Leita í fréttum mbl.is

Silkihanskarnir, Kaupþing og menntamálaráðherrann

Finnur og ÓliÓjá, hann var býsna góður með sig, eftir atvikum, gullkálfurinn Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, í Kastljósinu í kvöld enda vel í holdum eftir alla bónusana sem hann hefur verðlaunað sjálfan sig með fyrir frábæran árangur í fjármálabralli. Og fréttamannssniptirnar sem sátu andspænis þessum mikla manni voru aldeilis með á nótunum og gerðu allt sem var í þeirra valdi stóð til að styggja ekki höfðingjann með óviðeigandi spurningum. Eitt af því sem víst er í veröldinni þessa stundina er, að holdgerfingar græðgisvæðingarinnar eiga ekki nokkurn skapaðann hlut inni sem kalla á að tekið sé á þeim með silkihöndum, hvorki af fréttamönnum né alþýðu manna á götunni. Þess vegna er ekki hægt annað en að spyrja hvernig á því stóð, að Sigmar og Jóhanna í Kastljósinu voru eins og skömmustuleg pelabörn andspænis einum að þeim drengjum sem hvað drýgsta ábyrgð ber á efnahagshruninu á Íslandi.

Niður á Alþingi tók Helgi Seljan kastljóssviðtal við frú Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Það vakti dálitla furðu (og þó ekki) hvað frú menntamálaráðherra tók spurningu Helga um fyirgreiðslu Seðlabankans við Kaupþing í dag illa upp. Frúin bókstaflega sneri uppá sig með hroka og derringi eins og fyrirgreiðslan við Kaupþing snerti hana á einhvern leiðinlegan hátt. Því vakanar spurningin: Er menntamálaráðherrann eitthvað tengd Kaupþingi og þá hvernig? 


mbl.is Staða Kaupþings býsna góð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef mig misminnir ekki þá er Kristján Arason, eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, einn af stjórnendum Kaupþings, kannski er þar komin ástæða þess að þetta mál er svona viðkvæmt?

Jóhann Elíasson, 6.10.2008 kl. 20:51

2 Smámynd: Hvítur á leik

Fjandakornið. Það hlýtur að vera hægt að ræða við hana um t.d. Kaupþing. Hún ÞKG er bara bölvuð trunta og á að snúa sér að allt öðru. Svo á um alla ríkisstjórnina sem er búin að haga sér eins og asni í þessum málum.

Ekki gleyma þætti Davíðs Oddssonar og einkavini hans hjá Glitni. Félaginn fékk heimsókn frá draug sem sagði honum að selja fyrir umbjóðendur sína, strax, í öllu er varðar Glitni?!?

Davíð er með svo ljótt í pokahorninu, svo og þessi ríkisstjórn, að það, því miður, mun ekki vinnast tími né rúm til að rannsaka það allt saman.

Það er bara ein von sem hægt er að hafa og það er að þjóðin muni eftir þessum harmleik, og hver það var sem svaf á verðinum og reddaði sínum mönnum og fólki. s.b. Kaupþing!

Hvítur á leik, 6.10.2008 kl. 20:56

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þetta hefur verið alveg tryllingslegt samrúnk tilfinningaklámhunda í dag og þjóðrembu og guði verið blandað saman við það í ógeðslegan graut. Allt er þetta til að leiða athyglina frá algjöru hruni krónunnar síðasta árið og hrikalegri kjaraskerðingu og eignaupptöku sem því hefur fylgt og mun gera áfram.

Baldur Fjölnisson, 6.10.2008 kl. 20:58

4 Smámynd: Hvítur á leik

Eitt annað! Getur verið að menntamálaráðherra, hafi beðið Pál Magnússon að vera segja Helgja Seljan og fl. að hafa sér eins vel og spyrja bara þess er kemur henni vel fyrir?

Tengingin er allstaðar afar óeðlilegt og krefst nýs ríkisstjórnar og helst kosninga!

Hvítur á leik, 6.10.2008 kl. 20:58

5 Smámynd: Hvítur á leik

Sammála þér Baldur. Guði var blandað í þennan skítagraut.... Helvítis rugl sem það nú er.

Verst er þó að við, almúginn, þarf að éta þennan graut næstu daga. Hvort Guð verði með í mat, er annað mál! Bið ég þá Jesú að koma, því það fer að vanta fisk og brauð.

Hvítur á leik, 6.10.2008 kl. 21:00

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Núna er það alvarlegasta í stöðunni að fyrirtæki hafa í raun takmarkaða verðhækkanamöguleika vegna gífurlegrar kjaraskerðingar og skuldsetningar viðskiptavina þeirra. Þau hafa því erfitt val; að fara á hausinn á vonlausum verðum eða skera niður kostnað það er segja segja upp fólki. Og fólk sem hefur stórkostlegar skuldbindingar og kostnað má ekki við neinu. Það rúllar strax á hausinn dragist tekjurnar saman. Það er létt í vasa að einhverjir pólitíkusar, sem ekkert hefur verið að marka á meðan gjaldmiðillinn hrundi, lofi að bjarga öllum. Við eigum núna að snúa bökum saman um að halda þessu gjörónýta liði við völd og ef nógu margir gleypa við því munum við sem sagt fá það áfram ómælt og ósmurt í endann. Góðar stundir.

Baldur Fjölnisson, 6.10.2008 kl. 21:58

7 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hagkerfi sem er mjög drifið af skuldapappíraframleiðslu eins og það íslenska mótast einnig af margskonar þjónustustarfsemi (mestöll framleiðsla er fyrir löngu komin til Kína) og er því vinnumarkaðurinn afar brothættur. Mikið af kerfinu byggist á fáránlegri þjónustuvitleysu hvers við annan sem kannski meikar semiséns á meðan skuldakeðjubréfin hreyfast en þegar saman dregur þá spara menn skiljanlega fyrst við sig hundafatahönnun og árulækningar og annað í þeim dúr og það þýðir að heilu atvinnugreinarnar í þessum sýndarveruleika hrynja gjörsamlega með alvarlegum afleiðingum. Við þurfum að rífa okkur upp úr tilgangslegu tilfinningaklámi og þjóðrembu og guddakjaftæði og ræða raunveruleg málefni og atvinnu og hagsmuni fólks. Annars er voðinn vís. Lifið heil.

Baldur Fjölnisson, 6.10.2008 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband