Leita í fréttum mbl.is

Tímamótaávarp frú Ingveldar í minning Ingudo

ing15Á milli jóla og nýárs á síðasta ári hélt frú Ingveldur tímamótaávarp hjá Sjálfstæðiskvennfélaginu Gullpeningnum, sem er fagfélag auðugra sjálfstæðisflokkskvenna á höfuðborgarsvæðinu. Í ávarpi sínu lagði frú Ingveldur út af minningu frænku sinnar, frú Ingudo, sem féll frá skömmu fyrir jól. Þar kom fram að Ingado hafði um sína daga ævinlega verið kölluð Ingado Sprengja, af því að það heyrðust eins og sprengingar þegar hún var að gjöra dodo með strákonum. Þetta persónueinkenni hinnar látnu frúar ku hafa færst í aukana með tíð og tíma, uns hún, eins og frú Ingveldur sagði, varð síðustu sprengingunni að bráð. -Það varð að tína hana saman, sagði frú Ingveldur, og leggja í salt, svo ekki færi að slá í hana fyrir útförina.

En Ingado var komin til ára sinna þegar Drottinn tók í taumana og grandaði henni. Hana vantaði ekki nema þrjú ár upp á nírætt þegar kallið kom. -Og það var hann tengdafaðir minn, galaði frú Ingveldur, -sem var hjá henni Ingudo á lokastundinni, sá aumi kallskítur og náhundur. Hann hefir ófá dauðsföllinn á samviskunni sá maður og nú heldur hann heilu dvalarheimili aldraðra í gíslingu, því aunginn þorir að stugga við þessu kvikindi.

Þegar tímamótaávarp frú Ingveldar hafði með þessum hætti farið inn á brautir gamla Kolbeins Kolbeinssonar fyrrum forstjóra, kaupfélagsstjóra, dírektörs og framsóknarmanns, var ekki aftur snúið. Og frú Ingveldur tók til við að fræða meðlimi Gullpeningsins um tengdaföður sinn, glæpi hans og mannhatur. Meðal annars sagðist henn svo frá, að á fermingardaginn hans Kolbeins yngri hafði faðir hans, hann gamli Kolbeinn, fært honum hræðilega vændiskonu að gjöf, því gamla manninum þókti tímabært að fræða drengin um undur lífsins, ekki síst móðurlífsis. Þessi djöfulskapur gerði Kolbein yngri svo að þeim öfugugga, ræfilstusku og drykkjurafti, sem raun ber vitni. -Og í þokkabót heimtaði þetta óbermi á brúðkaupsdaginn okkar Kolbeins sonar hans, að fá að ,,tilkeyra mig" eins og hann orðaði það, annar myndi hann lúlemja mig og Kolbein líka með þessum líka járnslegna staf sínum, orgaði frú Ingveldur yfir fund Sjálfstæðiskvennfélagsins Gullpeningsins svo við lá að gjörvallur þingheimur fengi ofsafengin hjartaáföll og heiliblóðföll. Þegar frú Ingveldur hafði lokið ávarpi sínu var henni fagnað eins og heimsmeistara með ægilegum lófaslætti, grenji, tárum, faðmlögum og einu og einu einkennilegu poti.


mbl.is Undir áhrifum á flótta frá lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband