Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarsamherjar og Saleksdætur valdríkisins

verko7Hverjum skal hafa dottið í hug gera framsóknarsamherjann Björn Snæbjörnsson á Akureyri að forseta Alþýðusambandsins? Ef það er rétt, að einhverjir á ASÍ þinginu séu svo veruleikafirrtir, að maður segi ekki innilega lausir við að vera verkalýðssinnar, að ætla sér að gera framsóknarsamherjann að forseta, þá væri þeim hinum sömu alveg eins trúandi til að reyna gera Þorstein Má, eða kaupfélagsstjórann mikla á Sauðárkróki, að forsetum Alþýðusambandsins. Eða er þetta bara grín einhverra spaugara sem langar til að draga upp fáránleka þess að framsóknarsamherjar og Saleksdætur fari með öll æðstu embætti í verkalýðshreyfingunni?

old_1241490.jpgEn þetta er allt í lagi. Alþýðusamband framsóknarsamherjanna, kratanna, íhaldsins og auðvaldsþjóðskipulagsins er hvort eð er komið að fótum fram og Björn Snæbjörnsson, Halldóra Saleksdóttir ásamt hjálparkokkum frá krataframsóknaríhaldinu eru þegar lögð af stað með hræið á ruslahauga sögunnar. Á ruslahaugum sögunnar munu hinir undirförulu varðhundar auðvalds og óbreyttrar stéttaskiptingar og óbreytts þjóðskipulags, sem lengi hafa ráðið lögum og lofum innan íslenskrar verkalýðshreyfingar, una sér vel við leik og starf á ruslahaugunum og falla eins og flís við rassgat inn í hrjóstrugt og einkennilega lyktandi umhverfi haugana, innan um annað sorp.

kötturJá, félagar, það er alveg sama hvað undirlægjur valdsins í verkalýðshreyfingunni taka sér fyrir hendur héðan af, það verður ekki tekið meira mark á þeim en skítugum og grimmum flækingshundum, sem hafa lífsviðurværi sitt af því að bíta fé bænda og laumast inn í hænsnakofa gamalla kvenna og drepa fyrir þeim hænurnar. Já, Björn Snæbjörnsson framsóknarsamherji að norðan og þínir sálufélagar í undirförulum verkalýðsrekstri, við þekkjum rýtinginn sem þú og þínir rákuð í bakið á Birni Grétar formanni Verkamannasambandsins; og við vitum líka þið hafið í áratugi verið vakandi og sofandi við að lauma þessu bitjárni ykkar í bakið á öllum, sem þið hafið talið að ykkur og auðvaldinu, sem á ykkur, stafi ógn af. Íslensk alþýða verðskuldar ekki að hafa lítilmótleg lubbamenni á borð við ykkur á launum hjá sér, launum sem þið hafið komist upp á lag með að skammta ykkur ríflega á síðari árum. 

 


mbl.is Hyggst ekki gefa kost á sér í embætti forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband