Leita í fréttum mbl.is

Úrkynjuð verkalýðsforysta - enginn verkalýðsflokkur

hnefikapÞað bærast eflaust blendnar tilfinnigar í brjóstum margra íslendinga í dag ,1. maí, baráttudegi verkalýðsins - ekki síst hjá verkalýðnum sjálfum. Og ekki að undra. Á meintum baráttudegi verkalýðsins býr verkalýðsstéttin á Íslandi við þá undarlegu stöðu að standa uppi forystulaus og allslaus til sjós og lands. Stéttarfélög verkafólks eru um þessar mundir því miður meira eða minna nafnið tómt, enda lúta þau að langmestu leyti yfirstjórn hugsjónalausra möppudýra og auðvirðilegara handlangara úr smiðju auðvaldsins. Það er nöturlegt, að í dag, 1. maí á því herrans ári 2008, sé mest aðkallandi baráttumál verkalýðsstéttarinnar að losna undan ánauð fólks, sem notfært hefur sér samtök láglaunafólks til að olngboga sig upp að háborði borgarastéttarinnar.

Og ekki er ein báran stök. Ekki einasta býr verkalýðsstéttin við handónýta og svikula forystu samtaka sinna; á hinum pólitíska vettvangi á hún heldur ekkert athvarf eða málsvara. Það má heita stórmerkilegt, að á Íslandi nútímans skuli ekki vera til neinn verkalýðsflokkur, ekki síst þar sem verkalýðsstéttinni tilheyra a.m.k. 50.000 manns í 300.000 sálna samfélagi. Það er staðreynd að stjórnamálaflokkarnir, sem stundum vilja kenna sig til vinstri, VG og Samfylkingin, vilja ekkert með verkalýð hafa, hvað þá verkalýðsbaráttu. Í mínum huga eiga þessir flokkar ekkert tilkall til að kalla sig vinstriflokka - þetta eru í besta falli föndurklúbbar fyrir snobbaðar menntastéttir og hégómagjarna metorðasjúklinga.

Það er mál til komið að róttækasti hluti verkalýðsstéttarinnar setjist niður og ráði ráðum sínum. Við núverandi ástand verður ekki unað til langframa.


mbl.is Kröfugöngur víða um heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Kvitta hér með. Mikið til í þessu hjá þér.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 1.5.2008 kl. 15:40

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Flottur pistill og mikið til í þessu, um þetta skrifaði ég í morgun sjá hér.

Hallgrímur Guðmundsson, 1.5.2008 kl. 19:58

3 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Er við því að búast að verkalýðsforystan sé spræk ef aðhaldið og áhuginn frá grasrótinni er ekki meiri en er? Gerir forystan nokkuð annað en að endurspegla sinnuleysi almennings, sem vill frekar horfa á Spaugstofuna en að mæta á fund? Hvað kom fyrst er kannski spurningin um eggið og hænuna, ég skal ekki segja um það. Hitt er hárrétt hjá þér að hvorugur krataflokkurinn stendur undir því að geta kallast verkalýðsflokkur. Í því sambandi vil ég benda á 1. maí-ákall Rauðs vettvangs.

Vésteinn Valgarðsson, 2.5.2008 kl. 02:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband