Leita í fréttum mbl.is

Þá talaði Gvöndur Túre ekki mikið um stórkostlega frammistöðu

handÞað væri nú réttast fyrir þjálfarann, Guðmund Þórð, eða Gvönd Túre eins og flestir kalla hann, tala sem minnst um einhverja frammistöðu hjá handboltalandsliðinu. Jú, þeir rétt mörðu einhver hálfmenni sunnan af Balkanskaga, gamla karlkurfa með bjórvömb og lungnaþembu. Að telja soleiðis marning til stórkostlegrar frammistöðu er einhvernveginn algjörlega á skjön við eðlilega dómgreind, hvað þá hjartans lítillæti.

Að vísu var stundum dálítið spaugilegt að sjá til íslensku drengjanna í glímunni við kurfana; iðulega minnti markvörðurinn að kartöflupoka, sem veltur um koll þegar hann var að burðast við að verja og þegar hann pompaði á afturendann átti maður von á að hann hrykki í parta. Nú, gömlu jólarnir af Balkanskaganum voru ekkert að stressa sig og löbbuðu sig margar ferðir út að hliðarlínunni til að fá sér sjúss, sterkan skohh. Og einn svolinn, tvöhundruð kílaóa kallin sem var á línunni hvolfdi í sig þremur og hálfum lítér af dönskum Elifanti í einum teyg, um það bil sem síðari hálfleikur var hálfnaður.

Vissulega kunna íslenskir handknattleiksmenn, leikmenn og þjálfarar, reglunnar í handknattleik nokkurn veginn. En í sannleika sagt, þá er íslenska handknattleiksliðið ívið lakara en handknattleikslið Færeyja og Grænlands, og landslið Shetlendinga er okkar prötum mikið fremra að getu. Það sást best í hvaða ógöngum íslenskur handknattleikur er þegar Spánverjar, sem er ein vánkuð þjóð með slefuna í munnvikjunum, tóku drengina okkar og skutu þá hreinlega í rot, dustuðu úr þeim rykið, flengdu þá og rassskelltu eins og einhverja lítilfjörlega apaketti. Eftir þann leik talaði Gvöndur Túri ekki mikið um ,,stórkostlega frammistöðu" né aðra fjarstæðukennda óra. Ónei, þá læddist karl fjöruna heim til sín með aungulinn kyrfilega klossfastann í rassgatinu. Oooo-hohoho-hooojjjj! ...


mbl.is „Frammistaðan var stórkostleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband