Leita í fréttum mbl.is

Litli Bíbir fullur og gamli Bíbir í heimsókn hjá vafasömu fólki

operaSvo virðist sem Bíbir ætli ekki að bregðast áheyrendum í kvöld. Svo er að skilja að hann hafi hafið söngskemmtun sína með sönglögum úr smiðjum austurríkismannanna Franz Peter Shuberts og W.A. Mozarts og fylgt þeim eftir með númerum eftir Gerswin og Ellington. Hinsvegar bendir sú staðreynd, að Bíbríngurinn hóf tómleik sinn á tilsettum tíma, að hann sé að flýta sér og vilji djöfla dagskrá sinni af á sem skemmstum tíma. Flas er ei til fagnaðar, segir einhvers staðar, svo búast má við að þessi vörpulegi söngmaður keyri útaf laginu áður en lýkur.

Hitt er aftur alvarlegra, að Bíbir hafi haldið að hann væri í Reykjavík þegar hann var sannarlega staddur í Kópavogi. Það bendir til að drengskökullinn sé augafullur og vís með gera áheyrendum illar skráveifur, svo sem eins og að draga fram leyndarlim sinn og pissa yfir telpurnar á fremsta bekk. Annað eins hefir víst gerst. Verst er þó að pápi Bíbirs, gamli Bíbir, er með syninum í för, en hann er vondur kall og ófyrirleitinn í tiltektum.

kolb14Sagt er að gamli Bíbir hafi vitjað heimilis frú Ingveldar og Kolbeins í dag og tekið skrans á þeim hjónum og á Máríu Borgargagni og I. Handreði líka. Enda dró Borgargagnið andskotans Handreðinn á eftir sér í bandi eins og hund eftir hamganginn með þeim gamla Bíbríngi. Það má heita kostulegur andskoti að geðslegt fólk eins og Márí og Indriði skuli láta hafa sig útí svona óþverra, því þau eru því miður engin unglömb lengur og Mária auk þess orðin harðla gigtveik í miðvígstöðvunum eftir linnulaus fangbrögð við allrahanda slordóna frá unga aldri. Á eftir sagði frú Ingveldur sem svo, að einkennileg væri það með helvítis Borgargagnið, svona útjaskað og útbrunnið, að aldrei mætti hún kallmann sjá öðruvísi en að hafa í frammi blygðunarlausa tilburði, þó svo hún sé aungin manneskja til stórræða lengur.


mbl.is Bieber byrjaði á slaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Eru þetta ekki góðir dóp-sölutónleikar. Einhversstaðar þarf að markaðssetja svarta grasgull hvítflibba-sölumanna dauðans.

Stórglæpamennirnir dómara-hvítflibbuðu sleppa alveg við dóma, meðan yfirvaldaembætta-kúgaðir smá-afbrotamennirnir eru kerfissviknir og eltir allt sitt líf frá unga aldri. Oft saklausir, eða fyrir smávægileg afbrot, og að hafa misstigið sig á valdamanna-dóparfa drifnum ófæruvegum íslands.

Það verður varla þverfótað fyrir valdstjórnar-dómaranna eiturbrasi og spillingu, í alla vega formi.

Ekki undarlegt að reynslulaust og óharðnað ungt fólk flækist í þessum djöfulsins dómara-arfa út um allt. Því það er hreinlega nánast ófært fyrir þessum viðbjóðs-spillingarfenum og fellum. Samt vilja svörtupétrarnir í æðsta dómaraveldinu hafa þetta eiturmarkaðsbras bannað, til að geta kúgað varnarlausa til að selja og stela fyrir hvíflibba og dómaraskrílinn. Og halda verðinu í innbrota-okurhæðum.

Dómskerfið á Íslandi er miklu verra en ekkert dómskerfi.

Ógeðslega dauð-spennandi, segja aumingja ungu, spenntu, reynslulausu og saklausu tónleikagestirnir. Þetta er raunverulega ógeðslegt og glæpsamlegt stjórnsýslusamfélag á allan hátt.

Þetta er Ísland í dag. Verði okkur að góðu með óbreytta vanþróun.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.9.2016 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband