Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
26.6.2007 | 12:48
Sá yðar sem syndlaus er ...
26.6.2007 | 12:28
Sveinn Jörundur Lostahrókur.
Þeir eru heldur betur hugrakkir þarna hjá Manchester City, að ráða Svein Jörund Eiríksson sem knattspyrnustjóra, en Sveinn þessi Jörundur er alræmdur kvennaflagari og lostahrókur, sem ekki vílar fyrir sér að gilja allt kvenkyns, sem í það og það skiptið er undir sama þaki og hann. Sérlega ku kallfjandinn stórtækur og gírugur til skrifstofukvenna svo hrein hörmung er að.
Það má vel vera, að Sveinn geti kennt Citymönnum að sparka í fótbolta, en þegar tillit er tekið til hroðalegrar kvensemi hans er áhættan af ráðningu hans allt of mikil.
Eriksson gerir þriggja ára samning við Manchester City | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.6.2007 | 12:12
Friðflytjandinn Tony Blair.
Það er víst í engu logið þegar sagt að hræsnin ríði aldrei við einteyming. Hvað er það annað en hræsni af svörtustu sort, að láta sér detta í hug að gera ódæðismanninn Tony Blair að sérstökum friðarerindreka fyrir botni Miðjarðarhafs? Og hvað á maður eiginlega að segja við yfirlýsingu Blair við fréttamenn, þess efnis, að hann sé reiðubúinn að gera það sem í hans valdi stendur til að koma á friði milli Ísraelsmanna og Palestínumanna? Í mínum eyrum hljómar þetta ógeðfellda orðagjálfur Tony Blair á svipaðan hátt og að Osama bin Laden léti hafa samskonar þvætting eftir sér.
Heimurinn verður að fara gera sér ljóst, að menn eins og Tony Blair og Georg Bush, og sú hirð sem að þeim stendur, eru ekkert minna en stóhættulegir glæpamenn, sem hika ekki við að ögra mannkyninu alla daga eins og ekkert sé sjálfsagðara - og komast upp með það.
Blair lýsir áhuga á að vinna að friði í Miðausturlöndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2007 | 19:39
Sveitaball 59.
25.6.2007 | 19:16
Var Jónas Hallgrímsson kona?
Mikil þó djöfulsins bölvuð karlremba er fólgin í kjaftæðinu um þessa svokölluðu Fjölnismenn. Og nú bætir innantómur pokaprestur við vitleysuna með því að halda fram, að Tómás Sæmundsson hafi verið faðir Fjölnismanna. Með þessu rislitla innleggi er pokapresturinn tvímælalaust að gefa i skyn eitthvað vafasamt og ósiðlegt um mæður Fjölnismanna; eða hefur t.d. einhverjum áður dottið í hug að Jónas Hallgrímsson hafi ekki verið Hallgrímsson heldur Tómásson? Ég held nú síður, hinn forpokaði musterishöfðingi er fyrstur manna að viðra slíkar dylgjur.
Nei drengir mínir. Það þýðir ekkert að bera svona karllægan óþverra á borð fyrir mig. Löngu liðnar heiðurskonur bíða ekki skaða í mínum huga þó karlrembuprestur reyni að sletta á þær óorði undir rós. En minni fémínízku siðferðiskennd er stórlega misboðið. Því segi ég skýrt og skorinort: Fjölnismenn voru líka Fjölniskonur, eða eru einhverjar skotheldar sannanir til fyrir því að Jónas Hallgrímsson (ekki Tómásson) hafi ekki verið kona?
Föðurímyndar Fjölnismannanna minnst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2007 | 17:50
Meðferð á látnu fólki.
Jæja já, eru þeir nú farnir að geyma jarðneskar leyfar okkar kæru burtsofnuðu meðbræðra í kælum innanum grænmeti og dauða kjúklinga! Mig hefur lengi grunað að þetta mundi fara svona. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt, að bjóða fólki, lifandi eða dauðu, upp á svona svívirðilegar traktéringar. Ég er algjörlega brand sjúr á, að ekki fyrirfinnst á landinu ein einasta sál, sem vill taka við kistu síns nánasta angandi af sláturlykt og kartöflum, svo lítið dæmi sé tekið.
Annars langar mig mest að vitna í Eddu Þórbergs Þórðarsonar, fyrst meðferð á líkkistum með réttu innihaldi er hér til umræðu. En þar segir Þórbergur meðal annars: ,,Hann (þ.e. Þórbergur) óskar að geta gert háttirtum lesendum það skiljanlegt, að hann telur allar serimoníur með rotnandi hræ, hversu geníalt sem innihald þess hefur verið, ógeðslegt vitni um bjánaskap og innantómleika, ef ekki illmennsku. Og hann álítur í fyllstu einlægni alla þá menn, sem fást við slíkan fábjánahátt, sálsjúka og andlega blinda auðnuleysingja, ef ekki fúlmenni."
Samskip segjast fylgja nákvæmlega reglum um líkflutninga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2007 | 19:18
Hinn kynhverfi nýnazisti.
Kynhverfingurinn, sem auk þess var nýnasisti, sat inni á kaffihúsi og kroppaði kruðirý ofan af sætabrauði sem hann hafði látið færa sér. Fölskvalaust og innilega hataði kynhverfingurinn útlendinga, að maður nefni nú ekki litaða ættbálka. Í jólaboði hjá ömmu sinni og afa, sagði hann stundarhátt og í allra áheyrn: -Það vildi ég amma mín, að þú hefðir notað alvöru júða í þessar gyðingakökur! Og amman varð undurglöð að heyra þessi ummæli, því sjálf var hún gömul nazistísk tík sem alla tíð hafði tilbeðið Hitlir á laun.
En víkjum aftur að kaffihúsinu þar sem vinur okkar, hinn Nationalsocialíski kynkverfingur, naut lífsins og sjálft við lá að hann væri búinn að bora sig í gegnum kaffið og kökurnar. Skyndilega og án nokkurs fyrirvara, snarast inn á kaffihúsið ægilegur blendingur, að hálfu leyti blámaður af Zúlúkaffaætt og að hálfu leyti gyðingur. Við að líta þessa feiknstafi varð kynhverfingurinn nýnazistíski gjörsamlega lémagna og leið meðvitundarlaus undir borð. Starfsstúlkurnar héldu að hann hefði fengið bráðkveddu og væri látinn. Þær hringdi þó eftir sjúkrabíl, furðu ástríðulaust að vísu, og tilkynntu andlát viðskiptavinar. Á meðan sjúkrabíllinn var á leiðinni, rifaði sá látni annað augað, en féll samstundis í dá aftur, því hið eina sem fyrir auga hans bar var nefstórt trýnið á blendingnum hræðilega. Að lokum báru sjúkramennirnir hugsjónamanninn meðvitundarlausann og fölann sem nár út í bíl og óku í brott undir blikkandi ljósum og sírenublæstri.
24.6.2007 | 11:35
Félagar í kvótamafíunni handteknir.
Hugsanleg frétt einhverntímann í framtíðinni:
,,Lögreglan á Norður-Atlandshafseyjunni Íslandi handtók í gær níu mans, sem taldir eru félagar í kvótamafíunni svonefndu. Eru mennirnir grunaðir um að hafa að yfirlögðu ráði drepið niður fjölda sjóþorpa og og einyrkja í útgerð, sem starfað hafa á yfirráðasvæði kvótamafíunnar. Búist er við fleiri handtökum næstu daga vegna þessa máls. Meðal annars er talið óhjákæmilegt að nokkir fyrrverandi og núverandi valdamiklir stjórnmálamenn verði hnepptir í varðhald í dag. Þá er reiknað með, að ríkisstjórn Íslands leysi upp á næstunni a.m.k. 5 til 10 stórútgerðir sem viðriðnar eru kvótamafíuna."
Níu liðsmenn mafíunnar handteknir á Sikiley | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2007 | 10:35
Samkvæmisleikir glaðsinna fólks.
Fjórir í haldi lögreglu eftir fjöldaátök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2007 | 12:40
Að banna loðnuveiðar og veiðar með flotvörpu.
Vangaveltur Össurar um stjórnun á fiskveiðum eru svo sem góðra gjalda verðar svo langt sem þær ná. En því miður dettur Össur, eins og við var að búast, í sama drullupyttinn og aðrir spekingar af stjórnmála- og LÍÚ-kyni, sem hafa leikið sér að því, að rugla og afvegaleiða alla umræðu um sjávarútvegsmál í því skyni að varðveita kvótakerfið ásamt mafíustarfseminni sem því fylgir. Frá mínum bæjardyrum séð, er tómt mál að velta sér mikið upp úr aflareglum til eða frá, eða hvort Hafró heyrir undir sjávarútvegsráðurneyti eða eitthvert annað ráðuneyti, meðan fiskurinn í sjónum fær ekki nóg að éta.
Ég bota t.d. ekkert í, af hverju ekki er búið að banna loðnuveiðar fyrir löngu og af hverju í ósköpunum er ekki búið að banna alfarið veiðar með flotvörpu. En líklegasta skýringin á þessu tvennu er taumlaust ábyrgðarleysi stjórnmálamanna og veiklun þeirra gagnvart öflugum stórkvótaútgerðum.
Össur vill færa Hafró frá sjávarútvegsráðuneytinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 61
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 219
- Frá upphafi: 1539502
Annað
- Innlit í dag: 53
- Innlit sl. viku: 187
- Gestir í dag: 53
- IP-tölur í dag: 52
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007