Leita í fréttum mbl.is

Kóngsnafnbót frá fasistafóli og pervertískt pissirí Kolbeins Kolbeinssonar

Pissað á SaddamÞað er við hæfi að amk. einn ráðherra núverandi ríkisstjórnar sé kunnugur því úrelta slekti sem kóngafólk er. Og ekki er síðra að prinslíngurinn og verðandi kóngur, kunningi ráðherrans erfir völd sín frá föður sínum sem aftur þáði kóngsnafbót sína af fasistafólinu Franco. Þetta er nú aldeilis eitthvað fyrir umræddan ráðherra að hreykja sig af, enda er fátt fyrir meðlimi ríkisstjórnarinnar að grobba sig af nema þá helst útspilum Framsóknarmaddömunnar í mosku- og múslímamálum.

Kolbeinn Kolbeinsson formaður skuggaráðuneytis Framsóknar hefur á undanförnum árum margsinnis grobbað sig í ölæði af því að hafa myndir af frægum múslimum í baðkarinu heima hjá sér til míga á. Að sögn Kolbeins hefur hann löngum haft dásamlega nautn af að spræna á ljósmynd af þeim arma þorpara og svikara Yusuf Islam, sem er betur þekktur undir nafninu Cat Stevens. Frú Ingveldur segir afturámóti, að árátta Kolbeins í að míga yfir skilirí af þekktum múhámeðstrúarmönnum sé af kynferðislegum toga og mundi gamli Freud hafa haft mikinn áhuga meðan hann lifði til sálgreina fyrirbrigðið og andlega veraldaraumíngjan Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann.
mbl.is Vinur Ragnheiðar verður kóngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband