Leita í fréttum mbl.is

Nýtur stuðnings alls þess versta í íslensku samfélagi, en frú Ingveldur er með á nótunum

kol21Auðvitað verður Bjarniben áfram formaður Sjálfstæðisflokksins, enda nýtur hann stuðnings alls þess sem verst er í íslensku samfélagi. Frú Ingveldur segir við hvurn mann að hún elski Bjarnaben langt umfram eiginmann sinn, Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann. Þá lýkur frú Ingveldur miklu lofsorði á Stjána Samherja Júlíusson, segir hann hann sé skohh maður með púng, ólíkt ýmsum öðrum, og að frú Andersen sé yfirvegað dyggðaljós og fyrirmynd allra efrimillistéttarfémínískra kvenna. Vér tökum öll undir orð frú Ingveldar í þögulli virðinu.

Hinsvegar hefir furðulítið borið á kvenmenninu Máríu Borgargagni síðan bóndinn í Framfarasveit sigaði á hana hundum sínum grimmum, en þeir eru blóðhundar nema einn sem er rottuhundur og það var hann sem var næstum búinn að drepa Borgargagnið. Nú, Máría fékk áfallastreituröskun og í framhaldi af því áfallahjálp og nú síðast hafði einhver fúskarinn, sem fúskar með andlega bágborið fólk, fengið hana til meðferðar. Meðan þessu hefir fram farið hefir eiginmaður Borgargagnsins, Indriði Handreður, vaðið um eins og landafjandi og hótað hvurjum manni og hvurri konu soleiðis nauðgun að allt fari á tjá og tundur í meltingarfærum og meltingarvegi þeirra.

Svo sem sjá má, er komin upplausn í félagahóp frú Ingveldar og því kemur yfirlýsing Bjarnaben um að vera áfram formenni Sjálfstæðisflokksins eins og himnasending og gjörir frú Ingveldi kleyft að endurskipuleggja helgarsamkvæmi sín í anda frægra skipulagðra glæpasamtaka. Reyndar hafði frú Ingveldur á orði í morgun, að Brynjar Vondalykt væri bölvuð helvítis rotta og taðgemlingur og réttast væri að skrubba kjaftinn á honum upp úr vítissóda, sem og afturendann á kvikindinu. Fólki er hulið hvað Vondalyktin hefir af sér gert til að verðskulda jafn afgerandi ummæli úr munni frú Ingveldar, en víst að að eitthvert óþverraverk hefir maðurinn framið. Sumir segja að hann hafi enn einu sinni lagst með Kolbeini, sem kona hann væri, og frú Ingveldur hafi komið að djöflunum við þokkalega iðju sína.


mbl.is Vill halda áfram að leiða Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband