi, auðvaldinu til dýrðar, þá hafa Sigurður Bessason og félagar kórónað ósvífni sína og dólgshátt með því að kjósa þessu svívirta landssambandi samansúrrað framsóknarfífl fyrir formann eftir að auðvaldssleikjan og klofningspaddan úr Keflavík hrökklaðist úr embættinu. Lægra komast Sigurður og félagar varla.

Það voru mikil mistök í búsáhaldabyltingunni, að senda ekki eins og eina herdeild í glimmerhallir ASÍ, Starfsgreinasambandsins, VR og Eflingar og hreinsa þar ærlega og svikalaust út.
mbl.is Jólapakki sem er bara umbúðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband