Leita í fréttum mbl.is

Þá er hætta á að alþýða manna dragi upp axir sínar og næturgögn

heven1Hvaða sauðnaut ætli það séu, sem hinn ofurhamingjusami Engeyingur og formenni Sjálfstæðisflokkssamtakanna illræmdu, eigi við þegar hann segir að einhverjum hefði þókt furðulegt fyrir nokkrum árum ef fjármálaráðherra Íslands hefði verið umhugað um hamingju. Það væri fróðlegt að vita hvaða bölvaðið ,,einhverjir" þetta eru til þess að hægt sé að fá yfirlit um málið. Til dæmis vitum vér ekki betur en Torgerður Katrín sé undur hamingjusöm yfir því að kúlulánið hennar fór til hymmna og varð að fjárengli og situr nú við hægri hönd Mammóns Drottins.

Þá segja fróðir menn, að margir útgerðarseggir og braskarar séu enn hamingjusamir eftir heppilegar niðurfellingar skulda. En alltaf má þó finna óhamingjusamar sálir, þó svo sannað sé að aungir í veröldinni eru hamingjusamari Íslendingum; til dæmis er ríxlögreglustjóri óhamingjsamur í dag vegna hælbíta og púka. Hinsvegar er Stenngrímur Johoð yfirmáta hamingjusamur og lygnir aftur glyrnunum eins og fressköttur sem étið hefir yfir sig af smáfuglum og nagdýrum og við sjálft liggur, að hann renni eins og marglyttuhrúga undir forsetapúlt Alþingis á hverri stundu.

Þegar aðli og Samherjum borgarastéttarinnar sleppir, þá er víst upp og ofan með hamingjuna og ekki líklegt til fegrunar fyrir ríkisstjórnarhjónin að spinna upp einhverjar langsóttar hamingjutölur til að fella inn í niðurstöður ríxreikninga. Því þegar stjórnmálastéttin er farin veifa hamingjusnakki á grallaralegan hátt framan í langskuldugan almenning, þá má búast við að rekkar dragi fram axir sínar og brýningrtól, en kvinnur þeirra næturgögn sín fleytifull til að skvetta framan í ríkisstjórnarhjónin og þeirra hyski; kanski Stenngrímur Johoð mundi vakna í nokkur augnablik ef hann fengi óforvandis næturgagnsinnihald beint upp í trýnið? 


mbl.is Hamingjan lykilatriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband