Leita í fréttum mbl.is

Vestfirðingar og masókisminn

xv9_1068004.jpgÞað er nú hálf hlálegt svo ekki sé meira sagt að Vestfirðingar séu að steyta görn í fjölmiðlum út af svikum og fláræði Sjálfstæðisflokksinns. Og þó að þeir þykist vera ofsareiðir núna, þá mæta þeir sem endranær á kjörstað í næstu alþingiskosningum og kjósa erkiíhaldið XD í stórum stíl eins og þeir eru vanir. Vestfirðingum þykir nefnilega svo undur gott að kissa vöndinn og sleikja sig upp við Sjálfstæðisflokkinn af masókískri nautn.

Reyndar hefir Sjálfstæðisflokkurinn farið svo vel með Vestfirðinga að þeir síðar nefndu hafa í stórum stíl gerst flóttamenn og horfið suður á bóginn af því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur svipt þá lífsviðurværi og komið í veg fyrir að þeir geti brauðfætt börn sín og komið þeim til þroska. Ef allt væri með felldu væri kjörfylgi við Sjálfstæðisflokkinn á Vestfjörðum vel innan við 5%. En eins og fyrr segir virðist þessi þjóðflokkur þjást af masokískri þráhyggju og elska sadistann sinn, Sjálfstæðisflokkinn. Meiri andskotans lágkúruorgían það.

Og hvaða gagn ætli Vestfirðingar hafi af vegabótum í sínu umdæmi? Það fyrsta, og eiginlega það eina, sem kemur upp í hugann er að samgöngubætur þar um slóðir auðvelda íbúunum að flýja til Reykjavíkur eða Noregs og miðað við stjórnarhætti á Íslandi er það út af fyrir sig jákvætt. Það besta sem Vestfirðingar, bæði þeir er heima sitja og þeir sem flúnir eru af vettvangi, geta gert er að segja Sjálfstæðisflokknum og hans líkum til helvítis og fylgja því eftir af fullri einurð.  


mbl.is „Þetta er svakalegt kjaftshögg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband