Leita í fréttum mbl.is

Peningageðsýki, kannabis og kókaín.

Þegar ég las þessa frétt fór ég að velta fyrir mér hvort kannabisnautn auki hættuna á peningageðsýki, sem er eins og margir vita mjög hættulegur og kvalafullur sjúkdómur. Samkvæmt yfirsýn okkar bestu sérfræðinga hefur tíðni peningageðsýki aukist svo mjög hin síðari ár, að hægt er að tala um alvarlegan faraldur. En það er ekki þar með sagt, að hægt sé að skrifa þessa tegund geðkvilla að neinu leyti á kannabisneyslu þeirra sem tekið hafa sjúkdóminn. Hinsvegar leikur grunur á, að alsiða sé orðið meðal betri borgara, einkum nýríkra, að svæla kókaíni upp í nasirnar á sér í tíma og ótíma til að verða hressari og hressari og samkvæmishæfari og klárari í verslun og viðskiptum. Nú ætti það að verða verkefni okkar hæfustu vísindamanna, að rannsaka ofan í kjölinn samspil peningageðsýki og eiturnautnar af hvaða tagi sem er. Og við skulum ætíð hafa hið fornkveðna í huga, ,,að margur verður af aurum api," sem sannar að menn hafa lengi vitað um tilvist peningageðröskunar.  
mbl.is Kannabisneysla eykur hættuna á geðsjúkdómum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Alltaf verður mér glatt í geði þegar hinir meðvirku bræður peningageðsjúklinganna taka sig til bregða gagnrýnendum auðhyggju og græðgisvæðingar um öfund. Mér er aftur á móti fullkunnugt um sjúkelga öfund ,,hinna ríku" hvers í annars garð.

Svo er það það náttúrlega alrangt, að peningageðsjúklingarnir skapi einhvern auð. Eðli peningageðsýkinnar er að stunda arðráð, og arðræningjarnir eru þar af leiðandi, hvimleiðar afætur í jakkafötum. Þeir sem skapa auðinn í raun og veru er verkafólkið. Þeir sem ekki sjá það eru einfaldlega andskoti blindir, en hinir sem ekki vilja sjá það eru auðvirðileg fúlmenni til sálarinnar.

Jóhannes Ragnarsson, 27.7.2007 kl. 11:22

2 Smámynd: halkatla

Go Johannes

halkatla, 27.7.2007 kl. 11:37

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Dharma og Jóhannes!

Mér verður næstum óglatt að lesa öfgarnar ykkar í millum.

Hafið þið ekki heyrt talað um, „Allt er best í hófi“ Ég hrökklaðist burt frá vinstri, vinstri pólitíkinni þegar Steingrímur tapaði fyrir Margréti forðum.  Þessi málflutningur er svo ýktur að manni verður illt.  Þessi sterku og ýktu lýsingarorð, gera það að verkum að þessi stefna vinstri grænna, verður ótrúverðug.  Síðan þessi dónaskapur í Dharma, hvernig hann óvirðir skoðanir annarra og talar um „landsbyggðartúttur“. Strákar, hlustið á nöfnu mína Sólrúnu.  Hún ber virðingur fyrir öllum, konum og köllum, í öllum stéttum þessa lands, óháð búsetu.  Kærar kveðjur til ykkar beggja.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.7.2007 kl. 11:38

4 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Já hlustum á Sólrúnu og hennar lið

Þórdís Bára Hannesdóttir, 27.7.2007 kl. 12:09

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Svei mér þá, Ingibjörg, ef þú ert ekki ekta framsóknarmaður, eða öllu heldur framsóknarkona.

Jóhannes Ragnarsson, 27.7.2007 kl. 13:55

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Komin af góðu Framsóknarfólki í aðra og Allaböllum í hina.  Takk fyrir mig, þegar ég tek það besta frá báðum er útkoman glæsileg og ég styð Samfylkinguna undir forystu Ingibjargar Sólrúnar.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 27.7.2007 kl. 15:34

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þakka þér fyrir áhugann á pistinum Guðleifur og athugasemdum honum tengdum.

Það kemur mér vissulega spánskt fyrir sjónir þegar menn láta sem þeir viti ekki hvaða störfum verkafólk gegnir. Sé raunin sú Gunnleifur, að þetta atriði hafi farið framhjá þér, vil ég benda þér á að heimsækja einhverja vinnustaði, t.d. fiskverkanir og byggingarfyrirtæki og vita hvort þú finnur ekki þá hina þér framandi tegund, verkamann. 

Það sama er að segja þegar menn þykjast ekki vita hvað arðrán er og láta sem þeir búi í stéttlausu þjóðfélagi þrátt fyrir að staðreyndirnar um annað hrópi að þim úr öllum áttum.

Ég hef tekið eftir því, í gegnum tíðina, að auðvaldssinnar grípa oft til þess óyndisúrræðis þegar lífshugsjón þeirra er gagnrýnd, að brigsla gagnrýnandanum um biturð eða öfund og telja sig þar með vera búnir að koma þeim stipli á hann, að þar fari misheppnaður  eða bilaður einstaklingur sem enginn heilvita maður eigi að taka mark á.

Jóhannes Ragnarsson, 27.7.2007 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband