Bloggfærslur mánaðarins, mars 2016
17.3.2016 | 19:11
Þegar konferensráðið kemur! Nei, þegar Halla Tomm kemur, ho-ho-hoooj ...
Ekki má minna vera en að Íslendingum verði boðið uppá að minnsta kosti eina auðvaldskerlingu í hönd farandi forsetakosningum. Halla Tomm, sennilega eitthvað skyld Sóley Tomm, hefir um árabil lagt sitt gullhúðaða lóð á vogaskál græðginnar, peningahyggjunnar og hrunpólitíkurinnar við gífurlegan fögnuð yfirstéttar- og efrimillistéttarkérlínga sem segjast vera fémínístar. Nú, Halla Tomm kveðst vera mikill vigdísarfinnbogadóttiraðdáandi og lofar því að verða frú Vigdís endurborin gjöri þjóðin hana að forseta og halda áfram, hvar frá var horfið, að gróðursetja heimulu og fífla við öll viðeigandi og óviðeigandi tækifæri. Þannig megum við eiga von á að eignast annan, eða ölluheldur endurborinn, últrasnobbaðann gróðursetningaforseta með snörpu auðhyggjuívafi.
Ég þykist viss um, að allrahanda auðvaldskérlíngum er innanbrjósts, vegna framboðs Höllu Tomm, eins og Runólfi Jónssyni í Brekkukoti þegar hann stóð á tröppum prestaskólans og sagði ,,þegar konferensráði kemur! þegar konferensráðið kemur, ha-ha-haaaahh!, nema auðvaldskérlíngarnar gaula auðvitað ,,þegar Halla Tomm kemur! þegar Halla Tomm kemur! ho-ho-hoooj!
Þó svo að frú Ingveldur sé ákafur stuðningsmaður einkaframtaks, græðgi og auðvalds, þá er hún ekki par hrifin af framboði Höllu Tomm af því að hún stendur á því fastara en fótunum að hún sé systir Sóleyjar Tomm fílí-romm-bomm-bomm og auk þess hefir frú Ingveldur haft í hyggju að bjóða sjáfa sig fram til forsetaembættisins fyrir hönd frjálshyggjukapítalista og péééníííngagéðsjúklinga. Er nú íllt í efni og hyggur frú Ingveldur á hefndaragerðir vegna framhleypni Höllu Tomm og óviðunandi ætternis hennar.
Sárið í samfélaginu enn til staðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.3.2016 | 18:23
Vargur í véum: Stórtennt búrtík lætur að sér kveða
Það lítur út fyrir að búrtík Steingríms hafi gerst heldur stórtennt í dag er hún réðist á ráðsmann gömlu karlægu Framsóknaramaddömunnar og hans ektakvinnu, sem ættuð er frá Jómfrúreyjum. Árásin var beinskeytt og grimmdarleg og liggja víst, að því er sagt er, bæði ráðsmaðurinn og ektakvinnan enn í valnum í tortólskri áfallastreituröskun. Sem betur fer er fagfólk í boði gifturíka kaupfélagssjórans fyrir norðan land á leiðinni til að veita skötuhjúunum áfallahjálp og freista þess að tosa þau uppúr svaðinu.
Grunur leikur á að húsbóndi búrtíkurinnar hafi tekið þátt í árásinni á ráðsmannshjón gömlu Framsóknarmaddömunnar, hann er tannlaus orðinn, skegglaus og hárlaus og því lítill bitvargur og furðu hlálegur. Og ekki lét búrtíkin við sitja að bíta hinn vörpulega ráðsmann heldur bínefndi hann konu hans með ljótum orðum, kallaði hana meðal annars hrægamm og fleira í þeim dúr. Nú er verið að stofna félag til varnar ráðsmannshjónunum, slá um þau Skjaldborg og vefja í bómull eins og hverja aðra brothætta guðsengla.
Það eru önnur hjón, Kolbeinn Kolbeinsson framsóknarmaður og frú Ingveldur eiginkona hans, sem standa að stofnun fyrrnefnds félags og Skjaldborgar, því hjarta þeirra slær með tortólungum og jómfrúreyjungum sem eru órétti beittir af lúsugum búrtíkum og enn lúsugri eigendum þeirra.
Sagði Sigmund vera kröfuhafa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2016 | 18:40
Lesskilningur og hlálegur hvalablástur Stjána Mö og hans nóta
Varla er hægt að lá Bjarna Ben fyrir að svara Krisjáni Möller og öðrum samfylkingargrínurum á stuttan og lagóðan hátt. Bjarni veit sem er að samfylkingarfólk, og þá ekki síst Stjáni Möller, skilja ekki langann texta, en sennilega misreiknaði fjármálaráðherrann lesskilning þessa fólks og skilaði of löngu svari, því Stjáni og þau hin skilja í mesta lagi eina til tvær miðlungsstórar málsgreinar og því fór sem fór. En það hafði skemmtunargildi, að vísu fávíslegt, að fylgjast með rassaköstum Stjána og hans aftaníossa, þegar þeir þeyttust eins og blóðgrimmir hvolpar uppí ræðustól Alþingis við upphaf þingfundar í dag til að skamma Bjarna Ben, því að þessir hvolpar reyndu að breiða úr sér blása eins og hvalir og fengu fyrir vikið andarteppu og urðu bláir og svartir í framan.
Nú er það svo, að Samfylkingin og annað kratastóð á Íslandi er pólitísk blanda af Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum og gáfuleg eftir því. Mikill rígur og urgur er einlægt í kratafjöndunum útí frændgarð sinn í Framsóknarflokknum útaf því hvor þeirra eigi að fá að liggja í bælinu hjá Íhaldinu. Ekki er nú andagiftin meiri. Og ekki minkar vanmetakenndin hjá hænsnaher kratanna við að aðalflokkurinn þeirra, Samfylkingin, er að trénast upp úr illkynja innanmeini, en þó samt aðallega uppgerð.
Í ljósi þess að málarekstur og hvalablástur Stjána og kratanna í dag útaf svari Bjarna Ben um sölu Landsbankans á Borgun, þá er rétt að geta þess að Stjáni hefði sjálfur selt Borgun til þeirra sem keyptu hefði hann ráðið för. Hræsni er nefnilega eitt af helstu leiðarstefjum Samfylkingarinnar, en því miður skilja kratar ekki það orð þannig að góðu og velmeinandi fólki ber að fyrirgefa þeim fáviskuna og bægslaganginn. Í þokkabót er eina hugsjón Samfylkingarinnar og annarra kratahópa að selja landið fyrir fullt og allt í hendur erlends auðvalds, það er fögur hugsjón sén frá bæjardyrum kotkarlanna í hjáleigukotinu, en óskiljanleg frá sjónarhóli vitiborinna og skynsamra manna.
Voru ósáttir við svar fjármálaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2016 | 11:44
Núll og nix, nöldur og trix
Samfylkingin er sprenghægilegur flokkur. Raunar er hálf óviðkunnanlegt að kalla þetta samsafn andlegra veiklaðra lukkuriddara flokk því ruglið og kjánaskapurinn í ræfils fólkinu atarna er með þeim ósköpum að ekki getur verið um flokk að ræða. Samfylkingarspólurokkunum verður oft tíðrætt um að þeir séu jafnaðarmenn þrátt fyrir að ekki finnist í þeim ærleg sósíalísk taug fremur en eðlislægum hægrituddum. Ennfremur þykir það mikið sport innan Samfylkingarinnar að tala eins og þeir hafi einstaka hæfileika til að framkvæma kapítalismann betur en kapítalistarnir sjálfir. Af þessu leiðir að örlög Samfylkingarinnar verða að þorna upp í rólegheitunum, hið sjálfvirka náttúrulögmál réttlætisins mun sjá um það.
Nú um stundir leggja undirmálsspjátrungar úr skrímslasafni Samfylkingarinnar höfuðáherslu á að tilkynna framboð sín gegn sitjandi formanni, sem líka er undirmálsuppvakningur, en á meðan liggur Össur Skarphéðinsson kumrandi undir sæng og fýlir grön uppí loftið. Össur þessi er sérfræðingur í innanflokksátökum, kafbátahernaði, baktjaldamakki og almennum slóttugheitum. Hann er nú ekki að íhuga framboð til formanns Samfylkingarinnar því honum þykir eflaust nóg að hafa verið borinn ráðum og flæmdur úr því sæti einu sinni.
Það verður ugglaust fjarska ánægjulegt fyrir þær örfáu hræður sem enn eru eftir í Samfylkingunni að fá að velja á milli skörunga á borð við Árna Pál, M.O. Schram og hr. H. Hjörvar. Slíkt val er sem kunnugt er mjög vandasamt fyrir persónur með skerta heilastarfsemi af völdum krataeðlisins. Best væri þó fyrir reyturnar af Samfylkingunni að ganga í Pírataflokkinn eða Heimdall og ganga í stuttbuxum, hvítri skyrtu og með bindi alla daga og láta að sér kveða á kaffihúsum þar sem undirmálsspjátrungar geta þóttst menn með mönnum þrátt fyrir að vera bara núll og nix, nöldur og trix.
Magnús Orri býður sig fram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.3.2016 | 11:00
Hættulegir samfélagssjúkdómar leika lausum hala
Eins og við mátti búast var það frjálshyggjumaður sem tók sig til og reykspólaði á grasinu á Austurvelli í gærkveldi. En nú brá svo einkennilega við, að umræddur frjálshyggjumaður var ekki í félagsbundinn Heimdalli heldur Pírötum. Og þessi frumlegi frjálshyggjupírati sló ekki slöku við þarna á Austurvellinum og lét bifreið sína ausa mold og drullu yfir Alþingishúsið, Kaffi París og Jón Sigurðsson. Nú er greinilega af er áður var þegar Heimdellingar vóru mesta vá samfélagsins því Píratar, einkum smápíratar, hafa tekið við því vafasama hlutverki. Það hefir lengi verið til umræðu að ríkið festi kaup á skordýraeitri til að spreyja á púkastóð frjálshyggjunnar, en því miður hefir ekki tekist að ná pólitískri samstöðu um þetta þjóðþrifamál.
Það segir í fréttinni að lögreglan hafi tekið frjálshyggjupíratann í sína vörslu og hann hvíli nú eins og lamaður púki á gólfinu á grútskítugum fangaklefa. Þegar hann vaknar er viðbúið að veslings pilturinn pissi í buxurnar af hræðslu, það er að segja ef hann er yfirleitt í einhverjum buxum, af einskærri ofsahræðslu, því honum hefir verið kennt að lögreglan berji þá sem hún gómar í kaldakol og beiti þá ítrasta harðræði þannig að líf fangans dansi á bláþræði.
En allt að einu er orðið mjög aðkallandi að hlutaðeigandi stjórnvöld og vísindamenn finni ráð gegn frjálshyggjuvörgum. Einhvern tíma var prófað að núllstilla þessi fyrirbæri með snörpum rafstraumi í endaþarminn, en það hafði bara þveröfug áhrif, bölvuð kvikindin espuðust öll upp í vitleysunni og urðu mun hættulegri. Um það eru mörg sorgleg dæmi. Talið er að sjúkdómurinn sem veldur hinum kapítalísku frjálshyggjuheilkennum sé mun hættulegri en framsóknarvírusinn og krataeðlið, sem þó eru álitnir sérlega heilsuspillandi og eyðileggjandi fyrir samfélagið. Og eitt er víst: Ef ekki verður skorin upp herör gegn þessum þremur hættulegu samfélagssjúkdómum mun allt fara til andskotans aftur og aftur og aftur.
Spólandi á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2016 | 22:50
Þegar hundarnir í sveitinni stofnuðu morðfélag
Ég held maður muni helvítis varginn hann Snata sem fékk flesta hundana í sveitinni með sér í að gerast dýrbítar. Og ekki nóg með það því að á einu sumri lögðu þeir að velli að minnsta kosti 250 fjár, bæði dilka og fullorðnar skepnur. Auk þess narraði Snati heimskann hvolpsræfil til að hlaupa inní rammgera girðingu og slíta undan þarfanauti hreppsins með þeim afleiðingum að griðungurinn gjörtrylltist, hljóp niður girðinguna og tók sprettinn til sjávar og stökk fyrir sextugt bjarg og á haf út og sást aldregi meir. Fyrir athæfi sitt var hvolpurinn skotinn bak við fjáhúshlöðuna, Snata til ómældrar ánægju. Það var voðalegt ástandið í sveitinn þetta sumar og bændur við að bilast á sönsum fyrir fullt og fast.
Svo komst uppum hundaskrattana, alla nema Snata að sjálfsögðu. Bændum þóktu glæpir smalahunda sinna svo hryllilegir að þeir hengdu þá í gálga eins og morðingja. Þegar hin hátíðlega hengingin fór fram lá Snati í leynum og fylgdist af áfergju með framvindu mála með glott á vör. Þegar allt var um garð gengið og sauðfjármorðhundarnir dingluðu steindauðir í snörunni, skokkaði Snati heim til sín og stakk trýninu uppá milli rassakinnanna á húsmóður sinni að henni forspurðri og dró andann djúpt að sér, en hún snöri sér við krossbölvandi og reyndi að sparka í Snata, sem vék sér undan glaður í bragði og lagði sig í bælið sitt og fór að sofa.
Í sveitinni hefir mönnum orðið tíðrætt um hvur andskotinn það hafi verið sem hljóp í hundana blóðsumarið mikla. Það hvarflaði meira að segja að sumum að illur andi hefði hlaupið í kvikindin fyrir tilstuðlan galdra og að galdrakindin væri viss húsfreyja þar í sveit. Sem betur fer komst galdrakenningin á það stig að grunuð húsfreyja væri tekin og brennd á báli, en það munaði vissulega ekki miklu. Þaðan í frá hefir þessi kona verið gjörsamlega ærulaus í augum sveitunga hennar og nærsveitarmanna. En Snati, sem er þagmælskur hundur og slóttugur, liggur einn á leyndarmálinu mikla og mun ekki upplýsa það í þessu lífi og því síður því næsta.
Dýrbítur laus í Vík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2016 | 17:39
Strangheiðarlegt fólk situr undir árásum skinhelgra hundingja
Það er alkunna að þiggjendur arðgreiðsna, þ.e. hinar kapítalísku haugsugur, eru afar mótfallnar því að stjórnvöld skipti sér af gróðabralli þeirra. Þá eru og þekkt viðhorf bölsýnismanna og öfundarlýðs útí arðgreiðslur og þá menn sem þær ákveða. Auk þess eru til skítmenni sem láta sér sæma að hlægja að arðgreislum og því meir sem þær bera merki um örvita græðgi og smásálarhátt; fólk sem hlær að arðgreislum er ugglaust haldið sóðalegri geðveiki og hefði gott af að kynnast höggstokknum. Já ...
Miskunnarlausar rottur örlaganna hafa nú hagað hlutunum þannig að sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn eiginmaður hennar mega sitja undir bölvi og hótunum eða skensi og jafnvel athugasemdum af kynferðislegum toga vegna þess að þeim hefir lagst góður arður hlutabréfa þeirra og einnig að þau hafi sem stjórnarmenn í glæsilegum hlutafélögum samþykkt arð á arð ofan, þar á meðal til þeirra sjálfra. Og hvað heldur nautheimskur villulýðurinn að frú Ingveldur og Kolbeinn geri við arðinn sem bæði þau sjálf og aðrir greiða þeim af kristilegri gjafmildi? Jú, það heldur að þau kaupi brennivín og eiturlyf til að halda sjálfum sér og vinum sínum draugfullum og vitlausum allar helgar og helst alla vikuna. Svona er nú hugsunarháttur hins nautheimska lýðs.
Sjálf segir frú Ingveldur að henni sé akkúrat andskotans sama hvað óuppdreginn skríllinn heldur eða segir um þau hjónin og aðra arðgreiðsluþega. Hún þekki sjálf fullt af slepjulegum kratakvikindum, sannkölluðum krataskitum, sem svíki linnulaust undan skatti og stundi alskyns loftfimleika í lágkúrulegum péníngaundanskotum jafnhliða því að öskra og veina ,,spilling-spilling-spilling" allstaðar sem þeir komast að með frasana sína ,,löglegt en siðlaust og spilling-spilling spilling." Til dæmis þekki hún útbelgdann kratahöfðingja með augun útúr hausnum af vandlætingu sem hafi ekki viljað heyra á annað minnst þegar hann var að byggja en að borga öllum iðnaðarmönnunum svart. - Sá djöfull, sagði frú Ingveldur, - lætur ekki eðlislæga spillingar ónáttúru sína aftra sér frá að saka aðra um spillinu og glæpi, fyrir nú utan að eiga hlutabréf og taka við arðgreiðslum af þeim með gráðugu geði.
Skipti sér ekki af arðgreiðslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2016 | 11:37
Snemmbúið aprílgabb á enda runnið
Auðvitað fer Katrín Jakobs ekki í forsetaframboð, enda var aldrei nokkur von til að hún myndi þora því. En henni þótti afturámóti unaðslegt að fá óverðskuldaða athygli útá umræðuna um hugsanlegt forsetaframboð hennar, þótt það væri frá upphafi eins og hvert annað ómerkileg aprílgabb. Það stóð heldur ekki á alskonar kratastóði að ýta undir forsetaóra í sambandi við Katrínu í þeirri von að ef hún yrði forseti væri eftilvill greiðari leið að lauma landsöluakvæði inní stjórnarskrána, en sem kunnugt er stendur stjórnarskráin í vegi fyrir tilheyrandi fullveldisafsali við inngöngu í ESB.
Það mátti öllum vera ljóst frá upphafi að Katrín myndi aldrei þora í kosningaslag um embætti forseta Íslands því þá yrði hætt við að upp kæmist úr hverju hún er gerð. Og eftir að Davíð öskraði á hana um síðustu helgi virðist hún hafa áttað sig á að ekki væri lengur vogandi að halda þessu aprílgabbi áfram. Auk þess höfðu ýmsir lagt það á sig að kanna stjórnmálaferil Kartínar og komist að því að hann er bæði núll og nix og raunar allur einn óslitinn mínus; það sem furðaði rannsakendur mest var að Katrín hefur komist til allmikilla metorða í stjórnmálum án þess að hafa lagt nokkuð fram sem verðskuldar kynlegan frama hennar á því sviði.
Í stað þess að verða eftilvill gluggaskraut á Bessastöðum ætlar Katrín Jakobsdóttir að halda áfram að vera fátæklegt gluggaskraut á heimili Flokkseigendafélags VG. Það er heldur ekki amalegt fyrir hana að þjónusta þrifagemlinga á borð við Steingrím J. Sigfússon, Álfheiði Ingadóttur og Svavarsfjölskylduna með því að fórna sér, íklædd nýju fötunum keisarans, til sýnis í gluggaboru þessara loddara og skemmdarvarga á vinstrivængnum svokallaða. Hitt er svo annað mál að berrassaðar gínur í gluggum gjaldþrota verslanna eru ávallt brjóstukennanlegar í augum vegfarenda.
Katrín ætlar ekki í framboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.3.2016 | 21:53
Hann mun sturta öllum hroðanum í eldsofninn í Sorpu
Bæjarstjórn Kópavogs er fræg af þeim endemum að vera eingöngu skipuð gúmmíkörlum af báðum kynjum. Af sjáfu leiðir að slík stjórn kemur aungvu vitibornu í verk, hvort heldur hún samþykkir eitthvað eða nákvæmlega ekkert. Eitt tókst þó þessum dæmalausu liðleskjum að afreka, en það var að flæma borgarstjóra Kópavogs, herra Gunnar I. Birgisson, úr bænum á heldur lúalegan hátt. Síðan hefir herra Gunnar I. verið í útlegð fyrir norðan land eins og Grettir Ásmundarson forðum.
En nú bersat góðar fréttir af þvi að bæjarstjórnin í Kópavogi ætli sér að sjúga allt gúmmíkurl uppúr íþróttavöllum bæjarins svo að blessuð börnin í bænum verði ekki kurlinu atarna að bráð og dagi upp sem veiklaðar fuglahræður öðrum landsmönnum að aðhlátursefni. Það verður eflaust sjón að sjá Manna sveitarstjóra og hin gægsnin í bæjarstjórninni húkandi á hækjum sér við að tína upp gúmmíkurl. Það verður aldrei barn í brók. Svo rennur bæjarstjórnin á rassinn með allt saman eins og vanalega og einhenda sér í að samþykkja eitthvað annað sem aldrei kemst í framkvæmd.
Gott fólk hefir lengi haft áhyggjur af bæjarstjórninni í Kópavogi, en nú eru eiginlega allir orðnir úrkula vonar um að stjórnarnefna þessi hafi sig nokkurn tíma uppúr þeirri rotþró sem hún hefir dvalið í um árabil. Á sama tíma situr gamli borgarstjórinn, Gunnar I. Birgisson, blýfastur í snjóskafli í einhverjum mesta útkjálkaörreytisrassi sem finnst fyrir norðan land. Jafnvel Grettir Ásmundarson var í þjóbraut útí Drangey miðað við þann óskaplega útnára. Eina von Kópavogsbúa er að Gunnar I. losni með vorinu úr skaflinum og komi suður og taki til í Kópavogi; hann muni þá væntanlega byrja á að sópa gúmmíkurlinu ásamt með gjörvallri bæjarstjórninni uppá vörubíl og sturta öllum þeim hroða beint í eldsofninn í Sorpu.
Dekkjakurlið burt úr Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.3.2016 | 21:13
Og veittu honum ósvikna ráðningu
Það var lítil von til að björgunarsveitirnar finndu manngarminn strax fyrst hann var búinn að troða sér ofan í svefnpoka. Trúlega hefir hann undið sig eins og ánumaðkur niðrí pokaskrattann, með hausinn á undan, því hann hafði áreiðanlega uppi áform um að fela sig fyrir björgunarsveitarmönnum. Hinsvegar eru þeir í björgunarliðinu ekkert á því að láta svona helvíska labbakúta leika á sig og því fundu þeir manninn að lokum og drógu hann sem einn melrakka uppúr svefpokanum og veittu honum verðuga ráðningu.
Vart þarf að fara í grafgötur með að ferðalangur þessi hefir gengið óvirðulega um ósnorta náttúru landsins, eins og aðrir fuglar af þessari tegund, með því að skilja eftir sig hægðir um holt og móa, jafnvel ofaní læki og volgar laugar. Þessum ókjörum verður að linna. Enda veittu björgunarsveitarmenn, eins og fyrr segir, ferðamanninum ósvikna ráðningu um leið og þeir höfðu dregið hann uppúr svefnpokanum. Lesendur verða sjálfir að geta sér til um í hverju ráðningin var fólgin því á mínu bloggi verða menn sér ekki úti um fróðleik í misþyrmingum. Þó verður að segjast eins og er, að pilturinn fékk svo almennilega á baukinn að hann mað eftir því og lætur sér ekki framar detta í hug að koma til Íslands og útsvína Fimmvörðuháls og aðrar þjóðargersemar með hægðum og öðrum álíka óþverra.
Annars er ferðamennska á Íslandi viðlíka hættuspil og rússnesk rúlletta og koma færri heim úr því feigðarflani en að heiman fóru. Þarafleiðandi mun ferðamannavandamálið á Íslandi leysast af sjálfu sér og vér heimamenn getum aftur farið að fá oss spássértúra útí guðsgræna náttúruna án þess að eiga á hættu að stíga ofaná túristasaur eða aðra andstyggilega líkamsvessa úr þessum dónum.
Fannst ofan í svefnpoka sínum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 17
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 141
- Frá upphafi: 1545310
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 131
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007