Leita í fréttum mbl.is

Meðan logar í stertinum og stalínískur morgundrykkur

kol3_1208738.jpgKobeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður hefir um langan aldur verið afar heilsubótarsinnaður og tekið bætiefnin sín reglulega í mörg ár. Fyrir tveimur árum gaf hann svo út leiðbeiningarbæklinginn ,,Bætiefnagleðin í máli og myndum." Í bæklingnum kemur fram, strax á fyrstu blaðsíðu, að Kolbeinn hefir lengi haft til siðs að byrja daginn eftir kenndirí með því að drekka úr tveimur fullum vatnsglösum af óblöduðum vodka, helst stalínískum, og þar á eftir að soga vænan slurk af kólmubísku kókaíni upp í nasaborurnar. Þegar fyrrnefnd bætiefni eru farin að virka og krauma í vömb, nefgöngum og heila, hefir Kolbeinn snör handtök og gleypir í sig hákarlalýsi, 650 grömm súrt hvalrengi og æðikolluket steikt upp úr margaríni og sykri ásamt hálfu kílói af skyrhákarli, sem er gljábrúnaður á pönnu áður en honum er steyp saman við kolluketið. Síðan tekur hann aðra umferð á þeim stalíníska og þeim kólumbíska og er að því loknu fær í allan sjó, enda stökkru Kolbeinn þá til vinnu sinnar og gjörir skyldu sína í þágu þjóðfélagsins. 

En því miður er ég, og væntanlega þjóðin öll, sammála um að hætt sé við að frú Bergmann fengi hastarlega í belginn ef hún tæki inn þó ekki væri nema helming bætiefnanna sem Kolbeinn innbyrðir að morgni dags eftir kenndirí. Meira að segja Brynjar Vondalykt hefir orðið uppvís af að gera í buxurnar eftir að hafa reynt áðurgreinda bætiefnainntöku. Og frú Ingveldur ropar stundum vel og lengi eftir að hafa snætt og drukkið þennan frábæra bætiefnamorgunverð með Kolbeini eiginmanni sínum.

ing1Þá segir í heilsubótarriti Kolbeins, að sú margfræga kvinna, Máría Borgargagn, hafi komist upp á lag með að mala saman hundasaur, gallpæklaða sveppi, kæsta ærgor og sýkt innyfli úr svartbak, allt að sjálfsögðu mjög vel þurrkað. Þegar þessi efni eru orðin vel duftuð blandar hún duftinu til helminga saman við Half and Half reyktóbak og heimaræktað kannibiss og reykir þetta síðan í pípu og segir hún kraftinn í þessu svo mikinn að hún skjótist langleiðinu út úr gufuhvolfinu við fyrsta smók og eftir fimmta smók sé hún lennt í hymmnaríki og dvelji þar meðan logar í pípustertinum. 



 


mbl.is Hvenær er best að taka bætiefnin inn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband