Leita í fréttum mbl.is

Hamslaust brottrekstraræði

fullHún virðist vera búin að tapa sér og er orðin brottrekstraóð þessi Kolbrún, sem skolaði á fjörur frú Sæland og Flokks Fólsins eftir neyðarlegt prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum. Ef heldur sem horfir verður hún búina flæma allt hið góða fólk sem starfar hjá Reykjavíkurborg, ásamt flestum borgarfulltrúum, út á gwöð og gaddinn fyrir áramót. Mér er sagt þessi frauka sé sálfræðingur, útúrlesin í Freud og Jong, og kunni að gera settlega og uppþornaða drengi og stúlkur, á borð við Dag og Líf og hinar kvinnurnar í meirihlutanum sem enginn man hvað heita, að halakliptum hundum á fáeinum dögum.

Hisvegar er brottrekstraræði þessa sérkennilega útsendara frú Sæland og Láfa Ísleifs svo harvítug og hamslaus, að vandséð er að annað en spennitreyjan og hringlaga klefi við Sundin geti komið vitinu fyrir þessa persónu. Á móti kemur að Dagur og það fólk eru aungvar manneskjur til að taka í taumana og koma Kolbrúnu í var.

Þormóður hét maður og orkti til Kolbrúnar; af því var hann Kolbrúnarskáld kallaður. Hann féll í bardaga fyrir aumu málefni í Noregi. Bættur sé skaðinn. En Kolbrún í borgarstjórninni er ekki fallin enn og bítur fast sem krókódíll í skjaldarröndina og urrar grimmilega ofan í hálsmálið um leið og hún kveður fyrir munni sér:

,,Frú Sæland stækkar, valdið vex,
víst get ég rekið aðra sex.


mbl.is Bað um afsögn stjórnarformanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband