Leita í fréttum mbl.is

Gylfaginning á raskatið

asiNú, auðvitað rann þessi Gylfaginning á raskatið og út út um læri og maga hjá hinum undirgefnu sjakölum ASÍ. Enda ekki við öðru að búast af þessari vanheilögu baráttusveit hagfræðinga, fræðimanna og farísea.Hljóðnað er nú baulið í Gylfa, kontórsjakalanum mikla, og mun lítið til hans fréttast næstu misserin, nema hvað flestir gera að því skóna að hann haldi sig urrandi að verkalýðnum undan skrifpúlitnu á öreigakontórnum.

Já, sona fóru um tröllkonuhlaupið það og kætast þá Sigurður blundur Bessason og eftirmaður hans, Gylfi sjálfur, Stjáni í Keflavík og Bjössi framsóknar á Akureyri og telja sig og auðvaldið hólpið einusinni enn,- í bili að minnstakosti. 


 


mbl.is Kjarasamningar halda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband