Leita í fréttum mbl.is

Úr ljóðasafni skáldkonunnar

ingv10_1222586.jpgFyrir þá sem ekki vita annað um frú Ingveldi en að hún sé römm sjálfstæðisflokkskona og örlátur gestgjafi allar helgar frá hádegi á föstu degi fram á mánudagsmorgun og stundum lengur þá er þar við að bæta, að frú Ingveldur er laglega skáldmælt og glúrin hagyrðingur. Eitt sinn er andinn kom yfir han settist hún niður með skriffæri og orkti viðstöðulaust:

Í déskotans helvítis drullu og krít
ég djöflast sem snaróður tuddi í flagi;
húsfreyju, bóndann og hundinn ég skýt
og hamstola köttinn á barkann svo bít
og bíð síðan eftir að farast úr slagi.

Nú veit eg að sumum er í fersku minni þegar frú Ingveldur og vinkvendi hennar, Máría Borgargagn, vóru orðlagðar skipaskækjur. Einhverjum varð vafalaust á orði í þá daga að þær væru togaramellur og létu sem þeir væru stórhneykslaðir inn að innstu hjartarótum á framferði þessara tveggja kvenna, sem þeir fæstir þekktu af persónulega og höfðu fátt annað að styðjast við en illyrmislegar kviksögur, með öllu óstaðfestar og ósamhljóða. Um skipaskeið lífs sín orkti frú Ingveldur dálítinn rímnabálk, sem því miður hefir ekki enn verið festur á bók. Eftirfarandi línur gefa nokkra innsýn í kveðskapinn sem hann er helgaður:

Drotin gaf og Drotin tók
dálítin toll af manni.
Sprotinn varð að sperrtum lók
í spákonunnar ranni.

Enn fremur:

Nú skal byrja bölv og ragn,
beljan drakk allt vínið.
Bersyndugt er Borgargagn,
berrassað er svínið.

Þarna á frú Ingveldur eflaust við vinkonuna Máríu Borgargagn, ef mér skjálst ekki því meir. Og áfram:

Niðri í lest hún náði fram nægum vilja sínum.
Brast í viðum, beljaði andinn,
svo braut hún á honum gandinn.

Upp úr lest hann aumur skreið örkumla að neðan.
En Borgargagnið bretti görn
og beit á jaxl í sinni vörn. 


mbl.is Græddi 40 milljónir á viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband