Leita í fréttum mbl.is

Þegar Katrín plampar með Trumpinu inn í Venúsúela til að skjóta alþýðu

x5Heimsvaldasinnar, auðvaldið á Vesturlöndum, hafa komið sér upp ófrýnilegum tíkarsyni í Venúsúela, Guaídó heitir skepnan, eða eitthvað í þá áttina. Og auðvitað makka íslensku tíkarsynirnir rétt fyrir hiða gráðuga og ófyrirleitna auðvald, sem teflir fram ekki geðugri persónu í fylkingabrjósti en Dónaldi Trump, því gerfirrta viðrini. Og vissulega verður dásamlegt að sjá gluggaskraut Sjálfstæðisflokksins og Svavarsfjölskyldunnar plampa með Trumpinu inn í Venúsúela til að drepa alþýðufólk. Reyndar er þetta óærlega undirmálsfólki ekki óvant að taka að sér tíkarsonarhlutverk fyrir haukana í stríðsveldinu USA.

Og ekki var Guðlaugur a. Þórðarson fyrr búinn að gera Katrínu, Stengrím og Álfheiði, að ógleymdri Svavarsfjölskyldunni, viljug til árásar á alþýðu Venúsúela fyrir heimsvaldaauðvaldið, en hann var kominn inn í beina útsendingu Ríkisútvarpssins og beraði þar fávisku sína og heimskulegan yfirstéttarderring. Það þurfti ekki efnahagsþvinganir og efnahagsleg hryðjuverk á frjálshyggjuparadísina Ísland til að hér yrði Hrun með stórbrotnum landflótta, fjöldagjaldþrotum, niðurlægingu, og ekki munum við betur en Guðlaugur þessi væri væri heldur en ekki toppspjátrúngur í ferðalaginu fram af brúninni og niður í ómennskuurðina. Getur verið að Ríkisútvarpið, sem við héldum að við ættum saman, sé í raun ríkisútvarp Sjálfstæðisflokksins

flokkseigendur_786424En fróðlegast verður að heyra útskýringar aumingjanna í VG á herleiðangri þeirra með Trump, Bjarnaben, Gulla til að vinna á alþýðunni í Venúsúela. Ég held satt best að segja, að leitun sé á meiri pólitískum aumingjum og drulluhyski en tíkarsonunum og tíkardætrum, sem gráðugasta auðvaldið á eigendum VG. Við munum sum eftir stöðugum fréttum, fyrir Hrunið Guðlaugs og Engeyinganna, að lánshæfi þessa og hins væri komið í ruslflokk. Nú höfum við fyrir okkur VG komið langt niður fyrir ruslflokk, það er að segja í eiturpöddu- og sníkjudýraflokkinn. Orð eins og svik, ræfildómur, lágkúra og skítmenni eiga ekki við í tilfelli aumingjanna í VG, þau orð eru allt of veik til að geta átt við önnur eins ræxni.    


mbl.is Íslensk stjórnvöld styðja Guaidó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er ekki seinna vænna að fara þar og plaffa niður alþýðuna. Annars gæti farið svo að velgjörðamaðurinn yrði búinn að stúta henni allri úr hungri, og þá er enginn lengur til að plaffa niður embarassed

Þorsteinn Siglaugsson, 4.2.2019 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband