Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, maí 2008

Ágústsdóttir eđa Gísladóttir?

pianÉg sé ekki betur en fréttin af Stínu jazztónlistarkonu sé eitthvađ málum blandin. En Stína kerlingin er sögđ bćđi Ágústsdóttir og Gísladóttir. Nú hefir ţađ aldrei ţó nema í međallagi viđkunnanlegt ađ rangfeđra fólk ađ ástćđulausu og ţeir sem hafa freistast til slíkrar iđju venjulega uppskoriđ stimpil heimsku og illgirni.

Á listanum sem Stína jazzari lenti í 10. sćti trónir á toppnum ekki minni spámađur en Óskar nokkur Peterson, annálađur snillingur sem nýlega er látinn. Hvađ ćtli kanadamenn myndu segja ef blađamenn ţar í landi tćkju uppá ađ segja ađ Óskar píanóleikari vćri t.d. Anderson en ekki Peterson?

Ađ lokum krefst ég ţess ađ rétt fađerni Stínu verđi upplýst tafarlaust og úr ţví skoriđ hvort hún er Ágústsdóttir eđa Gísladóttir.


mbl.is Íslensk söngkona vekur athygli í Montreal
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ómerkilegt víg

knifeHrćddur er ég um ađ forfeđrum vorum til forna, eins og til ađ mynda Agli Skallagrímssyni, Gunnari á Hlíđarenda, Skarphéđni í brennunni, Gretti Ásmundarsyni og Víga-Styrr, hefđi ţótt afspyrnu vond latína ađ falla í vopnaviđskiptum viđ seytján ára stelpukrakka. Slíkar gćsir gerđu vorir sćlu forfeđur einatt ađ frillum sínum eđa skyndikonum og létu ţćr ekki komast upp međ neitt múđur eđa ójöfnuđ í viđskiptum sínum viđ ţá.

En fyrst ađ svo fór í Utskarpen í Ranasýslu, ađ fullorđinn mađur af víkingaćttum lét gelgjustelpu vega sig međ bitjárni ţá hefir hann áreiđanlega haft gott af ţví. Ţetta ómerkilega víg minnir einna helst á ţegar strákgutti nokkur hjó höfuđiđ af Ţorgeiri Hávarssyni, hvar hann lá sofnadi međ spýtukubb undir höfđinu, af ţeirri einu ástćđu ađ stráknum fannst Ţorgeir liggja svo vel viđ höggi.


mbl.is 17 ára stúlka grunuđ um morđ í Noregi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ánćgjuleg hneykslisverk fullra manna

drunk4Mikil lifandis ósköp ţykir mér alltaf ánćgjulegt og upplífgandi ađ lesa á sunnudagsmorgnum á mbl.is um hneykslisverk fullra manna. 

Ađ ţessu sinni líkađi mér best viđ fréttina af náunganum á Njálsgötu, sem í gleđi sinni ćtlađi ađ fara ađ dćmi náfrćnda sinna, apanna, og leika listir sínar međ ţví ađ stökkva útaf svölum yfrí ,,nćrliggjandi" tré, eins og ţađ er orđađ í fréttinni. Í trénu hefir hann eflaust ćtlađ ađ sveifla sér á milli greina af sannri list og glćsileika á sama hátt og náfrćndur hans eru frćgir fyrir. Ţví miđur virđist eitthvađ hafa fariđ úrskeiđis hjá okkar manni og hann falliđ fram af svölunum til jarđar eins og hver annar kartöflusekkur, án viđkomu í trénu ţar sem hann ćtlađi ađ sýna gestum og gangandi hvađ í honum býr af sönnum apakattarlátum.

Ađ sama skapi líkađi mér illa viđ frásögnina af ,,mönnunum" sem stukku útúr bifreiđ ţeirra erinda ađ berja sárasaklausan borgara í höfuđiđ međ barefli. Slíka ţorpara á skilyrislaust ađ senda stjörnusýslumanninum Stones á Selfossi til međferđar og međhöndlunar.


mbl.is Telur sig vita hverjir stóđu á bak viđ árásirnar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Drukknir skipstjórar sigla ófullum betur

drunk6drunk7Svona eiga skipstjórar ađ vera: sigla um heimshöfin blinfullir og međ vélstjórann áfengisdauđan í koju; ţessháttar siglingar geta aldrei endađ nema vel. Og ţó ađ hinn rússneski kapteinn hafi steytt ađeins á skeri úti fyrir ţeim andskotans Borgundarhólma, er ţađ ekkert til ađ gera veđur útaf, hann hefđi hvorteđ er losađ skip sitt af ţeim ţröskuldi, hefđi hann fengiđ friđ til ţess fyrir dönskum vaktstöđvarmaurum sem voru áreiđanlega líka dauđadrukknir, og haldiđ áfram siglingu sinn jafn glađur og reifur sem fyrr.

Ţađ er mín stađföst skođun, ađ skipstjórar eigi aldrei ađ stíga fćti sínum á stjórnpall öđruvísi en vel hífađir. Aldrei kom Gunnólfi skipstjóra og útvegsbónda til hugar ađ róa til fiskjar nema hann vćri, ađ sínu óbrigđula mati, nćgilega ölvađur, enda sótti hann sjóinn manna mest og fiskađi alltaf best.

Eđa skipherrann á varđskipinu Gný, haldiđ ţiđ ađ hann hafi veriđ ófullur daginn sem hann skaut niđur fimm breska landhelgisbrjóta áriđ 1963? Ónei, hann var svo moldfullur daginn ţann, ađ ekki blöktu í honum augun. Samt tókst honum ţađ sem engum alsgáđum skipherra hefđi tekist, ţ.e. ađ skjóta fimm togara niđur á hafsbotn á einum og sama deginum. 

Svo gerđist ţađ, illu heilli, ađ allir skipherrar gćslunnar hćttu ađ neyta áfengis. Síđan ţau ósköp riđu yfir hefur varla veriđ hćgt ađ mjaka einu einasta varđskipi á sjó. Og ţá sjaldan ađ koppar Landhelgisgćslunnar hafa hlunkast út fyrir landsteinana hafa afrek ţeirra á hafinu veriđ öll í skötulíki. 

drunk2

mbl.is Skipstjórinn fullur í brúnni og skipiđ strandađi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Hverjir verđa hengdir fyrst ?

hangiÚr ţví ađ norđmenn ćtla ađ vera svo elskulegir ađ senda okkur íslendingum reipi svo ađ viđ getum hengt okkur, vćri gaman ađ vita hverjir verđa ţess ađnjótandi ađ fá ađ hanga fyrstir allra. Ég hef trú á ţađ verđi almennt verkafólk sem hreppir hnossiđ og fćr ađ dingla á undan öllum öđrum í snörunni og ađ ţađ verđi ţeir sem ćtti ađ vera löngu búiđ ađ hengja sem muni stjórna gálgaskemmtuninni.   
mbl.is „Lengt í hengingaról Íslendinga"
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Einstćđ hugsjón rennur út í sandinn

eldur5Ţađ er ekki lítil hugsjón ađ ćtla sér ađ sprengja Alţingishúsiđ í loft upp. Hefđi hinn ungi mađur látiđ vera ađ skrifa opinbera bloggfćrslu um ţetta merkilega hugđarefni sitt en ţess í stađ látiđ nćgja ađ láta verkin tala og sprengt umrćtt hús í loft upp og fjandans til hefđi ţađ ekki orđiđ minna en alheimsfrétt og nafn hans komist á spjöld sögunnar. Ţá má gera ráđ fyrir ađ a.m.k. ein hollívúddfilma hefđi veriđ gerđ um afrekiđ ţví ađ ekki einusinni Osama bin Laden, vinur Bush og páfans, getur státađ af ađ hafa sprengt heilt ţjóđţing í rúst.
mbl.is Bloggarinn fundinn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ţađ hlustar enginn lengur

Ţegar gamli mađurinn hafđi ropađ nokkrum sinnum stundarhátt ţurkađi hann sér um munninn međ tóbaksklútnum og geyspađi á eftir. Hann var búinn ađ vera áhyggjufullur undanfariđ; honum gekk ć ver ađ ná eyrum fólks; ţađ hlustađi eiginlega engin á hann lengur, ekki einusinni kötturinn. ´Svona er ađ vera orđinn gamall og géđúldinn´ hugsađi gamli mađurinn og klórađi sér innan í vinstri nösinni međ litlafingri hćgri handar. Svo háttađi hann sig og skreiđ önugur undir skítuga sćngina og bađ Drottinn um ađ hann forđađi sér frá ađ pissa framhjá klósettskálinni í fyrramáliđ eins og hann hafđi gert í morgun.
mbl.is Á móti ţjóđaratkvćđagreiđslu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Sóđaleg klámkerling

dirtŢađ hljóta ađ vera mistök af hálfu yfirvalda ađ hleypa ađ hinni alrćmdu klámkerlingu, Rutt Westbreima, inní landiđ. Og sú gamla ćtlar ekki ađ sitja ađgerđalaus hér á landi; ónei, hún ćtlar sem sé ađ gera sér lítiđ fyrir og fremja opinbera kynferđislífsvillu í Listasafni Reykjavíkur, ásamt einhverju hrođakvendi sem hún hefir í eftirdragi. Og til ađ bíta höfuđiđ af skömminni leiddu einhverjir ógćfumenn ţennan blygđunarlausa kvenmann heim ađ Bessastöđum til forseta Íslands í dag! Fyrr má nú gagn gera í siđferđisbrestum og siđleysi.

Og hvar er fémínístafélagiđ nú? Ćtlar ţađ eđla félag ađ taka komu ţessara klámkerlinga ţegajandi og hljóđalaust? Ekki vil ég trúa ţví ađ svo komnu máli. 


mbl.is Kynlífsgjörningar Dr. Ruth
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Útibú VG á Bandaríkjaţingi

hvalaHananú. Ţađ var ekki vonum seinna ađ Kolbrúnar- og Hjörleifsarmur VG kćmi sér upp dágóđu útibúi VG á Bandaríkjaţingi. Og nú skal binda endi á hvalveiđar í eitt skipti fyrir öll. Og ekki mun standa á vitfirringastóđinu sem ađ Kolbrúnu og Hjörleifi standa, ađ gagga undir eins og hver önnur rođhćnsni.

Auđvitađ eiga íslendingar ađ hefja hvalveiđar nú ţegar, ţó ekki vćri nema til ţess ađ stúta hluta af ţessum hćttulegu átvöglum.


mbl.is Ályktun gegn hvalveiđum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fáheyrt ódćđisverk

fugl3fugl1Ţađ blakta 10 svartir fánar í hálfa stöng á Seltjarnarnesi í dag. Í gćr frömdu mávar fáheyrt ódćđi viđ Bakkatjörn; ţađann mun aunginn svanasöngur berast í sumar, ađeins sorgarkvak. Eftir sitja íbúar Seltjarnarness hnípnir međ höndur í skauti. Utan frá sjó berst međ sunnanţeynum nístandi kuldahlátur mávanna sem átu egg Svandísar og manns hennar.

 

 

 


mbl.is Harmleikur á Bakkatjörn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband