Leita í fréttum mbl.is

Hún er alin upp við fótskör frú Ingveldar og miklar vonir bundnar hana við

xdVissulega er Andrína Sigurðardóttir alin upp við fótskör frú Ingveldar og hefir drukkið ótæpilega af viskubrunni hennar og Brynjars Vondulyktar. Hún er því, þessi veleðla dama, nokkuð vel að því komin að ná kjöri sem formaður Hvatar; og þó hún sé í sjálfu sér ikke neinn ekkisins Íslandsmann, þá er hún, fanen gali mæ, hámenntuð til starfans eftir að hafa u árabil verið lærasveinka frú Ingveldar.

Hér fyrr á árum var frú Ingveldur lengi vel formaður Hvatar og Brynjar Vondalykt var hennar varformaður, eða forkona. Svo tók frú Ingveldur djúpríki Sjálfstæðisflokksins yfir og tók framsóknarmanninn Kolbein Kolbeinsson frillutaki og komst inn á gafl hjá samvinnuhreyfingunni og lét forkólfa hennar ganga af þessum vonarpéníngi Hriflu-Jónasar dauðum; það var gifturík aðgerð, sem allir er máli skiptu græddu á. Og enn á ný hefir frú Ingveldur útskrifað efnilega gróðamaskínu til formennsku í Hvöt og sannar þar með að hún er meiri en Óli Thors, Gamli-Bjarni, Davíð og Bjarniben til samans.

ing24Það verður gaman að fylgjast með hvað Andrína Sigurðardóttir tekur fyrst til bragðs eftir að hafa verið kjörin formaður Hvatar að undirlagi frú Ingveldar. Líklegast er að hún helli sér í brennivínið eins og aðrir efnilegir Sjálfstæðismenn á framabraut og berjist hatrammt fyrir alfrjálsri brennivínssölu og réttindabaráttu sprúttsala. Þá hljóta mannréttindi sægreifa og útgerðarkónga hinni nýju Hvatarskjóðu afar hugleikin, því fáir hafa lagt annað eins til þjóðfélagsins eins og þeir góðu menn, þókt þeir hafi fátt annað borið úr býtum en íllt umtal, hefndarlýgi og dauðans rógburð alþýðunnar og trillukarla. Þá héld ég hún ætli sér að vinna að ærlegri uppreist Brynjars Vondulyktar og beita sér fyrir að af honum verði sem fyrst gjört líkneski, fimm metra hátt er standi á fimm metra stöpli á miðjum Austurvelli og horfi fránum augum að innganginum að hádegisbarnum á Hotél Borg og myndi þar með jafnvægi í heildarmynd Austurvallar við þann eirslegna Jón Sigurðsson, sem látinn er stara valdsmannslega á fávitahælið við völlinn.


mbl.is Andrea Sigurðardóttir nýr formaður Hvatar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband