Leita í fréttum mbl.is

Siðbótarmaður skítur í kassann sinn

piss1Þegar menn hafa komið sjálfs sín hlutum þannig fyrir að þeir eru ekki einusinni gjaldgengir til að gegna embætti ráðherra er það á góðri íslensku kallað, að hafa skitið í kassann sinn" eða ,,sósuna sína."

Nú er orðið heyrinkunnugt að hinn kratíski siðbótarmaður Lúði Bergwinc kom ekki til greina sem ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms J. af því hann hafði fyrr á lísleiðinni gert sér hægt um vik og skitið í kassann sinn, já og víst sósuna líka.

Það má heita dálagleg hneysa fyrir einn sperrtan siðabæti á besta aldri, sem oft á umliðnum árum hefur margsinnis beinlínis ljómað af vandlætingu í garð spilltra manna og kvenna, að sitja í súpunni, eða sósunni, stimplaður í bak og fyrir sem viðskiptalífsmaður og þar með öldungis óhæfur til að sinna nokkru verkefni fyrir íslensku ríkisstjórnina.

Úr því sem komið er, er víst fátt í spilunum fyrir falsspámanninn L. Bergwinc annað, eftir að þingstörfum líkur síðar í vetur, en að gerast pólitískur umrenningur og utangarðslimur ásamt fleiri núverandi þingmönnum sem einnig munu þurfa að hrökklast út á eyðimörkina.      


mbl.is Fjármál Lúðvíks komu í veg fyrir ráðherrastól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Lárus Pálsson

Hvers lags dómadags rugl og eyðimerkurkjaftæði er þetta? Á hverju ert þú eiginlega?? Ótrúlegt að menn séu alls gáðir við að senda við að semja svona hugverk til að senda fyrir almenningssjónir. Hvaða hvötum er verið að fullnæja með svona orðskrúði er erfitt að skilja. Slakaðu nú aðeins á og jafnaðu þig!!?

Stefán Lárus Pálsson, 7.2.2009 kl. 22:01

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nú hefir þú sannað, svo um munar, Stefán Lárus Pálsson, að þú ert manna sljóastur. Væri og ráð fyrir þig að ganga fullnægingarerinda þinna í Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna, þá yrði dýrð þín fullkomnuð.

Jóhannes Ragnarsson, 7.2.2009 kl. 22:16

3 Smámynd: eir@si

Af hverju í óskupunum segir þú: "... ekki einusinni gjaldgengir til að gegna embætti ráðherra" ?  Hann getur alveg verið gjaldgengur til að vera þingmaður þó hann hafi eitthvað klúðrað sínum fjármálum þannig að ekki sé heppilegt að hann sé ráðherra.

Og hvers konar bull er það að gefa í skyn að allir sem hafi klúðrað sínum fjármálum sé eitthvað spilltur?

Ef einhver gjaldþrota einstaklingur tæki að sér að vera ráðherra og hafnvel freistaðist til að nýta sér aðstöðu sína þá væri það spilling.  Eftir því sem ég skil fréttina þá má saka Lúðvík um klaufagang, einhverja fjárgæframennsku, óheppni, klúður og líklega heiðarleika en alls ekki spillingu.

En þú veist kannski eitthvað mikið meira en allir aðrir.

eir@si, 7.2.2009 kl. 22:23

4 Smámynd: Stefán Lárus Pálsson

Jóhannes, ekki batnar nú röksemdafærslan, eða hugmyndafræðin! Gáfnafar manna er ekki á dagskrá í þessu dæmi, utan það sem menn flagga sjálfir með óviðeigandi orðskrúði um menn sem engin sök hefur verið sönnuð hjá. Að vera alltaf tilbúinn að ætla náunga sínum allt það versta, er engum til vegsauka. Sagt var forðum á viðkvæmri stund: " Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum", og eingum steinum var kastað þann daginn að bersyndugu konunni. Tökum það til fyrirmyndar!

Stefán Lárus Pálsson, 7.2.2009 kl. 22:48

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Gjaldgengur eða gjaldgengur ekki, það er heilmikið álitamál, eir@si, og þó... Lúði Bergwinc minnir dálítið á prest, sem gengur hempuklæddur um götur á daginn svo allir geti séð dýrð hans, en stundar fjárhættuspil á kvöldin.

Það má að sönnu satt vera, Stefán Lárus, að herra Bergwinc verskuldi ekki orðskrúð. En hinsvegar finnst mér afar smekklaust af þinni hálfu að yfirfæra söguna af bersyndugu konunni yfir á berrassaðan mann með rautt liðað hár. Það er álíka gáfulegt og að halda því fram að fugl sé fiskur eða svartbakur sauðkind.

Jóhannes Ragnarsson, 8.2.2009 kl. 09:18

6 Smámynd: Stefán Lárus Pálsson

Smá leiðbeining JR. Í Sögunni af bersyndugu konunni er það ekki konan sem er gerandinn, þó hún væri ásökuð um ósiðlegt athæfi, heldur þeir sem "fullir réttlátrar reiði" ætluðu að grýta hana í hel, en höfðu þó trúlega haft af henni náin kynni, velflestir! Þessir Júðar forðum fundu enga sekt hjá sér þess vegna, og þóttust hjartahreinir, og þess umkomnir þess að grýta syndarann, þorpshóruna. Um háralit eða klæðaburð er ekki getið. Svo gengur Kristur fram á þessa "réttlátu" menn sem tóku sunnudaginn í þetta, sá í gegnum þetta og setti fram þessa sígildu athugasemd. "Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum". Mönnum brá og málið var dautt! Enginn af okkur er gallalaus,ekki prestar heldur, og þó þeir grípi í spil í sínum frítíma, telst nú varla stórsynd. Hver hefur nú ekki gert slíkt sér til gamans? Um kunnáttu þína í dýrafræði ætla ég ekki fjalla hér frekar en þú hefur þegar gert!

Stefán Lárus Pálsson, 8.2.2009 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband