Leita í fréttum mbl.is

Ingveldur og eilífðin.

- Já, það er nú þetta með sálina og eilífðina, sagði Kolbeinn við köttinn sinn hann Brand og röri fram í gráðið, en kötturinn Brandur sperrti eyrun. - Tökum til dæmis hana Ingveldi okkar hérna, hélt Kolbeinn áfram, - ekki gefur hún tilefni til bjartsýni á tilveru eða tilveruleysi sálarinnar. En hvað eilífðina varðar, þá má sú skepna sigla sinn sjó ef hún er ætluð Ingveldi líka til jafns við okkur hin. Þá reis Brandur á fætur og ygldi sig og leit síðan upp á Kolbein þýðingarmiklu augnaráði. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband