Leita í fréttum mbl.is

Eldrauð- og bláþrútin af rembingi

illÓjá, ég verð þeirrar hamingju aðnjótandi að sjá stykki íslendinga í Belgrad í kærkvöldi. Og það var nú aldeilis sjón að sjá! Þar gaf að líta piltkornið Fríðrik Ómar bláþrútin í framan af rembingi við að emja uppúr sér lagleysuna sem íslendingum þóknast að bera á borð evrópubúa að þessu sinni.

Ekki gaf söngkvendið, sem ég man ekki lengur hvað heitir, Fríðriki Ómari neitt eftir í rembingi og var á lokatónunum orðin alveg jafn rauð og bláþrútin í framan og hann. Þetta var að mínu mati sannkölluð úrvals skemmtun og ég ætlaði aldrei að geta hætt að hlægja að persónum og leikendum í íslenska númerinu í Belgrad. Og ég er handviss um að ég á eftir að grenja af hlátri annaðkvöld þegar Fríðrik Ómar og fylgikona hans stíga á svið og orga ,,This is my life!"


mbl.is Ísland komst loks í úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband