Leita í fréttum mbl.is

Sýndarmennska og skinhelgi í för með ljósmyndara (Kaldal sé væntanlegur klukkan þrjú)

xaEkki vantar bölvaða sýndarmennskuna og skinhelgina hjá heiðursformanni Sjálfstæðisflokksin, enda er hún innblásin af stökum snillingum á borð við Steingrím, Svavar og Bjarna Ben. Hvað hún svo gerir við þetta rótarskot má Fjandinn einn vita, en ekki þætti mér ólíklegt að ,,rótaskotið" atarna muni birtast oss bráðlega sem gluggaskraut við hliðina á heiðursfomanninum í útstillingarglugga Sjálfstæðisflokksins og VG. Nú þegar hafa gráðugustu hlutar burgeisastéttarinnar náð að skjóta rótum í ,,Vinstri"hreyfingunni ,,grænu" framboði og borið ávöxt í líki hins alkunna gluggaskauts, heiðurformanns Sjálfstæðisflokksins og stofustúlku VG-elítunnar, Katrínar Jakobsdóttur.

Er ekki dulítið hráslagalegt, að ekki sé sagt óhugnalegt, að meðan eitt duglegt gluggaskaut og heiðursformaður lætur sér vel líka flugelda- og stríðslæti NATO herja innan ísleskra vébanda láti hún ljósmyndara Morgunblaðsins fylgja sér á flugeldasölu til mynda þá athöfn þegar hún keypti ,,rótarskot" í stað flugeldatertu? Hvað ætli þessari lambgimbur Steingríms, Svavars og Bjarna Ben verði falið að gera næst í auðvirðilegu auglýsingarskrumi? Klappa einhverju örvasa gamalmenni á kinnina að viðstöddum Moggaljósmyndara og segja við hann: -Elsku vinur, ég er búin að gera svo ógurlega mikið fyrir sig. Sá hinn örvasa getur náttúrlega aungvu svarað sökum elli og næringarskorts, en efrimillistéttin og yfirstéttin mun eflaust vikna þegar hún sér myndina og lofa drottinn Mammón fyrir litla gluggaskrautið sem er so undurgott við gamalmennin.

Við hin, sem hofum úr fjarska á hryllingin með gluggaskrautið, rótarskotið, flokkseigendafélögin, getum ekki að því gert að hugsa með hlýju til Pétusrs Þríhross, Bör Börssonar og geggjuðu herforingjanna, sem góði dátinn Svejk sagði okkur frá, því uppdiktaðar fígúrur úr skáldsögum eru til muna geðslegri en óféti af holi og blóði, sem vita ekki af sér í eigin sjálfsupphafningu og velta sér upp úr eigin skít eins og búrhænsni og halda að lífið sé eingöngu til þess að það geti leikið á alþýðumanna og sleikt sér upp við burgeisa og kauphallarhéðna. 

Ljúkum svo þessum pistli með orðum þjóðskáldsins, en þau eru einkar vel viðeigandi að þessu sinni:

,,Á miðvikudögum þegar Kristur klappar
sér á kúluvömbina og dæsir og segir: nú
og skipar þér að koma með krossinn
Kaldal sé væntanlegur klukkan þrjú."


mbl.is Keypti Rótarskot og stjörnuljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Áður en ég las þessa frétt, vissi ég alveg við hverju var að búast: Katrín að tönnlast á svokölluðum loftslagsbreytingum sem eru bæði eðlilegar og náttúrulegar og eru ekki af mannvöldum, enda hefur koltvíldi engin áhrif á hitastig andrúmsloftsins.

Aðeins fífl trúa því að hlýnun eða kólnun andrúmsloftsins séu af mannavöldum. Skemmtikarafturinn okkar, Ómar Ragnarsson, spurði í færslu: Eru þetta 40 þúsund og eitt fífl sem eru að sækja loftslagsráðstefnu í Katowice? Nei, þetta eru ekki fífl, heldur sníkjudýr sem lifa á styrkjum sem eru útbýttir vegna loftslagssvindlsins, fé sem kemur beint úr vösum saklausra skattgreiðenda.

Stóru spurningarnar eru:

1. Er Katrín fífl eða tekur hún bara þátt í svikamyllunni vegna þess að hún í vinstriflokki á þingi?

2. Veit hún að það bezta sem hún getur gert fyrir þessa trjástöngla sem hún vill að séu gróðursett að styðja við aukna losum á CO2, þar eð náttúran þrífst á því? Nei sennilega ekki (sjá atriði 1).

Aztec, 28.12.2018 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband