Leita í fréttum mbl.is

Hvenær ætla synir að snúast gegn feðrum sínum og dætur gegn mæðrum?

war2_1241493.jpgÞað eru ljótu dauðans vesalingarnir þessir giljagaurar sem leyfa sér að fullyrða að stjórnarher Sýrlands hafi gert efnavopnaárás. Svona helvítis kjaftæði er ætlað almenningi heimsins til að trúa svo hann sætti sig betur við enn meiri fólkslátrun herja kristilegra, siðmenntaðra Vesturlandamanna austur þar. Og þó það sé hjákátlegt, er samt grátt og ömurlegt að heyra íslenska ólánsbesefa gjamma undir með áróðri stríðstrumparanna eins og hvolpa sem halda að þeir séu alvöru búrtíkur. Þessum gemlingum er ekki sjálfrátt. Ef Sýrlendingar hafa beitt efnavopnum á sjálfa sig eru þeir heimskari og galnari en nokkur annað þekkt fyrirbrigði á jörðinni.

Fyrir ári síðan var heimsbyggðinni tjáð að Sýrlendingar ættu í höggi við einhverja ISIS kalla sem flæddu yfir landið eins og engisprettufaraldur. Í dag minnast svo kallaðar fréttaveitur, sem eru fyrst og fremst lygaveitur, ekki á ISIS í Sýrlandi því að það félag hefir umbreyst í meðförum fréttasnatanna í sýrlenskan uppreisnarher. Í hernaðarátökum er sannleikurinn undantekningarlaust sá sem fellur fyrst og hann er margdrepinn átökin út í gegn. Morðvargar heimsins og myrkraverkaherinn eiga óðul sín á Vesturlöndum og þaðan herja þessi þrifakvikindi á afganginn af heiminum.

Hvenær ætla synir á Vesturlöndum að snúast gegn feðrum sínum og dætur gegn mæðrum og afvopna þessa gráðugu og grimmu foreldra sína?  


mbl.is „Yfirvegað svar“ við efnavopnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband