Leita í fréttum mbl.is

Nýstárleg áburðartækni að frumkvæði borgarstjórnar

ingv4_1240251.jpgÞá hafa Dagur og Líf og hin furðuverkin í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur ákveðið loka öllum taðhúsum í miðbænum og fjarlægja þau. Þessi samfylkingarlega ákvörðun byggist á boðorðinu ,,skíttu úti" og er að áliti Dags og Lífar skref í áttina að náttúrulegri lífstíl þeirra sem eru á þvælingi í miðbænum. Það er til dæmis á allra vitorði, að góður manni sé besti áburður sem völ er á og upp af honum vaxa risastór blóm, runnar og tré og grasvöxturinn er stórbrotinn.

Það verður eflaust athyglisverð sjón að sjá alla Dalvíkingana á hækjum sínum eftir endilögnum Laugarvegi, vestur Austurstræti og yfrum allan Austurvöll. Þegar Ólafur bóndi var og hét, þ.e. áður en hundurinn Snati ýtti honum með trýni sínu fyrir björg, safnaði hann saman taðinu úr öllum sveitungum sínum og bar það á tún. Eins og við manninn mælt óx þvílíkt kjarnagras upp af mannatúnum Ólafs bónda, að hann átti í stökustu erfiðleikum við að komast með sláttuvél í gegnum flækjuna. En kýrnar mjólkuðu vel af þessari töðu og ærnar gjörðust hugumstórar og báru fjórum, fimm lömbum hvur.

Síðustu fréttir segja, að Dagur og þau hin hafi mikinn hug á að koma upp borgarstjórnarlegum maturtagarði umhverfis ráðhúsið og bjóða gestum og gangandi að ganga örna sinna í þeim garði. Vissulega verður líflegt fyrir Dag og Líf að fylgjast með hópum Dalvíkinga koma aðvífandi að ráðhúsinu og leysa niðrum sig og kukka í gulrótabeðið eða blómkálsbeðið; það er allavega skárra en að þeir skíti í sandkassa barnanna eins og bölvaðir kettirnir.

Til gamans má geta þess, að meðfylgjandi mynd er af Máríu Borgargagni að iðju sinni við Laugarveg.  


mbl.is Almenningssalernum í miðbænum lokað 1. janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhannes. af hverju ertu að nefna "Dalvíkinga" svona mikið?

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 30.12.2019 kl. 11:28

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mér skilst að fólk í ferða- og veitingabransanum kalli kínverska viðskiptavini sína Dalvíkinga, til að alveg sé öruggt að þeir skilji ekki neitt þegar verið er að tala um á íslensku.

Jóhannes Ragnarsson, 30.12.2019 kl. 11:34

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Já ókey

Helgi Þór Gunnarsson, 30.12.2019 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband