Leita í fréttum mbl.is

Heilagramanasögur verða til og mynhöggvarar keppa í líkneskjusmíð, meðan ein liggur óbætt hjá garði

heilagur FransAlltaf er jafn undur skemmtilegt að fylgjast með í beinni útsendingu þegar heilagramannasögur verða til. Enn má finna menn, sem mun þá daga þegar séra Ólafur Ragnar Grímsson sló sér á lær fyrir framan gjörvalla íslensku þjóðina og þverneitaði að skrifa nafn sitt undir pappíra, sem ætlast var til að hann skrifaði undir svo innihald þeirra gæti orðið að lögum. Þennan leik lék séra Ólafur í tvígang og komst með því á stall með heilögum Frans af Assissí. Eða hann Óli eitinn Jó. Hann kvað upp úr með á Alþingi einn góðan veðurdag á síðustu öld, að einhver bölvuð spjátrúngasúpa væri mafía og Mafía skildi hún heita; stuttu síðar sungu síðhærðir piltar með gítara helgiljóð um Óla Jó inn á grammófónplötu og Óli Jó varð samstundis jafn helgur og Þolllákur heitinn byskubb.

Nú höfum vér Íslendingar enn á ný aflað okkur heilagra manna, sem nú þegar hafa öðlast sess í heilagramannasögum. Tveir til þrír heilbrigisstarfsmenn og einn lögregluprjónn, öll ríkisrekin, hafa í vetur gengið í björg dýrlinga og er þegar hafinn strekkingshvass átrúnaður á þetta fólk. Eftir situr heilbrigðisráðherrann með sárt ennið og horfir upp á undirsáta sína öfundaraugum, verða að sannhelgum persónum, hálfgildings guðum. Spursmálinu um heibrigðisráðherrann verður best svarað og á sem einfaldastan hátt, að þar fer mannéskja, sem ekki þykir spámannlega vaxin, hvað þá að hún geti nokkurn tíma komist í dýrlingatölu, það er af og frá.

Nú hafa þau í söfnuði hins þríheilaga heilbrigðisdrottins þegar gjört bragarbót á Faðirvorinu og grópað þar inn þessum Guði þóknanlegum orðum: ,,heldur frelsa oss frá kóvíð nítján" í stað þess að frelsa oss frá illu, því það er auðvitað kolómögulegt eins og allir vita. Svo er í undirbúningi að efna til samkeppni í millum myndhöggvara í að gjöra almennileg líkneski með postulínsáferð af hinum nýkrýndu dýrlingum, sem í fyllingu tímans munu dansa á hymmnum hátt með fyrrnefndum heilögum Fransi af Assisí og Þollláki byskubbi. Auðvitað verður abstrakt myndhöggvurum meinaður aðgangur að jafn áríðandi samkeppni, því ekki viljum vér dónalegt prjál, eins og eftir géðsjúkling, inn í helgidóm vorn. En Swandeesý Sendiherrans veður að liggja óbætt hjá garði, hverrar heilagleiki er nú sona og sona, svo skulum vér ekki fást um þann hégóma og tittlíngaskít meir.  


mbl.is Teiknaði þríeykið í klukkustundavís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband