Leita í fréttum mbl.is

Farið að falla á efrimillistéttarfémínístann; úrkynjað og fúlt undanrennugutl er ógeð

bur6.jpgÓsköp hreint er nú farið að falla á efrimillistéttarfémínístann Katrínu Jakobsdóttur. Hún er komin í þau spor, þó hún geri sér ekki grein fyrir því, að vera farin að lifa sjálfa sig. Það rennur nú upp fyrir æ fleirum, að efrimillistéttarfémínísminn er ekki þess virði að nokkur lifandi maður sé að eltast við þessháttar öfgagrillur í betri stofum borgarastéttarinnar. Svo snobbar forsætisráðherra Bjarnaben og auðvaldsins niður fyrir sig með því að þakka Eflingu fyrir kjarabaráttu sína til að reyna að telja fólki trú um að hún styðji umrædda kjarabaráttu, sem hún gerir auðvitað alls ekki.

Hinsvegar eru aungvar spurnir að því að forsætisráðherra hafa þakkað Kveik og Stundinni rannsókn þeirra sem leiddi til spennandi umfjöllunar um Samherjana, sem svo sannarlega eru samherjar Katrínar og Stenngrims Johoð. Nei, þessháttar flumbrugangur fjölmiðlunga er ekki skref í ,,jafnréttisátt" í huga Katrínar og rímar ekki við efrimillistéttarfémínísma hennar og borgarastéttarinnar, Bjarnaben og NATO. 

Það leynir sér ekki að VG er á útleið í íslenskum stjórnmálum; úrkynjað og fúlt undanrennugutl er óaðlaðandi og gluggaskrautið sjálft er orðið snjáð, upplitað og rytjulegt og óþekkjanlegt frá Samherjanum Stenngrimi. Í næstum kosningum standa vonir manna til þess að þjóðin verði endanlega laust við þetta sérkennilega tilbrigði auðvaldspoletikurinnar.



mbl.is Brýnt að leiðrétta „kynjaskekkju“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband