Leita í fréttum mbl.is

Helgiljóð af Ísavía

Á Ísavía er ógnar fjör,
æðsti kallinn þar blæs í rör,
byggir upp og bóluna kreistir;
kamrarnir eru á rökum reistir.

Hvessir brátt um Hvassahraun,
úr hvilftinni þar leggur daun.
Og forstjórinn þar flautar dátt
en fraukelsið þar hjá er undur grátt.

Siglir brátt upp í Sathhans vör,
sjúgandi af krafti það ógnarrör.
En lendingin er þar víst ófær enn
og endastingast þar skip og menn.

crazy2


mbl.is Djarfar áætlanir reyndust passlegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband