Leita í fréttum mbl.is

Með illu skal íllt út reka áður en sagan um hrunadansinn endurtekur sig

ingDjöfull er að heyra af þessari óguðlegu umgengni við Hrunalaug. Þetta er hreint heita helvíti og rúmlega það. Hefir þessi Sathans villulýður aldrei hreyt af dansinum í Hruna? Ha? Þegar sóknarbörn Hrunakirkju dönsuðu í kirkjunni þar til hún sökk? Og hver haldið þið hún hafi sokkið? Rétt til getið, hún sökk alla leið til Helvítis, þar sem púkafans Djöfulsins tóku á móti henni. Og ætla nú íslenskar fyllibyttur virkilega að gera Hrunalaug sömu skil, þ.e. andskotast í henni í skjóli nætur þar til hún sökkur með fylliskjátunum þangað sem Hrunakirkjan gamla hafnaði? Þetta er öldungis hræðilegt og nær ekki nokkurri átt.

Og svo eru það þessir landeigendur, sem kalla sig svo. Hvar er þeirra ábyrgð og árvekni? Geta þeir ekki vakað yfir sinni laug eins og allir alminnilegir menn mundu gera. Fyrir vestan var bóndi, sem hafði sona dulitla laug í túnfætinum hjá sér. Hann varð var við að einhverjar óboðnar ókindur voru byrjaðar að venja komur sína í laugina. Og hvað haldið þið að minn maður hafi gert? Jú, hann beið ofan í skurði og vaktaði laugina, og hafði haglabyssu með sér. Um tvöleytið um nóttina komu tvær drossíur, sem stoppuðu við laugina og út úr þeim stökk berrassaður lýður, rumpulýður, af báðum kynjum, örvita af ölæði, já og bílstjórarnir voru í sama ástandi líka. Varla var þokkahyskið komið ofan í laugina, þegar bóndinn hóf skothríð úr haglabyssunni sinni af skurðbakkanum á bölvaðan lýðinn. Það var sjón að sjá.

Nú, þetta kynóða fyllibyttudrasl hefði allt gert í buxurnar, ef það hefði verið í buxum, og hljóp æpandi og veinandi, blóðugt og illa útleikið undan skothríðinni í drossíurnar og brenndu í burt í loftköstum. Þetta atvik hafði aungva aðra eftirmála en þá, að hyskið kom aldrei aftur nálægt bóndanum og lauginni hans. Það fréttist reyndar skömmu síðar, að læknirinn í nágrannasveitarfélaginu hefði fengið fullt af fólki til sín með svo og svo mörg byssuhögl í líkamanum, en það var ekkert veður gert út af því og almælt var að eitt kvikindið hefði andast af sárum sínum, en það hefir aldrei fengist staðfest.
Nú skulu eigendur Hrunalaugar í Hrunamannahreppi gera bragð úr ellefta boðorðinu og sitja fyrir hinum drykkjusjúka og sóðalega lýð, sem eflaust á eftir að sýna sig aftur á þessum slóðum, og hrekja hann á brott með haglabyssuskothríð.
En vel á minnst: Af hverju heitir hreppurinn atrana Hrunamannahreppur? Var vandræðaskepnunum, sem stóðu fyrir Hruninu 2008, kannski komið fyrir þarna og sveitin látin heita Hrunamannahreppur til heiðurs hrunsmönnum?


mbl.is „Maður sér núna hverjir eru mestu sóðarnir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband