Leita í fréttum mbl.is

Hann er ofboðslega hraustur og á sér aðeins einn jafningja í heiminum

kol27Hann Trump er svo ofboðslega hraustur, að hann þolir allt, þar með talinn kóvíð nítján sjúkdómurinn. Í því ljósi þarf hann ekki að taka inn klór og tréspíritus, en hann verður bara enn sterkari af soleiðis efnum. Nú, Trump tekur líka inn steinolíu, eitt stórt glas á dag og vöðvarnir verða eins og tvöfaldir körfuboltar að stærð. Vegna steinolíunnar fær karlinn aldrei á sig óværu.

Á Íslandi er einn Sjálfstæðismaður, sem brúkar kröftug efni til að losna við að fá sjúkdóma. Þegar hann var allt í einu kominn með bullandi krabba í kviðarholið, sprautaði hann sig í hálfan mánuð með steinolíu, en þá varð krabbinn laus og okkar elskaði Sjálfstæðismaður kukkaði honum, það kvað hafa verið ljótur hroði. Þegar hann fékk drepsóttina drakk hann lítér af salmíaksspíritusi og varð alheill. Spjátrungur nokkur ætlaði að leika salmíakslækninguna eftir honum og var andaður eftir aðeins hálft glas. 

Þó svo Trump og þessi eini Sjálfstæðismaður á Íslandi þoli lækningar eftir róttækum leiðum, er slíkt ekki á færi annarra. Eitt sinn varð Sjálfstæðismaðurinn þess var, að komið var aldeilis líf í tuskurnar hjá honum á miðvígstöðvunum, þar var allt krökkt af flatrara, þeir stærstu á við hálfvaxna könguló. Gegn þessum óvelkomna vágesti sprautaði okkar maður sig með fullri sauðfjársprautu af steinolíu og síðan strax á eftir með öðru eins af ormalyfi. Flatrörunum varð varð svo um, þegar þeir urðu áskynja um fyrrgreind efni í blóði Sjálfstæðismannsins, að þeir stukku allir sem einn frá borði og hrundu niður um buxnaskálmar hans. Annar Sjálfstæðismaður, ekki nærri eins harður og vel af Guði gjörr, reyndi bremsuvökva á sjálfum sér gegn flatrara og lét í minni pokann; varð örvita um leið og dó stuttu síðar. Gáungarnir létu bremsuklossa í kistuna hjá kallaumingjanum og þannig var hann greftraður.


mbl.is Trump tekur umdeilt malaríulyf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband