Leita í fréttum mbl.is

Frelsunarguðfræði varalitaða ekkiráðherrans

exd-ghrein-tverks_926085711.gifRagnheiður Elín er mikið metfé í höfuðsóttargemlingarétt stjórnmálanna á Íslandi og á þar hiklaust heima í dilk með Hönnu Birnu, Sigmúndi Dávíð, Sigurði Inga, Gunnari og fleiri stórmennum af þeirra kalíberi. Fyrir fám dögum síðan, birtist frú Ragnheiður Elín á sjónvarpsskjánum svo yndislega varalituð og uppmeð sér og talaði tungum um einhvern fjárann sem hún kallaði Costco, sem væri að manni skildist nokkurskonar guðfræði tengd hjálpræði á borð við ,,samkeppni" og ,,aukið vöruúrval" sem hvort tveggja eru angar af sama geðsjúkdómi.

Þegar betur var að gáð, kom í ljós að þetta Costcó hennar Ragnheiðar Elínar er amrísk prángarabúlla sem höndlar með sprútt, dóp og hormónaþrungið ket af nautgripum og eflaust öðrum kykvendum. Þetta var nú öll frelsunarguðfræðin sem þessi últravaralitaði ekkiráðherra var að boða landslýð.

Ekki tekur að gráta yfir vesaldómi og hjákátlegum andlegum metnaði hinna óburðugu og fávísu ekkiráðherra sem sitja í boði Erkiíhaldsins og Framsóknarmaddömunnar, en því miður er ekki heldur hægt að hlægja eða skemmta sér yfir lágkúru og barnaskap þessara endema.
mbl.is Tal um undanþágur Costco á villigötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband