Leita í fréttum mbl.is

Laugardalsdóninn er bróðursonur Hvassaleitisdónans og báðir eru af tignum ættum

perEkki er þetta nú vel gott. En kemur samt ekki öllum á óvart. Náunginn sem lék þann ljóta leik að bera sig framan í grandalausa Þróttara heitir Kolfinnur Kolfinnsson og er bróðir Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns og er þar með mágur frú Ingveldar. Þá þarf vart að taka fram að Laugardalsdóninn er náfrændi Hvassaleitisdónans, sem var á sveimi í eina tíð; Hvassaleitisdóninn, sem nú dvelur í hárri elli á Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna, er sem sé föðurbróðir þeirra bræðra Kolbeins og Kolfinns.

Einusinni var Brynjar Vondalykt gómaður við samskonar iðju og Laugardalsdóninn gerðis sekur um. Og þrívegis í það minnsta hefir Kolbeinn Kolbeinsson verið tekinn úr umferð fyrir groddalega blygðunarsemisglæpi, sem hann fram þegar hann var að slangra heim um miðmorgun eftir að hafa tekið þátt í viðbjóðslegu hórsvalli með dreggjum þjóðfélagsins, sem teljast þó á tyllidögum til betri borgara landsins. Það var í eitt af þessum skiptum sem hundurinn beit hann í hreðjarnar svo stór sá á. Eitt sinn ráfuðu þeir félagar, Kolbeinn og Indriði Handreður, maður Máríu Borgargagns, stefnulaust og í mikill vímu um götur höfuðborgarinnar og höfnuðu loks fyrir tilviljun inni á heimili orðlagðra pervertshjóna. Etir þann atgang var Handreðurinn tekinn fastur af lögreglu úti á götu og færður Hálfdáni Varðstjóra til yfirheyrslu og meðhöndlunar.

perrÞannig getið þið séð, lesendur góðir, að ýmsir mektarmenn hafa komist í kast við lögin vegna ósæmilegrar hegðunar og nektaráráttu á almannafæri, þannig að ykkur er óhætt að fara varlega í fordóma gagnrýni á Laugardalsdónann og Hvassaleitisdónann og telja að þeir séu þeir einu sem hafa stundað flass, gluggagægjur og óviðurkvæmilegar nektarsenur þar sem börn og gamalmenni hafa séð til þeirra. Ekki þarf að taka fram að Kolfinnur Kolbeinsson er öfgafullur framsóknarmaður og hefir oftsinnis leikið listir sínar á framsóknarþingum. Svo var hann ásakaður um að hafa gjörst full-nærgöngull, í kynferðislegum skilningi, við gömlu Framsóknarmaddömuna, hvar hún lá í flatsæng sinni og var að ylja sér innvortis með volgu ákavítisbrennivíni, sem hún hafði blandað kogara út í. Þetta atvik varð til þess að ráðsmaður Framsóknarfjóssins barði Kolfinn eins og hund og velti honum upp úr flórnum. Af þessum ástæðum reiddist Kolfinnur, yfirgaf Maddömuna og Fjósið og gekk í Klaustur-Miðflokkinn þar sem hann gefur gert verðskuldaða lukku.


mbl.is Dæmdur fyrir að bera sig á æfingasvæði Þróttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband