Leita í fréttum mbl.is

Skapvond eins og Hanna Birna?

konaNú er semsé komið uppúr dúrnum að kerlingin Pelosi þjáist af fúlli skapvonsku, sem brýst úr í heimsku og illkvittni, auk siðgæðis í aumari kantinum. Þetta sýnir, svo ekki verður um villst, að frú Pelosi er alvöru stjónmálakvendi og gæti, sökum eðlislægra eiginleika sinna, setið í ríkisstjórn Íslands.

Og ekki má heldur gleyma, að Reykvíkingar geta státað af skemmtilega skapvondum forseta borgarstjórnar, sem er einkar ljúft að setja í brýrnar og rífa sig ofaní rassgat yfir hverjum pólitískum tittlingaskít sem á fjörurnar rekur.  


mbl.is Segja Pelosi skapvonda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Svavars

„Mannréttindalöggur eins og Pelosi eru venjulega skapvondar og illkvittnar í garð Kína. Þær neita að kynna sér staðreyndir og fara með rétt mál,”

Það er spurning, þó auðsvöruð sé, hvort þetta segi meir um Pelosi eða Xinhua opinberu fréttastofu kínverskra yfirvalda og þar með kínversk yfirvöld.

Hilmar Svavars, 23.3.2008 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband