Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
23.10.2007 | 18:15
Vatnsgreiddi jakkafatasteggurinn og OR
Auðvitað er fráleitt að Bjarni Ármannsson geti selt þennan svo kallaða hlut sinn í REI á einu verði eða öðru. Það sem Orkuveitan á absólút að gera í stöðunni, er að taka umræddan hlut af þessum vatnsgreidda jakkafatastegg því hann hefur ekkert, segi og skrifa: akkúrat ekkert við þennan hlut að gera, og leyfa honum að finna á eigin sarpi hvað græðgisbrask getur haft í för með sér. Óhætt er að fullyrða, að fólk er búið að fá nokkuð umfram nóg af umsvifum peningakrókódílanna, sem vaðið hafa um þjóðfélagið þvert og endilangt og gleypt í sig allt sem tönn á festir.
Segja rangt að Bjarni geti selt hlut sinn í REI á sama verði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2007 | 14:58
Bak við lás og slá
Ég veit ekki hvernig á því stendur, en alltaf þegar ég les fréttir um að mafíudólgar hafi verið handteknir, detta mér einlægt í hug stórkvótaeigandi sægreifar og nýríkir hlutabréfabraskarar. Ég sé meira að segja suma þessara karla fyrir mér, járnaða á höndum og fótum, veltast um á skítugu fangaklefagólfi. Og mikið verð ég glaður þann dag, sem þessir ónáttúrupésar verða komnir á bak við lás og slá, því þar eiga þeir svo sannrarlega heima.
11 félagar í mafíunni handteknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.10.2007 | 12:55
Kominn heim frá Prag - Fréttatilkynning
Þá er ég, ásamt 32. manna sendinefnd, kominn heim frá Prag, eftir að hafa keypt ráðandi hlut í í hinni virtu samsteypu, Prostitution Energy Limited. Kaupin gengu hratt og vel fyrir sig eftir að valinkunir sómamenn höfðu sannreynt eignir og vörubirgðir fyrirtækisins. Áætlað er að Prostitution Energy Limited setji upp útstöð á Íslandi fyrir áramót. Ekki er enn ákveðið hvar útstöðin verður staðsett, en verið er að kanna aðstæður í Vogum á Vansleysuströnd eða jafnvel á Hellu á Rangárvöllum. Þá koma Kirkjubæjarklaustur og Suðureyri við Súgandafjörð vel til greina. Ekki er að efa, að þetta útrásarverkefni verður mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið og hagkerfið á Íslandi. En fljótt á litið mun starfsemi þess skila um 3000 störfum á ársgrundvelli í framtíðinni.
17.10.2007 | 18:01
Áríðandi tilkynning til lesenda minna á blogginu
Í fyrramálið, árla mjög, held ég, ásamt 32. manna sendinefnd úr atvinnulífinu, af landi brott og er förinni heitið til Prag í Tékklandi. Erindi sendinefndarinnar, er að kaupa ráðandi hlut í hinni virtu, alþjóðlegu samsteypu, Prostitution Energy Limited. Það er mín bjargföst skoðun, að íslenskt atvinnulíf eigi að leggja stund á útrásarverkefni á sem flestum sviðum; því ekki dugar að láta öll eggin í sömu körfuna. Ég er svo væntanlegur aftur til Íslands n.k. mánudag. Hafið það gott á meðan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
17.10.2007 | 16:05
Hryðjuverkamenn og söngkona
Flest er helvítis þorparanum Osama bin Laden til lista lagt. Ofana á að vera uppeldsisbróðir Géorgs Bush, er komið í ljós að helvítis melurinn ber í hatur í huga til hennar Bjarkar okkar, dóttur Guðmundar í Rafiðnaðarsambandinu. Og fyrst að Osama er svona illa þenkjandi gagnvart Björk, þá er næsta víst að fóstbróðirinn sé sama sinnis í hennar garð. Þó verður að segjast, að í vissum skilningi er það mikil upphefð fyrir hina íslensku söngkonu, að mestu hryðjuverkaberserkir heims skuli hata hana; það er nokkurskonar vottorð upp á að hún sé heilbrigð. Svo má fastlega gera ráð fyrir, að repúbíkana-armur Sjálfstæðisflokksins sé á sama máli og uppeldisbræðurnir Laden og Bush því sjaldan fara yrðlingarnir langt frá greninu.
Osama bin Laden hatar Björk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2007 | 12:42
Frjálhyggjuyrðlingarnir í Húsdýragarðinn
Þegar ég las fyrirsögnina ,,Fjölgun í Húsdýragarðinum" flaug mér strax í hug hvort Geir Haaarde og Vilhjálmur Þorn hefðu afhent Húdýragarðinum frjálshyggjuyrðlinga Sjálfstæðisflokksins til enduruppeldis. Þegar betur var að gáð, sá ég að svo ver ekki. Tilfellið var, að fæðst hafi rauður bolakálfur í Húsdýragarðinum, alls ekki frjálhyggjulegur á svipinn. Ég geri samt ráð fyrir, að það fjölgi í Húsdýragarðinum þegar líður á daginn, því viðbúið er, segja mér heimildamenn úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins, að fulltrúaráð Varðar dæmi yrðlingana í dag til vistar innan um kýr og hænsn til loka kjörtímabils borgarstjórnar Reykjavíkur. Þó er enn óráðið hvað gert verður við andlega fóðurmeista yrðlinganna, en komið hefur til tals að gera þá vitavörðum á Hornbjargsvita.
Fjölgun í Húsdýragarðinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.10.2007 | 07:38
Snillingurinn Gunnar I. í Kópavogi
Ekki botna ég hætishót í Starfsmannafélaginu í Kópavogi. Nú ætlar þetta fólk að taka Gunnar I. Birgisson bæjarstjóra á orðinu af því að hann mismælti sig. Starfsmannafélagið heldur því nefnilega fram, að Gunnar I. hafi sagt eitthvað á þá leið, að ekki fáist hæft fólk til stafa hjá Kópavogsbæ á þeim launatöxtum sem þar gilda og vill fólkið í Starfsmannafélaginu með því meina að bæjarstjórinn eigi að hækka taxtana og helst svo um munar. En nú er Gunnar I. búinn að leiðrétta misskilninginn og hefur lýst yfir, að margt hæft ágætisfók sé á launaskrá hjá Kópavogsbæ. Þá grípur Starfsmannafélagið til þess óyndisúrræðis að heimta hærri taxta af því á þeirri forsendu að Gunnar bæjarstjóri hafi ráðið kunningja sinn til starfa á sæmilegu kaupi. Auðvitað er ekki hægt að ansa svona óraunhæfri vitleysu. Þó að Gunnar I. fái kunningja sínum ábyrgðarmikið emætti þýðir það, að sjálfsögu, ekki konur sem ráðnar hafa verið til að sitja yfir smákrökkum fái hærra kaup. Ja sér er nú hver bölvuð vitleysan.
Ekki góð laun í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2007 | 20:35
Heigulmennið Hanez Holmstone
Af hverju í fjandanum bauð Hanez Holmstone sig ekki fram í síðustu borgarstjórnarkosningum? Þá hefði hann sjálfur getað borið fram sínar heimskulegu bókanir í stað þess að láta einhverja stagkálfa á sínum vegum gera það. Það að Hanez þessi skuli aldrei hafa þorað að bjóða sig fram, sýnir best hve hugrakkur hann er, eða öllu heldur hverskonar heigull þessi hlálegi neðanjarðar prjálshyggjupáfi er. Að lokum legg ég til að fjálhyggjupólitíkin verði lögð í rúst á Íslandi.
Ný borgarstjórn sökuð um heigulshátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2007 | 17:37
Auðvaldspúkarnir í REI-svínastíunni
Þar kom það sem mig grunaði: Það voru nefnilega ekki réttu auðvaldspúkarnir sem fengu að gambla í REI-svínastíunni, að mati Hanezar Gizurarsonar og Davíðs í Seðlabankanum, svo þeir siguðu frjálhyggjuæskunni á Vilhjálm karlgreyið, með mun stórkostlegri árangri en þá vísu menn gat nokkurn tímann grunað. Svo er bara að bíða þangað til Samfylkingin varpar Sjálfstæðisflokknum á dyr í stjórnarráðinu. Þegar það verður um garð gengið, verður Sjálfstæðisflokksræfillinn svo gott sem valdalaus í hinu opinbera stjórnkerfi.
Gísli Marteinn: Milljarðar renna til manna sem stýrðu Framsóknarflokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.10.2007 | 16:51
Órabelgurinn Hanna Birna fór á kostum
Hún bregst ekki, þegar gamanmál eru annarsvegar, hún Hanna Birna þarna hjá frjálhyggjuæskunni í Sjálfstæðisflokknum. Nú segja fjölmiðlar af því, að þessi óborganlegi órabelgur hafi brugðið á leik á borgarstjórnarfundi í dag og verið jafnvel venju fremur spaugsöm. Í skemmtidagskrá Hönnu Birnu kom m.a. í ljós, að minni frjálshyggjuæskunnar nær ekki nema aftur til annars október 2007, en fram að því virðast læsrisveinar Hannesar Gizurarsonar og Davíðs í Svörtuloftum hafa verið í einu svartnættis blakkáti, a.m.k. hvað varðar Orkuveituna, REI-ið og GGE-ið. Þá sagði skemmtikrafturinn Hanna Birna frá því með miklum tilþrifum, að frjálhyggjuæskan væri uppfull af stuðningi við Vilhjálm Þorn og líka á móti honum. En eftir að þau höfðu tugtað karlskrjóðinn ærlega til með fulltingi lærimeistarana og klagað hann fyrir Geir Haaarde, hefði hann haft vit á að leggja niður skottið og skriðið í volandi í fangið á þeim.
Hanna Birna upplýsti um hvers vegna borgarstjórnarsamstarfið brast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 61
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 219
- Frá upphafi: 1539502
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 187
- Gestir í dag: 53
- IP-tölur í dag: 52
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007