Leita í fréttum mbl.is

Samfylkingin á leið í Hornið?

Málefnalegur maður Árni Páll. Ég sé ekki betur, á þessum orðum sem eftir honum eru höfð, að hann telji að hlutverki Samfylkingarinnar sé best borgið með því að hún máli sig út í horn.
mbl.is „Samfylking fari einungis í stjórn á eigin forsendum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Er ekki allt í lagi að hfa skoðun og gera kröfur.    Það er einmitt svo leiðinlegt þegar pólítíkusar þora ekki að segja aldrei neitt afgerandi finnst mér. Hinir punktarnir í greininni eru líka málefnalegir og raunsæir. 

Þórdís Bára Hannesdóttir, 14.4.2007 kl. 22:02

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Skil samt ekki þessa áráttu Samfó til að vera með svona ómálefnalegar áherslur og málfluttning. Ég kannast ekki við þetta væl um vonsku heimsins sem kennt er við VG. Margur heldur mig sig ætti kannski frekar við í þessu tilfelli. En ég er samt aðallega leið yfir því að setja þurfi steina í götu samstarfs vinstri flokka á jafn tilganslausan máta og raun ber vitni. Af hverju ekki frekar að tala um hvernig fólk getur unnið saman í stað þess að vera alltaf að gera lítið úr mögulegum samstarfsaðilum.

Birgitta Jónsdóttir, 15.4.2007 kl. 06:57

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er bæði nauðsynlegt og eðlilegt að hafa skoðun og að gera kröfur. Hinsvegar held ég að fólk ætti samt að fara sparlega með þessháttar lystisemdir ef að gremja og reiði eru með í spilinu, eins og mér sýnist ráða för hjá Árna Páli þegar hann tjáir sig um VG.

Ég tek heilshugar undir með Birgittu, að liðsmenn VG og Samfylkingar ættu, umfram margt annað, að tala saman í vinsemd um hvernig þessir flokkar geti sem best starfað saman. Það vill nefnilega þannig til að hugsjónir og lífsviðhorf fjölmargra félaga og kjósenda VG og Samfylkingarinnar fara saman í öllum helstu meginatriðum. Hinsvegar hef ég orðið var við að ýmsir talsmenn þessara flokka gera sér að leik að nota hvert tækifæri til að ala á illindum og flokkaríg milli vinstriflokkana. Þessu háttalagi verður að linna. Með þessu er ég samt ekki að segja að fólk á vinstrikantinum eigi ekki að halda uppi lifandi gagnrýni á sína flokka og benda á hvað því finnst fara aflaga í starfi þeirra og stefnu. Öðru nær. Mér leiðist t.d. óskaplega horfa upp á það sem nærtækast væri að kalla trúfélagsmóral í stjórnmálaflokkum, þar sem öll gagnrýni á flokkinn og flokksforustuna er talin af hinu illa, einkum ef gagnrýnisraddirnar koma frá einstaklingum í eigin flokki, en þegar slíkt gerist stendur sjaldnast á hinum hreintrúuðu að grípa til bannfæringarstefnunar gegn þeim sem gagnrýnir, þó svo gagnrýnendurnir vilji sínum flokki ekki síður vel en hinir trúfélagssinnuðu.      

Jóhannes Ragnarsson, 15.4.2007 kl. 08:23

4 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

heyr heyr

Birgitta Jónsdóttir, 15.4.2007 kl. 10:57

5 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Auðvitað fer Samfylkingin í stjórnarsamstarf á sínum forsendum - en ekki hvað.

Við ætlum að fella ríkisstjórnina, það er engin spurning.

En auðvitað eiga sumir jafnaðarmenn erfitt með að tala sérstaklega vel um VG. Enda var til VG stofna að því að Steingrímur J tapaði fyrir konu í formannskjöri (konu sem ég studdi með ráðum og dáðum). Í okkar kjördæmi Jói, er oddivit VG, í VG vegna þess að hann tapaði fyrir KONU í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir 8 árum. Þessi kona, Anna Kristín Gunnarsdóttir, núverand Alþingismaður er að berjast fyrir tilveru sinni á Alþingi. Hún lenti í 3ja sætinu í prófkjöri, en hér sættum við okkur við niðurstöðuna og berjumst áfram.

Svo eru konur að flykkjast til VG. Það eitt skil ég ekki.

Við stofnuðum Samfylkinguna til að koma saman jafnaðarfólki. Búa til stóran flokk sem myndi nýta styrk okkar. Það er enn markmiði, þó kvennfrelsis hetjurnar Steingrímur J og Jón Bjarnason, séu á góðu skriði.

Eggert Hjelm Herbertsson, 15.4.2007 kl. 14:52

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Auðvitað eiga stjórnmálaflokkar að fara í ríkisstjórnarsamstarf á sínum eigin forsendum, þó að ég hafi grun um stundum sé aðallega farið í stjórnarsamstarf á forsendum þingflokks og flokkseigendafélags viðkomandi flokks og þar komi vilji almennara flokksfélaga hvergi nærri.

Ég er nokkuð viss um að til VG var ekki stofnað vegna taps Steingríms J. fyrir KONU, ástæðan var heldur betur djúpstæðari en það. Ég held að þar hafi t.d. vegið mun þynga á metunum að fólkið sem stofnaði VG taldi sig ekki eiga neina samleið með hægri arminum í Alþýðuflokknum, en þessi hægri armur réði lögum og lofum í þeim flokki áratugum saman. En hvort allt þetta brölt í fortíðinni réttlæti íllt umtal Samfylkingarfólks og VGara í garð hvers annars, er ég mjög efins um, ekki síst vegna þess að félagar í þessum flokkum eiga sér flestir þá ósk að flokkarnir þeirra myndi ríkisstjórn saman eftir kosningarnar í vor.  

Jón Bjarnason tapaði ekki bara fyrir konu í frægu prófkjöri Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi, hann lenti í fjórða eða fimmta sæti ef ég man rétt. Hann dagaði síðan uppi hjá VG í öruggu skjóli undir stélinu á Steingrími J. 

Varðandi það að konur séu að flykkjast til VG, verður að hafa í huga að það er mun meira af konum í fremstu víglínu VG en hjá Samfylkingunni.

Já, við ætlum að fella ríkisstjórnina. En það gerir Samfylkingin ein og sér, það gera VGarar ekki heldur einir og sér. Samfylkingin og VG eiga að freista þess að gera það í sameiningu, önnur leið er ekki fær að mínu mati.

Það er mín skoðun, að vinstriflokkarnir eigi að hætta þegar í stað að berja hver á öðrum öðrum og snúa bökum saman gegn FramsóknarÍhaldinu, fulltrúum ójafnaðar, græðgisvæðinar og hroka, og sparka þeim frá kjötkötlunum.  

Jóhannes Ragnarsson, 15.4.2007 kl. 18:53

7 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Sammála flestu sem þú skrifar þarna. En varðandi konur í framvarðarsveit, þá er það mjög teygjanlegt. Formaður Samfylkingarinnar er kona, einnig er ritari flokksins kona. Nýkjörin formaður framkvæmdarstjóra er kona (í fyrsta skipti), 3 af sjö í nýrri framkvæmdarstjórn eru konur (ein kona datt út vegna kynjakvóta), 19 af 30 kjörnum í flokkstjórn á landsfundi eru konur. Konur komu ekki vel út í prófkjörum í landsbyggðarkjördæmunum, en eru í baráttusætunum, t.d. Anna Kristín í NV, Lára í NA o.s.frv. Þannig að við þurfum aukin styrk til að halda þessum konum á þingi.

 Svo treysti ég formanni Samfylkingarinnar betur en formanni VG, til að auka jafnrétti í þjóðfélaginu. Hún gerir það einsog í Reykjavík, án þvingunaraðferða eins og VG er að leggja til og ég er ósammála.

Eggert Hjelm Herbertsson, 15.4.2007 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband