Leita í fréttum mbl.is

Eins og gæsastegg

run.jpgÞar eð Ásdís Hjálmardóttir er vel af manni hefði hún auðvitað átt að leyfa sér þann munað, að taka helvítis nuddpervertinn og snúa hann úr hálsliðnum eins og gæsastegg. Það hefði til dæmis frú Ingveldur gert í hennar sporum. Hér áður fyrr á árunum var frú Ingveldur gríðarlegur íþróttagarpur, evrópumeistari í sleggjukasti og kringlukasti, svo fátt eitt sé nefnt, þar til hún var svipt öllum titlum og dæmd í ævilangt íþróttabann vegna óíþróttamannslegrar hegðunnar og neyslu ólöglegra efna.

Ekki svo að skilja, að frú Ingveldur hafi ekki komist í kast við pervertíska sjúkraþjálfara og nuddara. Hún hefir meðal annars sagt svo frá, að einhverju sinni hafi groddalegt nuddaragerpi, hvers kyns var ósvíst, gerst afar nærgöngult og það svo að um þverbak keyrði að mati frú Ingveldar. Þetta nuddarasvín var borið út í sjúkrabíl, sem ók því með hraði á slysavarðstofu. Stuttu síðar fór frú Ingveldur í eilífðar keppnis- og æfingabann. Hún vill meina að það hafa verið samsæri aumingja, sem ekki hafi þolað kjarnorkukvendi sem sló öllum kalladjöflunum við á íþróttavellinum.

En hvað sem öðru líður, þá slapp bölvaður pervertinn, sem misbauð blygðunarkennd Ásdísar, helst til vel frá óþokkarbragði sínu. Ekki hefði nokkur áfellst Ásdísi þó hún hefði kastað spjótinu í gegnum mannfjandann, eða, eins og áður segir, snúið hann úr hálsliðnum eins og gæsastegg.


mbl.is Nuddarinn gekk of langt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband