Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Sóley Tomm og Skari Bergs með of lág laun

Mikið er ég feginn að varaborgarfulltrúinn Sóley Tomm fílí-bomm-bomm-bomm fái 300.000 krónur á mánuði fyrir að vera varaborgarfulltrúi. Þá gleður það mig ekki síður, að Skari Bergsson framsóknarmaður skuli hafa hátt í 400.000 krónur upp úr krafsinu fyrir varaborgarfulltrúastörf. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að mikilvægi og ábyrgð varaborgarfulltrúa er geysilega mikil og það er undir þeim komið hvort Reykjavíkurborg sekkur eða ekki. Hitt er svo aftur annað mál, hvort varaborgarfulltrúar ættu ekki að fá mun meira fyrir sín óeigingjörnu störf í þágu vanþakklátra borgarbúa.  
mbl.is Varaborgarfulltrúar fá 300 þúsund á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar hjónaherbergið var læst

Þegar Kolbeinn kom heim var hjónaherbergið læst, en inni fyrir heyrðust ókennilegir skruðningar. Eftir stutta umhugsun ákvað Kolbeinn að drepa kurteislega á dyr, en þá brá svo við að sljákkaði í hljóðunum og þau breyttust í varleg þrusk. Svo heyrði hann að svefnherbegisglugginn var opnaður ofur varlega. Þá gaf Kolbeinn Snata skýr fyrirmæli og hleypti honum út. Stuttu síðar lauk frú Ingveldur herbergisdyrunum upp og virtist fljótt á litið yfirnáttúrlega syfjuð. -Ohhh-hohh-hoj, Guð almáttugur hvað ég sofnaði fast, geispaði hún og néri augun. -Dreymdi þig illa ástin mín?, kvakaði Kolbeinn blíðlega á móti. -Æjijá, ég fékk helvíska martröð, sagði frú Ingveldur þreytulega. - En hvaða óskapar hundgá er þetta?, bætti hún við og gerði sig ofursljóa til augnanna. - Ætli hann Snati sé ekki bara að eltast við mink úti í garði, svaraði Kolbeinn og brosti viðkunnanlega til konu sinnar, sem var svo undur syfjuð.   

Hægrimenn og dauðarefsingar

Það er ekki vert að fresta því sem koma skal, og í því ljósi er alveg bráðnauðsynlegt fyrir yfirvöld í Alabama að aflífa þrjótinn Siebert. Ég er hræddur um að eitthvað hefði hvinið í tálknunum á frelsisunnandi lýðræðisprömmum Vesturlanda, ef þetta hefði gerst í Svét á dögum Jóefs sáluga Stalíns. Svo væri virkilega áhugavert að komast að hvaða afstöðu íslenskir hægrimenn hafa til dauðrefsinga. En nefndir hægrimenn hafa, svo lengi sem elstu menn muna, verið páfanum kaþólskari á allt sem gerist undir handarjaðri auðvaldsins í Bandaríkjunum. Mig grunar t.d. að stuðningur við dauðarefsingu sé glettilega mikil í raun innan vébanda Sjálfstæðisflokksins, þó svo að kvikindin hafi, enn sem komið er, ekki þorað að koma út úr skápnum hvað þetta varðar. Já, þeim er flest til lista lagt þarna í ekkisens frjálshyggjurottuholunni.
mbl.is Drifið í aftöku áður en fangi deyr úr krabbameini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drykkfelldu 17 menningarnir og kirkjan

Nú hefir biskupinn yfir Íslandi látið þau boð út ganga að hann hefi aungva samúð með brennivínshugsjón hinna 17 drykkfelldu alþingismanna, sem vilja ólmir koma brennivíninu inn í fiskbúðir og Bónus ... já og skóverslanir líka er mér sagt. Auðvitað mun öfga-hægrihvolpurinn Sigurður Kári taka orð biskups óstinnt upp og saka hann um öfga, ofstæki og kunna ekki fótum sínum forráð í málefnalegri umræðu. Það verður auðvitað að virða Sigga litla Kára til vorkunar, að hann er mammonstrúar og hans erkibiskup starfar í Seðlabankanum. Enn fremur skal taka með í reikninginn, að Siggi litli er alinn upp í prestakalli Hanezar Holmstone æðsta kardínála hægri-öfgakirkjunnar.   
mbl.is Léttvínsfrumvarp gengur þvert á forvarnastarf þjóðkirkjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfélag án karla er réttlætismál

Mikið held ég verði nú gaman á fémínístaráðstefnunni ,,Litlaus og kynblind" á laugardaginn; þar verður, ef að líkum lætur, ekki töluð vitleysan. Þá verður áreiðanlega ekki síður skemmtilegt að fylgjast með fundi smálessufélagsins Snótarsnót á veitingastaðum Grásleppan við Mjallarstíg, en þessi fundur á að bera yfirskriftina: ,,Konur, höfnum andskotans karlkyninu í eitt skipti fyrir öll - Samfélag án karla er réttlætismál !"
mbl.is Unga kynslóðin íhaldsöm og bakslag komið í valdahlutfall kynjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misheppnaðir boltagutlarar í Noregi ættu að halda sér á mottunni

Það er víst lítil ástæða til að taka ósæmilegt orðbragð einhverra íslenskra boltagutlara í Noregi um Eyjólf Sverrisson alvarlega. Þessir gutlarar eru hvort sem er misheppnaðir þegar fótamennt í knattspyrnu er annars vegar og ættu því að hafa hægt um sig. Hitt er svo aftur annað mál, að Eyjólfur hentar íslenska fótboltalandsliðinu einkar vel og má í því tilviki segja, að þar hæfi kjaftur skel. Nú, ef þessum ódámum tekst að hrekja Eyjólf á brott, er áreiðanleg best að landsliðssveinum okkar verði færður breskur rugbyþjálfari til að freista þess að láta þá spretta úr spori.
mbl.is Eru landsliðsmennirnir óánægðir með Eyjólf?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hengdur upp á hreðjunum væri hæfileg refsing

Aumingja blessaður drengurinn að missa bílprófið sitt ævilangt fyrir ekki meira en þetta. Það virðist gjörsamlega hafa gleymst að gaumgæfa ljósu hiðarnar á þessu máli. Það er t.d. aðdáunarvert, að ökumaðurinn ungi skuli hafa getað hafið sig til flugs á BMW á Kringlumýrabrautinni, þó svo að flugferðin hafi orðið helst til endasleppt og lendingin hafi í einhverjum atriðum misheppnast. En svona atvik er samt ekkert til að gera veður út af. Ég held, þegar allrar sanngirni er gætt, að hæfileg refsing fyrir ökumanninn hefði verið virðuleg hreðjaupphenging í næsta ljósastaur og lögreglan látið þar við sitja.
mbl.is Lögreglan: Ótrúlegt að ekki skyldi verða stórslys
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reiðarslag í hjónasæng

Það getur verið dýrt spaug fyrir aldraðar heiðurskonur að narra unga, fjörmikla stráka upp í til sín. Þessháttar framtak getur beinlínis verið stórhættulegt fyrir þær, eins og dæmin sanna. Nú hefur sú hryggilega frétt borist yfir heimsbyggina, að frú Adelfa Volpes í Argentínu sé úr heimi höll eftir að hafa fengið hastarlegt reiðarslag eftir snarpar bólfarir með tuttugu og fjögurra ára eiginmanni sínum. Þessi vofeiflegu endalok frú Adelfu ættu verða konum á hennar reki víti til varnaðar, þannig að þær hugsi sig vandlega um áður en þær bregða sér á brokk á vökrum graðfolum.
mbl.is 82 ára gömul brúður er látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægri-öfgasamtökin Heimdallur

Ætli hægri-öfgasamtökin Heimdallur hafi ekkert hugsað sér til hreyfings þann 10. nóvember næstkomandi? Það er víst kominn tími til, og rúmlega það, að þessi skítseyðasamtök komi öll og í heilu lagi út úr skápnum.
mbl.is Yfirvöld í Prag vilja banna göngu nýnasista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkynhneigð grefur um sig í skáldverki

Það er þokkaleg frammistaða hjá frú Rawlings, eða hitt þá heldur, að missa eina af potterpersónum sínum út í samkynhneigð. Hún getur engum öðrum en sjálfri sér um kennt, kerlíngarskauðið, að Albus hennar hafi gert bragð úr ellefta boðorðinu með því að gerast áttaviltur í kynlífinu. Annars getur svona lagað gerst á bestu bæjum eins og dæmin sanna. En þegarar skáldsagnafígúra gerist svo frek til fjörsins að koma æðandi út úr skápnum, að skapara sínum forspurðum, má segja að skörin hafi heldur en nokkuð færst upp í bekkinn. Það má því ljóst vera, að með þessu tiltæki Albusar hafi frú Rawlings vegið illilega að sjálfri sér úr launsátri og það svo mjög að nú er allt í uppnámi á Potterstöðum. Úr því sem komið er, verður frú Rawlings að gjöra svo vel að færa Gunnsa í Krossinum vandræðagepilinn Albus til afhommunar, því varla líður frúin persónum sínum að hella sér á kaf í kynvillu, án þess að sporna við fæti. Geri hún það ekki gæti svo farið, að jafnvel Harry litli smitaðist af þessum fjanda og þá væri ekki aftur snúið. 
mbl.is Rowling hissa á miklum viðbrögðum við fregnum um samkynhneigð Dumbledores
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband