Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2007

Eiđur ćtti ađ berja Rćjkarđ vel og vandlega

Ljóta skepnan ţessi Fránki Rćjkarđ ađ velja ekki okkar mann á móti Real Madrid, enda töpuđu Barscilónu menn eins og ţeir áttu skiliđ. Vćri ég Eiđur Smári myndi ég taka Rćjkarđ ţennan umskipting og lúberja hann vel og vandlega til ađ svonalagađ endurtćki sig ekki aftur.
mbl.is Real Madrid sigrađi - Eiđur úti í kuldanum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sannleikurinn um litlu stúlkuna međ eldspýturnar

Ţađ kannast víst flestir viđ söguna af ,,litlu stúlkunni međ eldspýturnar." En ţeir eru áreiđanlega fćrri sem vita ađ í raun og sann var ţessi litla stúlka, sem fólk hefur vorkennt skefjalaust og fellt tár yfir, forhertur brennuvargur sem hafđ mörg ódćđi á samviskunni. Frumraun iđju hennar var ţegar hún kveikti í hćnsnakofa frú Groth sem bjó í nćstu götu. Ađ sjálfsögđu drápust allar hćnurnar í eldsvođanum. En ţví miđur hljóp eldurinn líka í  íbúđarhús frú Groth sem brann til kaldra kola. Nćst bar litla stúlkan niđur međ eldspýturnar viđ bakdyrnar á verslun herra von Cryplingstein kjötkaupmanns og fór ţar allt á sömu leiđ og hjá frú Groth. Ţermur mánuđum síđar brunnu fimm fjölskyldur inn ţegar húsaröđ fuđrađi upp í Herbertssonstrasse. Ţá var röđin komin ađ Kapitalbanka sem var í eigu Mannheim greifa. Í kjöfar bankabrunans var var Mannheim greifi tekinn fastur, grunađur um íkveikju og tryggingasvik. En hátindi ferils síns náđi litla stúlkan međ eldspýturnar ţegar hún bar eld ađ dómkirkju borgarinnar sem skíđlogađi stafnana á milli í heilan sólarhring. Kvöldiđ atarna ţegar hún var ađ norpa á stéttinni í Slésvíkurstrćti, og frá er sagt í grátlegu sögunni, hafđi hún ekkert fallegra í huga en ađ bíđa eftir ađ fólkinu fćkkađi á götunum svo hún gćti kynt upp svo um munađi í stćrstu jólagjafaverslun borgarinnar. Ţá loks tók Drottinn Almáttugur í taumana og sló ,,Litlu Stúlkuna Međ Eldspýturnar" međ fimbulkulda svo hún fraus í hel á augabragđi. Daginn eftir kom svo í ljós ađ ,,litla stúlkan " var alls engin lítil stúlka heldur dvergvaxin kerling í gerfi lítillar stúlku međ eldspýtur í loppunum.   

Ađ vera sjálfstćđismađur, ađstođarmađur og sonur eru fullkomin rök

Hvađa bölvađ ekkesens röfl er nú í krataeignunum; ţađ vita nú allir hvernig ţeir eru ! Ég get međ góđri samvisku svariđ ađ ţađ mun ekki vefjast eitt andartak fyrir Árna Matthýsenn, ţeim guđsblessađa og frábćra dýralćkni ađ rökstyđja val sitt á Ţorsteini Davíđssyni til hérađsdómarastarfa. Rökin eru augljós og skotheld: Ţorsteinn litli Davíđsson er sjálfstćđismađur, ađstođarmađur Björns Bjarnasonar kirkjumálaráđherra og sonur Davíđs Oddssonar. Svo einfalt er ţađ nú. Og ef ţetta eru ekki gild rök ţá er allt rökleysa. Svo verđa hlandsveinarnir á kratakamrinum ađ bara ađ japla á sinni spillingu fyrir sig svo óspilltir sem ţeir eru, eđa hitt ţá heldur !
mbl.is Árni segist munu skila ítarlegum rökstuđningi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fékk jólakveđju í andlitiđ

Ţađ er naumast jólakveđjan sem mađurinn í Keflavík fékk frá náunga sínum í gćrkvöldi. Fyrr má nú gagn gera en ađ reka samborgara sínum glas, í kveđjuskyni, af heljarafli fyrir nasirnar svo ađ úr varđ 30 spora svöđusár. Svonalagađ gerum viđ aldrei hér á Snćfellsnesi, ţrátt fyrir ađ séra Árni segđi ađ vér vćrum vont fólk. 
mbl.is Sleginn međ glasi í andlitiđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Jafnréttissinnađ rán

Ţađ góđa viđ rániđ á Litlu kaffistofunni er ađ ţar voru karl og kona ađ verki; semsé fullt jafnrćđi á milli kynja, en séđ frá vissu sjónarhorni eru ţessháttar rán mikiđ betra en hreint karllćgt rán. Ţađ er meir en gleđilegt ađ sjá og lifa allar ţessar framfarir í jafnréttismálinu. Svo er bara ađ vona ađ karlinn og konan skipti ránfengnum hnífjafn á milli sín og fullkomni ţar međ staf sitt.
mbl.is Rán á Litlu kaffistofunni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Heybrćkurnar í Sjálfstćđisflokknum

Ţetta er einhver misskilningur međ ađ Alkćjeta hafi áformađ hryjuverk á trúarhátíđ múslima. Samkvćmt áreiđanlegustu heimildum voru ţađ samtökinn Sjálfstćđisflokkurinn sem áformađi ţetta slag en guggnađi ţegar á hólminn var komiđ enda eru Sjálfstćđismenn hinar mestu heybrćkur. 
mbl.is Áformuđu árásir á trúarhátíđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sóleyjarisminn ríđur VG-röftum til falls.

 Sóley Tómasdóttir

Sóley Tómasdóttir ,,Róttćkur femínisti sem ćtlar ađ bjarga heiminum. Ritari Vinstrihreyfingarinnar grćns frambođs, formađur mannréttindanefndar, fulltrúi í menningar og ferđamálaráđi og varaborgarfulltrúi."

Ţađ er ekki amalegt fyrir VG ađ hafa snillinginn Sóleyju Tómasdóttur í framvarđarsveit sinni. En ţrátt fyrir óumdeilanlega snilld sína er mér samt samt gjörsamlega hulin ráđgáta hvernig ţađ kom til ađ ţessi valkyrja var gerđ ađ ritara VG ţví hćfileikar hennar og snilld eru ekki ţess eđlis ađ ţeir geti komiđ stjórnmálaflokki ađ öđrum notum en neikvćđum.

Nú er ţađ svo, ađ međ framgöngu sinni hefur Sóleyju og hennar fylgiliđi tekist á undraskömmum tíma ađ koma slíku óorđi á VG ađ varla verđur viđ unađ lengur af öđrum forustumönnum flokksins, nema ţeir séu samskonar andlegir fátćklingar og Ritarinn makalausi.

Ţađ ţýđir semsé ekki meir fyrir félaga Ögmund Jónasson, formann ţingflokks VG og Steingrím J. flokksformann ađ gera minnstu tilraun til ađ reyna ađ verja hinn sérkennilega sóleyjarisma, sem riđiđ hefur húsum á VG-bćnum í alltof langan tíma eins og kaţólskur miđaldadraugur. Lyfti nefndir herramenn svo sem litlafingri til stuđnings ţessum blábjánum lenda ţeir međ flokkinn úti í ţví kviksyndi ţar sem hvergi kennir botns og engi á afturkvćmt úr - sem vćri svosem ágćtt útaf fyrir sig og sennilega nauđsynlegt skref í ađ endurreisa róttćka vinstristefnu á Íslandi, sósíalisma.

En hvađ sem öđru líđur, hlýtur ađ vera freistandi fyrir Steingrím og Ögmund ađ taka höndum saman um ađ úthýsa yfirstéttarfémínísmanum og öllu ţví rugli sem honum fylgir úr VG og reka Ritarann bráđgáfađa og ađra sóleyjarista úr flokknum.  


mbl.is Ósáttir viđ jólakort femínista
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Pokaprestar og labbakútar

Ţađ er víst kunnara en frá ţurfi ađ segja, ađ á Alţingi íslendinga er fjöldinn allur af óraunverulegum ţingmönnum, ţ.e. ţingmönnum sem sannarlega hafa náđ kjöri en eru ekki starfinu vaxnir. Ţessa lítilsigldu pokapresta er ađ finna í öllum ţingflokkum. Svo rammt kveđur ađ ţessari óáran, ađ í sumum ţingflokkum eru labbakútar af ţessu tagi í góđum meirihluta ţ.e. vel yfir fimmtíu prósent.   
mbl.is „Óraunverulegur“ ţingmađur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Jólakötturinn át fimm manna fjölskyldu í fyrrinótt

Ţau stórtíđindi urđu í Hafnarfirđi í fyrrinótt ađ hinn nafnkunni Jólaköttur át fimm manna fjölskyldu inni í íbúđ ţeirra á fjórđu hćđ í fjölbýlishúsi. Ţegar upp komst um ódćđiđ var meidýraeyđi bćjarins gert viđvart og kom hann óđar á vettvang. Eftir ađ meindýraeyđirinn, ásamt lögregluţjóni, hófu leit ađ óargadýrinu hefur ekkert til ţeirra spurst ţrátt fyrir mikla leit fjölmargra björgunarsveitarmanna. Afturámóti sást til Jólakattarinns í kvöld hvar hann las sig upp vegg á höfuđstöđvum eins mesta fjármálafyrirtćkis landsins. Er hald manna ađ ćtlun hans hafi veriđ ađ ná sér í lyktarsýnishorn af forstjórum fyrirtćkisins og ađaleigendum svo hann geti ţefađ ţá uppi úti í bć. Hér áđur fyrr nćgđi ţessari bleikálóttu skepnu ađ éta óţekk börn á jólaföstunni, en nú virđist Jólakötturinn vera ađ fćra sig uppá skaptiđ ţví ekki er annađ ađ sjá en en hann sé farinn ađ hafi uppi útispjót međ ađ veiđa sér vel holdgađa kapítalista til átu. - Og er ţađ vel.   

Pútím og ónáttúrubesefinn Bush

Ţađ getur varla veriđ rétt haft eftir Pútím ađ ónáttúrubesefinn Georg Dobbilijú Bush sé ,,áreiđanlegur samstarfsađili og heiđursmađur." Ef ţetta er raunveruleg skođun Pútíms er ljóst ađ vitsmunir hans eru ekki meiri en gerist og gengur međal nautgripa. Hinsvegar fer Pútím nćr raunveruleikanum ţegar hann ámálgar ađ svo virđist sem valdaklíkan í Bandaríkjunum hafi um langan aldur reynt eftir föngum ađ innrćta sínu fólki ađ í öđrum löndum búi samansafn af fábjánum og glćpamönnum. Ţađ er semsé engin lygi ađ yfir vötnum USA svífur fasismi af ekki beint geđugu tagi og reyndar svo ískyggilegur ađ óhćtt er ađ leyfa sér kalla hann alvarlega meinsemd í heimslíkamanum. 


mbl.is Dregin upp mynd af Rússum „nýkomnum niđur úr trjánum“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband