Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
18.1.2009 | 11:53
Eiturplöntur og illgresi á haugana í vor
Ef svo fer að milljónir trjáplantna verða keyrðar á haugana í vor er best að láta nokkra stjórnmálaflokka fylgja með og moka síðan vel og vandlega yfir allt saman. Stjórnmálaflokkarnir eru eins og kunnugt er kjörlendi fyrir eiturplötur og illgresi sem sjúga til sín næringu sem öðrum er ætluð og bera vonda ávexti sem seint flokkast undir boðlega fæðu.
Samtrygging flokkseigendafélaga stjórnmálaflokkanna er staðreynd. Þessi samtrygging er gulltrygging fyrir spillingu, andlýðræði og skeytingarleysi á öllum sviðum.
Það er mikil þörf á að samtrygging flokkseigendafélaganna verði rannsökuð ofan í kjölinn, tjöldunum svipt frá svo almenningu fái séð, svart á hvítu, hverskonar fásinna núverandi stjórnmálaflokkar eru í raun og veru.
Það er ennfremur ljóst að almenningur lítur í æ meiri mæli til þess að öflugt byltingarsinnað afl rísi uppúr grasrótinni. Sem betur fer eru teikn á loft að slíkt sé að gerast þessa dagana.
![]() |
Milljón trjáplöntur á haugana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.1.2009 | 08:53
Grunsamlegt og skuggalegt
Alltaf setur að manni hroll þegar fregnir berast af rígfullorðnum einstaklingum, sem bjóðast til að gæta barna hjá ókunnugu fólki. Það segir sig sjálft að slíkt býður hættunni heim. Anna Hathaway er afar grunsamlegt kvendi, svo ekki sé meira sagt, og vís til að afvegaleiða telpurnar Barrakks og konu hans. Einnig er stórfelld hætta á að hún geri sér lítið fyrir og dragi Barrakk sjálfann á tálar og fái hann til að gera ýmsa ósiðsamlega hluti sem forsetar eiga ekki að gera.
Nú verða bandaríkjamenn að sýna hollustu við þjóð sína og koma í veg fyrir að háskakvendinu Önnu Hathaway takist að leggja heimilislífið í Hvíta húsinu í rúst með öfugsnúnum tiltektum.
![]() |
Vill passa forsetadæturnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2009 | 22:31
Járnplötuvals með undirliggjandi lostabruna
Mikið skelfing líkar mér alltaf vel við sönglög sem heita ,,Vornótt" og ,,Undir regnboganum" eða eitthvað þessháttar, jafnvel þó ég hafi aldrei heyrt þau. Það gladdi mig því ósegjanlega þegar ég sá á mbl.is að lögin sem unnu í kvöld heita einmitt ,,Vornótt" og ,,Undir regnboganum."
Og þó svo ég hafi ekki heyrt umrædd sigurlög, þá segir mér svo hugur að ,,Vornótt" sé klassískur járnplötuvals í skagfirskum sveiflustíl með sverrisstormskersívafi. Textinn við ,,Vornótt" er áreiðanlega, ef mér skjöplast ekki úr hófi fram, mildur afmorskveðskapur með undirliggjandi lostabruna og öllu sem honum heyrir til. Ég vona að ,,Undir regnboganum" sé saminn af þeirr sönnu íþrótt sem einkennir lausann keðjuhlekk sem slæst ótt og títt uppí aurbretti bifreiðar. Enda er mér sagt af kunnugum að svo sé. Svo rammt kvað að hjá heimildarmanni mínum, að kötturinn hljóp hvæsandi undir rúm og hundurinn fór að spangóla eins og frá honum hefði hvarflað allt vit meðan söngurinn ,,Undir regnboganum" frussaðist útúr sjónvarpstækinu.
Það þarf sannarlega ekki að hafa fleiri orð um svo sigurstranglegar tónsmíðar.
![]() |
Lögin sem komust áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2009 | 21:26
Líka kemur sú fordild fram
,,Iðrun var ekki til á Snæfellsnesi, heldur stælur og þjark. Þó skal ekki dul á það dregin, að þetta fólk stundaði altarisgöngur." Svo mælir séra Árni Þórarinsson í ævisögu sinni um sóknarbörn sín. Miðað við viðtal við herra Gjeir Haaarde, sem mbl.is vitnar til, hefði nefndur Gjeir fallið eins og flís við rass inní söfnuð séra Árna.
Iðrun er ekki til á ríkisstjórnarheimilinu, heldur útúrsnúningar og óskammfeilni. Iðrun er heldur ekki til innan flokksforustu Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar, aðeins spilling og samtrygging. Þó skal ekki dul á það dregin, að þetta fólk stundaði tíðar altarisgöngur í musteri Mammons og hafði yfir helgislepjulegar setningar um frjálsan markað, frjálst flæði fjármagns, hagvöxt og góðæri.
Og ekki er fyrir að synja að séra Hallgrímur sálugi í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd hafi verið forspár maður og séð fram í tímann enda var hann kraftaskáld. Það er t.d. ekki annað að sjá en hann hafi haft ríkisstjórnir síðustu 17 ára í huga þegar hann orti:
Ábatavon og vinahót
verkin dylja, þó séu ljót.
Líka kemur sú fordild fram,
sem forsvarað getur Barabam.
![]() |
Geir: Árið verður mjög erfitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2009 | 18:23
Fjölmenni við banabeð hinnar háöldruðu Maddömu
Fjöldi húskarla og griðkvenna hefur nú safnast saman kringum banabeð hinnar háöldruðu Framsóknarmaddömu. Gamla konan er sem fyrr rænulítil og talar óráð ef henni hrökkva orð af vör. Þó tókst henni í dag að stynja upp tilskipun um að þeir sem saman eru komnir heiðruðu húskarlinn Guðna Ágústsson með áköfum lófaslætti. Ekki stóð á húskörlum og griðkonum Maddömunnar að reka upp öskur Guðna til heiðurs og minnast þannig með skönuði þeirra góðu tíma þegar þau misþyrmdu Guðna uppá hvern dag þá er hann annaðist verkstjórn í Framsóknarfjósi gömlu Maddömunnar.
Banalega Framsóknarmaddömunnar er orðin löng og ströng, og er mála sannast að hún þráir af heilum hug þá ljúfu stund er hún fær að hverfa af þessum heimi. Henni sjálfri er fullkunnugt, þrátt fyrir hláleg elliglöp af ýmsu tagi, um þá nöturlegu staðreynd, að fram til þessa hefur enginn unnið sitt dauðastríð, og allra síst að muni hún sjálf vinna slaginn við manninn með ljáinn. En þessari staðreynd hafa húskarlar og griðkonur Maddömunnar ekki áttað sig á enn sem komið er og halda af landskunnri heimsku sinni og bjánaskap að kerlingarhróinu fari að batna hvað úr hverju og verði aftur að stæltri ungkerlingu með fjósaskít undir nöglunum.
![]() |
Guðni Ágústsson heiðraður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2009 | 17:50
Ástþór á Grunstein´s Hospital
Úti í Evrópu hefur um árabil starfað læknir, dr. Grunstein að nafni, sem hefur sérhæft sig með mjög góðum árangri í sjúkdómum líkum þeim er Ástþór Magnússon og hans sálufélagar eru haldnir. Aðferðin sem dr. Grunstein notar til að koma sjúklingum sínum til heilsu er einföld, ódýr og skilvirk og árangurinn nær 100%.
Meginþemað í meðferð dr. Grunsteins er eitthvað á þessa leið: 1. Alger svelta í þrjá daga, aðeins einn tebolli kvölds og morgna ásamt aspiríni til þess að svita sjúklinginn. 2. Stórir kínínskammtar. 3. Stólpípa tvisvar á dag með einum lítra af volgu vatni. 4. Hellt í þá laxerolíu ásamt sápuvatni og glussa. 5. Sveipaðir lökum, vættum köldu vatni. Einnig hefur dr. Grunstein notað uppsölumixtúrur á hina veiku með áhrifaríkum árangri.
Nú er svo komið, þó þjóðin sé orðin skuldug uppfyrir haus, að ekki verður lengur undan því vikist að efna til samskota svo hægt verði að senda Ástþór Magnússon og hans vini, ef einhverjir eru, til lækninga á Grunstein´s Hospital. Það er ekki lengur hægt að horfa uppá manninn kveljast svona voðalega án þess að koma honum til hjálpar.
![]() |
Fjöldi manns á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.1.2009 | 22:42
Þjóðin vill ekki sáttmála við Gjeir og Ingibjörgu
Skúli Helgason framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar segir að ríkisstjórnin verði að gera nýjan sáttmála við þjóðina með uppstokkun í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu ásamt breytingum á ríkisstjórninni.
Látum nú vera hvað hinum ljóngáfaða jabbnaðarmanni Skúla Helgasyni framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar dettur í hug.
Hinsvegar hefur þjóðin akkúrat engann áhuga á að gera sáttmála af neinu tagi við núverandi ríkisstjórn. Þjóðin vill þessi endemi burt með húð og héri og vonast til að sjá þau aldrei meir.
Fásinna í hrossalækningadúr eins og framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar fimbulfambar um er kostulegt innlegg. Þjóðin frábiður sér slíkar sjónhverfingar.
![]() |
Skúli Helgason: Krafa um breytingar á rétt á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.1.2009 | 22:10
Viðskiptagreiningarnámskeiðið í Valhöll
- Þú, helvítis aumingi þinn, mælti hinn frækni fémínísti, frú Ingveldur við Kolbein mann sinn, - skalt eiga mig á fæti ef þú getur ekki skaffað betur. Ég þarf að eiga almennileg föt ef ég á að geta látið sjá mig innanum annað fólk af minni stétt á viðskiptagreiningarnámskeiðinu í Valhöll. Svo skaltu, hundurinn þinn, drullast til að endurnýja reinsróverinn og kadilakkinn strax á morgun. Það er till skammar að láta sjá sig þessum helvítis druslum deginum lengur. Heldur þú, fanen gale mæ, að ég sé einhver íslandsmand?
Um kvöldið grét Kolbeinn Kolbeinsson sig í svefn. Daginn eftir stóðu nýr reinsróver og nýr kadílakk fyrir framan tvöfalda bílskrúinn við heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar.
![]() |
Launamisréttið bitnar á körlum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2009 | 20:28
Viðeigandi minnisvarðar, krunk í hröfnum og hvæs drauga
![]() |
Táknmynd góðæris eða kreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.1.2009 | 19:38
Grímklæddir paurar ASÍ og atvinnurekenda
Hvaða paurar eru það á vegum atvinnurekenda og skrifstofusjakalalýðsins innan vébanda ASÍ sem telja sig þess umkomna að moka 75 milljörðum með gjörspilltum klónum útúr lífeyrissjóðunum til að hlaupa undir bagga með sérvöldum atvinnurekendum og fjárglæfrakvikindum sem eru með allt á hælunum? Finnst þessu liði alveg sjálfsagt að vaða í sjóði sem það á ekki nokkurn skapaðan hlut í og stela þar öllu steini léttara þegar þeim sýnist? Gera þessar nafnlausu og grímklæddu persónur úr skúmaskotum atvinurekenda og ASÍ sér enga grein fyrir að þjóðin er búin að fá margfallt meira en nóg af ránsherferðum auðvaldsins um landið þvert og endilangt? Eru þær ekki með á nótunum að meirihluti þjóðarinnar vill umfram allt brjótast undan oki gjörspilltrar valdastéttar og er tilbúin að fórna miklu til að svo megi verða?
Það er sorglegra en tárum taki, að snillingarnir sem tekið hefa að sér að leiða samtök launafólks á almennum markaði skuli vera svo sljóir og samdauna valdaklíkunni, sem leitt hefur þjóðina út í verstu ógöngur sem um getur, að þeim ekki einusinni flökri við að taka þátt í, ásamt atvinnurekendum og ríkisvaldinu, að ráðast á lífeyrissparnað verkafólks án þess að tala við kóng eða prest. Hverskonar einginlega andskotans skepnur eru þetta, að ég ekki segi glæpamenn?
Það verður að flýta byltingunni eins og hægt er svo hægt verði að koma í veg fyrir frekari gripdeildir og óhæfuverk yfirstéttarskrílsins.
![]() |
75 milljarða fjárfestingargeta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.3.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007