Leita í fréttum mbl.is

Þau sæmdarhjónin eru meðal hinna sjö, sem kært hafa dólgana í Tíról

svejkÞá er loksins komið að því að íslenskir skíðasérfræðingar taki yfirvöld í Tíról og snúi þau úr hálsliðunum, rétt eins og íslenskir lundabændur gera við lundana, sem þeir veiða í háfana sína. Ekki vitum vér enn, hvort frú Ingveldur og Kolbeinn, eiginmaður hennar, eru í meðal þessara sjö Íslendinga, sem ætla sér að gera út af við Tíról og Tírólbúa, en vel er trúlegt að þau hyggi á hefndir fyrir að hafa smitast að kóvíði þar ytra.

Þegar frú Ingveldur og Kolbeinn komu úr skíðaferð sinni í vetur, buðu þau vinum sínum og ýmsum vandamönnum til samkvæmis á heimili þeirra hjóna. Örfáum dögum síðar fór að bera á krankleik hjá sumum gestanna, sem lauk með því að Máríu Borgargagni, Indriða Handreði, Brynjari Vondulykt og Óla Apaketti var steypt inn á gólf til sæmdarhjónanna í stranga einangrunarsóttkví. Indriði Handreður var, þegar þar var komið sögu, kominn með bullandi kóvíð og óráð og var vart hugað líf í marga daga. Samt gjörði frú Ingveldur sér lítið fyrir og dröslaði hinum dauðveika sjúklingi inn í miðstöðvarkompuna og lét hann berjast þar fyrir lífi sínu. Þegar Handreðurinn fór að hjarna við, varð hann strax uppvægur, að koma á framfæri, að nú hafi brennivínið bjargað lífi hans eina ferðina enn. Hið sanna var, að frú Ingveldur hafði í upphafi látið þrjár líters land  landabruggsflöskur inn til hins veiklaða, og í einu óráðskastinu hremmdi Handreðurinn eina flöskuna, brá stúti á munninn og svolgraði í sig sem blávatn væri. Eftir inntökuna lá sjúklingurinn rænulaus og í algerðu öngviti í hálfan annan sólarhring og var hald margra að nú væri dauðinn að fara á hið fræga mikilmenni.

Meðan Handreðurinn lá í miðstöðvarkompunni var Brynjari Vondulykt kastað inn til hans, fárveikum af kóvíði. Þó Brynjar ræfillinn væri illa heilsulaus, þá var hann hvorki rænulaus né í fullkomnu óráði. Því var það, að þegar Handreðurinn raknaði úr rotinu og batamerkin voru auðsjáanleg, þá furðaði hann sig á því, að bæði utanyfirbuxurnar, sem og nærhaldið, vóru í einum samanvöðluðum hnút niður á öklum. Brynjar Vondalykt lét sem hann væri al-saklaus af staðsetningu buxna vinar hans og svaraði honum út úr þegar hann spurði út í þessa krítísku nærbuxnastöðu. Í þeim töluðum orðum fór Indriði Handreður að kvarta og kveinka sér vegna sárra verkja á vissum stöðum, en Vondalyktin sagði honum jafnhraðan að halda kjafti. Loks var Brynjar orðinn svo leiður á voli og sífri félaga síns, að hann öskraði á frú Ingveldi, að koma undir eins og fjarlægja þennan bölvaða skítaklepra úr miðstöðvarkompunni. - Maður verður að fá að vera veikur í friði, sagði hann við frú Ingveldi, þegar hún lauk upp og gægðist inn í kompuna, dimma og illa þefjandi. 


mbl.is Sjö Íslendingar í hópmálsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

flugdólgur

Þorsteinn Briem, 18.5.2020 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband