Leita í fréttum mbl.is

Frómleika frá sér kasta ...

kapital8Hvern fjandann ætli hótunin ,,að núna sé Sjálfstæðisflokkurinn að fara að undirbúa sig fyrir kosningar af enn meiri kraft en ætlað var" eigi að þýða? Mig grunar að sá undirbúningur kunni að felast í meiri stórlygum, stórkallalegri loforðasúpu, geðveikislegri hræðsluáróðri og klassískum hótunum um djöful og andskota ef Íhaldið tapi völdum, en áður hefir þekkst í sögu Sjálfstæðisflokksins. Ja, þeir kunna að taka stórt uppí sig þarna hjá Íhaldinu, það vantar ekki. Og ekki munar þeim um að beita eins hamslausum og trylltum aðferðum og þeir hafa hugarflug til ef rétt er að stórhætta sé á að forréttindakefið þeirra verði lagt í rúst og samtökin þeirra bönnuð með lögum eins og hver annar heilsuspillandi óþrifnaður ef þeir fara halloka í næstu kosningum. Og satt að segja þá hirðsveit gömlu Framsóknarmaddömunnar ekkert skárri þegar kemur að loforðasúpu og stórlygum fyrir kosningar.

Nú er það svo að ríkisstjórnarflokkarnir tveir eru sem rjúkandi rústir af innanmeinum, því þessir bófahópar eru viti sínu fjær af hræðslu við valdamissi eftir síðustu ófarir þeirra sem ekki sér fyrir endann á. Þegar svona er komið eru óargadýrin fyrst hættuleg og árásargjarnari framar venju og til alls trúandi. Við því er aðeins eitt svar: Að afvopna þau, aflúsa og reka uppá miðhálendi Íslands eða koma þeim í vist eyðiaflandeyjum.

Undirrót allra lasta
ágirndin kölluð er.
Frómleika frá sér kasta
fjárplógsmenn ágjarner
sem freklega elska féð.
Auði með okri safna,
andlegri blessun hafna
en setja sál í veð. 


mbl.is Stuðningur við forystuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband