Leita í fréttum mbl.is

Bréf til jafnaðarmanna

x46Þrátt fyrir að hafa fengið krataeðlissjúkdóminn og verða hálfvitlaus til höfuðsins af honum þá var Logi vissulega of góður fyrir Samfylkinguna. Því kom það ekki sérlega á óvart þegar hægrislúbertinn og vandræðamaðurinn Össur Skarphéðinsson tók sig til á dögunum og rak Loga úr formannsstóli Samfylkingarinnar og laumaði í leiðinni nokkrum ryðbreddum út krataeðlissafninu í bakið á karlanganum, sem kiknaði við atlöguna og valt eins og blautur og úttroðinn ullarsekkur ofan í eitt illgresisbeðið í urtagarði krataeðlisins.

Nú þegar Logi er orðinn að Loga heitnum í ólofti Samfylkingarinnar, verður hans minnst sem besta formanns þess úrkynjaða safnaðar sem Samfylkingin er og verður, en það er raunar afar lítilfjörlegt afrek af hans hálfu að hafa verið heldur skárri en fyrirrennarar hans á sýndarmennskustóli krataeðlisins, því þar hafa öll sprek verið fúin, föls og gegnsósa af myglusveppum. Hvað við tekur að Loga gengnum í viðrinis- og sýndarmennskuflokki krataeðlisins, sem angar, fyrir utan annan nefískerandi óþef, af nýfrjálshyggju, hægrimennsku og NATO og ESB sleikjuskap. Samfylkingin stjórnast sem fyrr af afkáralegu hlandaulaskrumi í glimmer- og glansmyndastíl, og eins og staðan er í dag, þá falla Kvikubankaprinsessan og Dagur þreytti hvað best að hinum falska sýndarmennskuheimi krataeðlisins hvað formannsembætti Samfylkingarinnar varðar. Hinsvegar eru Helga Vala, Oddný, Mörðurinn og Illugi komin langt fram yfir síðasta söludag.

Svo segja þessi hænsni upp í opið geðið á þjóðinni eins og ekkert sé að þau séu jafnaðarmenn! Ja, sér er hver jafnaðarmennskan og jöfnuðurinn! Það er sérkennileg jafnaðarmennska að leggja lykkju á leið sína í auðvaldsbælið Kvikubanka og sækja þangað einhverja skerjagálu, mauksoðna upp úr hagfræðiórum kapítalismans, og gera hana að talsmanni jafnaðarmennsku. Nei, félagar og vildarvinir, aldrei munuð þér, eins og fótboltaþjálfarinn sagði, geta búið til kjúklingasalat út kjúklingaskít. Á sama hátt verður aldrei til neinn jafnaðarmannaflokkur úr krataeðlissjúkdómnum. Hitt er svo annað mál, að í heimi krataeðlisins merkir orðið ,,jafnaðarmaður" eitthvað allt annað en það gerði í upphafi sósíalískrar hugmyndafræði á Íslandi og það sem úrkynjaðir aumingjaflokkar á borð við Samfylkinguna og VG, sem telja sig hafa einkaleyfi á jafnaðarmennsku og sósíalisma á Íslandi, hafa borði okkur upp á hingað til er svo fyrirlitlegt og helsjúkt að lengra verður varla komist á þeirri glötunarbraut. 

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband