Leita í fréttum mbl.is

Rigitig godt knald verður að reiðarslagi

reiðarslagÉg hefi lengi verið afar hræddur um að fólk kynni að freistast til að fá sér rigtig godt knald í gufubaði þar sem þessháttar óábyrgt framferði gæti haft hræðilegar afleiðingar í för með sér. Nú er komið á daginn að illar grunsemdir mínar um þetta spurmál eiga við fullar röksemdir að styðjast. Að framansögðu ætti engum að koma á óvart þó hin heimsku hjón, Davíð Dukk eitthvað og kerling hans, hafi verið hætt komin þegar þau féllu í holdlega freistingu í gufubaði, sem lauk með því að kerlingin andaðist hér um bil af reiðarslagi við uppátækið þegar hæst stóð í stönginni. Annað heimskt fólk ætti að láta sér brotlendingu Davíðs og Teu sér að kenningu verða og láta aldrei undan fryggðartilhneigingum sínum þegar sjóðheit gufa er annarsvegar. Þá á fólk heldur aldrei að láta eftir sér að míga í gufubaði því það hefir pirrandi áhrif á aðra sem í baðinu eru.  
mbl.is Ástaratlot í gufubaði enduðu með yfirliði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband