Leita í fréttum mbl.is

Svæsin óhreinindi í pokahorninu

GlæpamennÞegar fjármálaráðherra æsir sig upp í ræðupúlti Alþingis og sakar andstæðinga sína um innihaldslaust blaður er eitthvað skuggalegt á döfinni, óhreinindi í pokahorninu. Og víst er að nóg er um óhreinindi og hreinan viðbjóð í pokahorni fjármálaráðherra, því auk hinnar maðksmognu maðkaveitu, Sjálfstæðisflokkinn, er þar að finna í bland skrattakolla eins og Steingrím joð og fleiri miður geðuga framsóknarpramma. 

Og fyrst fjármálaráðherra hefir með æsingi og látum og kjafthætti um ,,innihaldslaust blaður" komið upp um sig og innihald pokahornsins er ekki nema rétt og skylt að allt klabbið verði rannsakað ofan í kjölinn. Aungri opinberri sofnun er þó treystandi til að rannsaka ófögnuðinn, heldur verður alþingi götunnar og rannsóknardómstólar alþýðunnar að annast verkið. 

Glæpir gegn alþýðunni hafa því iður verið, sem maður segir, daglegt brauð á Íslandi í áratugi og samkvæmt alþjóðlegum rannsóknum og skýrslum er Ísland tvímælalaust eitt af alspilltustu löndum veraldar, og það svo að lægra verður vart komist á því sviði. Það sem nú blasir við, er að íslenska þjóðin verður að gera upp við sig hvort hún ætlar að göslast áfram á sömu glæpabrautinni eða snúa blaðinu við og sturta glæpaklíkunum fyrir björg og taka upp siðaðra manna samfélagsgerð. 


mbl.is „Innihaldslaust blaður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

"...sturta glæpaklíkunum fyrir björg og taka upp siðaðra manna samfélagsgerð. "

Er það ekki framkvæmdavaldið sem á að framkvæma þannig framkvæmd? Eina vopnið sem "þjóðin" hefur eru kosningar á eins til fjögurra ára fresti og það vopn er gjörsamlega bitlaust og ónýtt, því að það er verið að kjósa glæpamenn og glæpakvendi (um að gera að hafa jafnréttissjónarmið í umræðunni), sem ættu ekki að koma nálægt kjötkötlunum. 

Aztec, 22.2.2018 kl. 16:36

2 Smámynd: Aztec

Hmmm, kannski of djúpt í árina tekið að kalla alþingismenn glæpalýð, en duglaust og ónýtt eiginhagsmunahyski er þetta í öllu falli. Hvenær hefur þetta lið nokkurn tíma gert neitt fyrir þjóðina? Það eyðir öllum tímanum í að þrefa um tittlingaskít og kemur engu í verk.

Aztec, 22.2.2018 kl. 16:41

3 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Það er ekkert í pokahornum þarna, þetta er belgur og kúlulaga og þessvegna hornlaus!

Eyjólfur Jónsson, 22.2.2018 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband