Leita í fréttum mbl.is

Ónotalegt dauðastríð gamallar konu

Heldur virðist heilsa blessaðrar Framsóknarmaddömunnar fara hrakandi, enda níræð orðin, fótfúin og hjartveik. Svona lagað er kallað öldrunarsjúkdómar og eru, einsog dæmin sanna, illviðráðanlegir og eiga það sameiginlegt að enda allir á sama veg. Ofan á áðurnefnda öldrunarsjúkdóma hefur svo gamla maddaman mátt stríða hin síðari ár við skæðan iðrasjúkdóm sem virðist öðru fremur ætla að fækka nokkuð hérvistadögum gömlu konunnar. Nú síðast lagðist Maddaman í lokrekkju sína með heiftarlegt iðratak og hefur ekki getað fylgt fötum síðan. Það sem lagði þá gömlu öðru fremur í bólið að þessu sinni og olli iðratakinu var að innanmeinið Guðjón Ólafur, fyrrumþingmaður, tók sig til og skrifaði bréf í sínum anda í þúsundatali sem hann spúði síðan eins og skítadreifari út um allan framsóknarlíkamann. Auðvitað hefur innspýting af þessu tagi eiturverkandi áhrif á gamlan kropp. Og er nú svo illa komið að meira að segja elsku drengurinn Björn Ingi Borgarfulltrúi er kominn á fremsta hlunn með strjúka út um taðhúsdyrnar á haughúsi Framsóknarfjóssins og yfirgefa þar með Maddömuna níræðu á ögurstund. Og víst er um það að Maðurinn Með Ljáinn er farinn að stjákla óþolinmóður um á fjósstéttinni Framsóknar, þess albúinn að líkna gömlu konunni.       
mbl.is Björn Ingi úr Framsóknarflokki?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég var rétt í þessu að ljúka við að hlusta á gleðiríkt viðhafnarviðtal Egils Helgasonar við Guðjón Ólaf fyrrumþingmann Framsóknar. Í viðtalinu kom fram, að Guðjón Ólafur er ekki meinsemd í líkama gömlu Framsóknarmaddömunnar. Og, að Guðjón Ólafur hefur ekkert til sakar unnið annað en að koma Birni Inga fyrir í iðrum Maddömunnar. Ennfremur: að Guðjón Ólafur ber aungva ábyrgð á að Björn Ingi umventist, á hálfum mánuði að mér skilst, í illkynja meinsemd sem er um það bil að leggja konuna í gröfina.

Það er því engin furða að Björn Ingi gangi þessa dagan um með bros á vör og söngli stöðugt fyrir munni sér ,,Allt eins og blómstrið eina" sem er sannast sagna söngur sem fátítt er að fólk hafi yfir dags daglega við vinnu sína.

Jóhannes Ragnarsson, 20.1.2008 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband