Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2016
10.4.2016 | 19:41
Fræðigrein um það sem allir vita
Sú merka stétt, ,,stjórnmálafræðingar," eru iðulega dregnir af fjölmiðlum fram í dagsljósið til skrafs og útskýringa þegar einhver skita hrjáir sjórnmálin okkar. Ekki vantar að stjórnmálafræðingarnir séu ábúðarfullir og alvarlegir í framan og geri sér allt far um að láta eins og þeir mæli af munni fram sérlega frumlega speki og lærdóm sem öllum nema þeim sé hulin. Staðreyndin er hinsvegar, að nánast allt sem hinir langskólagengnu stjórnmálafræðingar hafa fram að færa eru atriði, sem hvert smábarn og þeir sem eldri eru, sáu í hendi sér og vissu uppá hár áður en grafalvarlegur og reigður stjórnmálafræðingurinn hóf að ausa úr fleytifullum viskubrunni sínum. Sannarlega ljót og leiðinleg kerling Staðreyndin. Einu skiptin, sem stjórnmálafræðingarnir opinbera eitthvað sem almenningur var ekki búin að koma auga á fyrir, er þegar þessir framúr hófi gáfuðu og hálærðu fræðingar blanda eigin stjórnmálaskoðunnum saman við jukkið svo úr veður tormeltur eiturjafningur. Vart þarf að taka fram að stjórnmálafræðingar eru fyrir það fyrsta allir heilaþvengnir af kapítalisma í grunninn og eru gjarna á mála hjá Íhaldinu eða Krataskitunum. Það eitt og sér segir allt sem segja þarf um stjónmálafræðina og stjórnmálafræðingana
Stefánía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur er sjálfstæðisflokkskona og þessvegna geðjast henni ekki að kosningum strax og ber fyrir sig að ,,þá gefist lítið færi á endurnýjun" í forystusveit stjórnmálaflokkanna. Hin raunverulega ástæða fyrir skoðun Stefáníu er auðvitað sú, að uppáhaldsflokkarnir hennar, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, eru vísir til að bíða algjört afhroð ef kosið væri strax, en einhverjar tálvonir hníga til að afroðið verði ekki eins hrottalegt ef kosið verður einhverntíma í haust eða næsta vor. Um endurnýjun forystusveitanna er það að segja, að í hverjum kosningum, síðasta aldarfjórðunginn eða svo, hefur endurnýjun orðið heilmikil og stundum gríðarleg, en því miður alltaf á verri veginn; þingmannahjörðinni hefir hrakað hratt með hverjum kosningum og er nú svo komið að sauðsvartur almúginn er farinn að líta niður á þessa hjörð og telur hana saman standa af blábjánum, slóttugum melrökkum og undanrennuhyski. Það er nú það
Gefur lítið færi á endurnýjun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.4.2016 | 09:29
Hugmynd um villumannanýlendu í Stagley
Höktir í salinn Höskuldur þorn,
heldur um rýtinginn beitta.
Vigdísi litlu þeir veltu útí horn,
virtu hana ei meir en feyskið korn,
þar hún vælir sig sveitta og þreytta ...
(Úr sálmabók Framsóknarfjóssins. Höf: Gamla Framsóknarmaddaman)
Nú tíðkast hin breiðu spjótin í ríkisstjórnarflokkunum og skjögra þeir hænsnaherir um illa sárir og sumir þar með vasaknífa uppí búrsöx í bakhlutanum. Hinn mikli skuggastjórnandi Framsóknar, sjálfur Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri ræður ekki lengur neitt við neitt, enda lagstur í kojufyllirí, yfirbugaður af sorg og sódómísku innræti. Og þessum apaköttum er ætlað að sjórna landinu, okkur öllum, frá degi til dags eins og vér séum höfuðveikur og riðandi sauðpéníngur. Nei takk, svona viljum vér ekki og leggjum til að apaköttunum verði öllum smalað inná Klepp og sprautaðir í rassgatið með krassandi metal svo að þeir megi verða skynibornir og venjulegir einstaklingar.
Svo er komin upp hugmynd í samfélaginu um að ríkið kaupi Stagley í Breiðafirði og flytji skæðustu villumenn ríkisstjórnarflokkanna þangað í ánauð, öðrum stigamönnum til aðvörunnar og lítilsigldum fíflum til viðvörunnar. Þetta er ágæt hugmynd svo langt sem hún nær, og vissulega er Stagley eyja rétt eins og Tortóla. Þá má heita borðliggjandi að umræddir villumenn munu eiga góða daga í þar ánauðinni á Stagley, ef hugmyndin verður að veruleika, lifa þar á þaraþönglum og marfló.
Átti einnig að víkja af þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2016 | 07:55
Eignarhaldið er ljóst - en það eru slagsmál í flórnum og víðar
Nú það liggur í augum uppi, ef ekki augum úti, hverjir eiga tvo stærstu hlutina í Samfylkingunni, hjáleigu Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn á auðvitað stærsta hlutinn í gegnum eignarhaldsfélag á Seychelles-eyjum, Framsóknarflokkurinn á næststærsta hlutinn, að sjálfsögðu gegnum gott aflandsfélag á Tortólu, Alþýðuflokkurinn á svo einn ræfilslegan hlut í gegnum eignarhaldsfélag skráð í Melrakkaey sem er staðsett skamt undan Kvíabryggju. Rétt er að geta þess að Sjálfstæðisflokkurinn, Höfuðbólið sjálft, á bæði Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn, enda þarf sjúklingurinn á tveimur hækjum að halda.
Hitt er svo aftur annað mál, að innan fyrrnefndra flokka og á milli þeirra eru dylgjur miklar þessa dagana. Fyrir örfáum dögum studdu allir húskarlar og griðkonur Framsóknarmaddömunnar Sigmund Dávíð og lýstu því hróðugir yfir að það væri hið besta mál að hann væri gjörspilltur og dómgreindarsljór og ætti pénínga í skattaskjólum útum allar trissur að því að það er svo erfitt að eiga pénínga á Íslandi. Núna keppast sömu endemi við að afneita Sigmundi og segja hann hafa verið arfavitlausan að hafa ekki sagt frá Tortólaraunum sínum fyrir löngu og enn fremur að hann sé arfavitlaus frá náttúrunnar hendi og réttast væri að selja hann til Sjálfstæðisflokksins eins og fótboltamann milli liða.
Og í gærkvöldi gaspraði hin sýslumannslega sjálfstæðisdrottning, Unnur Brá, um að Bjarni Ben og frú Nordal ættu að hundskast til að segja af sér eins og Sigmundur, sennilega til að hún sjálf fái eins og eitt ráðherraembætti. Í Framsóknarfjósinu veltast húskarlarnir og griðkonunar um í flórnum, sem er einn hryllilegur spillingarvígvöllur, í hörðum slag, bítandi og klórandi og hrækjandi, ekki síst útaf því uppátæki einhverra bögubósa þar á bæ að sækja dóttur Alfredo spillingarpramma og gera hana að ráðherra en ekki Vigdísi Hauks eða Höskuld prestsson. En sem betur fer, þrátt fyrir að gamanið sé grátt, þá vega hinir pólitísku slagsmálahundar hverja aðra í mesta bróðerni og vinsemda og rísa upp alheilir næsta morgun.
Leynd yfir eigendum húss Samfylkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2016 | 07:37
Auðvaldsfryggð og framsóknarfriður
Merkilegt þegar spilltir kallar og heldur ógáfaðir heimta fryggð til að starfa. Með leyfi að spyrja: Starfa við hvern fjárann? Bjarga spillingunni, græðginni, sérhyglinni og skepnuskapnum frá truflun með kosningum strax? Þetta fryggðarsnakk Sigurðar Inga og hans nóta þýðir varla annað. En þeir munu auðvitað fjúka á haugana fyrr en þá sjálfa varir með allt sitt vafasama stigamannahjal og fryggð.
Eftir miðnætti þegar ró var kominn á lýðinn og Vigdís Hauks og Sigmundur litli farin að sofa, sáust Sigurður Ingi Bjarni Ben pissa í kross bakvið Alþingishúsið og staupa sig á mýrarskólpi úr vasapela á eftir. Þeir höfðu á þeirri stundu öðlast hinn eftirsóknarverða innri frið, eða öllu heldur fryggð, eða hvað það nú heitir.
Hvað um Ásmund Einar varð þegar brölti dagsins í gær var lokið, þann hinn sama og var að sálast svo úr róttækum kommúnisma að hann gekk í Framsóknarflokkinn, má Fjandinn einn vita enda hefir aunginn maður áhuga á þessháttar léttadreng og loddara. Sennilega hefir hann farið með geldingartengur sínar á fund Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns þeirra erinda að freista þess að gelda frú Ingveldi, eiginkonu Kolbeins.
Stjórnin fái frið til að starfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.4.2016 | 22:46
Fyrir sitt leyti bannfærði hann alla þingmenn ríkisstjórnarflokkanna
Nú, það segir sig sjálft að stórnarandstaðan er í rusli við það eitt að vera innan um liðsmenn bófaflokkana á Alþingi. Og enn á eftir að syrta í álinn. Það liggur þegar fyrir að ríkisstjórnarflokkarnir eru löðrandi í tortolískum hroðaviðbjóði og sennilega verður eitthvað af þeim ósköpum dregið fram í dagsljósið á næstu vikum uppúr Panamaskjölunum. Já það kostar sitt að halda uppi bófaflokkum í ríkisstjórn landsins og dýr verður Hafliði allur.
Annars er frú Ingveldur búin að vera mjög reið síðan í vetur þegar lögreglan var kölluð eina helgina að heimili hennar til að stöðva orrustugnýinn sem þar var um hönd hafður. Ekki síst var hún ofsareið vegna þess að barnaverndanefnd var blandað í málið auk þess sem lögreglan hafði á brott með sér kókaínbyrgðir veislugesta sem áttu að duga fram á miðvikudagsmorgun. Frú Ingveldur kannaðist nefnilega ekki við að hafa á sínu framfæri nein Sathansbörn nema ef vera skyldi Brynjar Vondulykt og Óla Apakött, en þeir væru svo sem aungir krakkar nema í hugsun og vafasömu framferði.
Þá hefir síra Baldvin blandað sér í mál ríkisstjórnarinnar með þeim hætti að segja úr predikunarstólnum við fjölmenna guðsþjónustu í helsta musterinu í hans prestakalli, að ráðherradinlarnir ættu að vita það sem kristnir menn, að auðveldara væri úlfalda að skríða í gegnum nálarauga en ríkum manni að fá vist í himmnaríki, ennfremur að ef ríkur maður væri að auki fullur af rangindum, svindli, lygum og öðrum óþokkaskap þá væri honum ekki aðeins neitað um inngöngu í ríki ljóssins heldur færi hann beint í vist hjá Djöflinum í Helvíti. Og fyrir sitt leyti þá bannfærði síra Baldvin alla þingmenn ríkisstjórnarflokkanna í lok predíkunar sinnar og gat þess um leið að tómt mál væri um að tala að slíkt leiðindafólk fengi legstað í þeim kirkjugörðum sem hann hefði yfir að ráða.
Stjórnarandstaðan er í rusli líka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.4.2016 | 20:30
Kjósa köttinn í sekknum
Það gengur víst mikið á í ormagryfju bófaflokkanna tveggja sem enn hafa stjórnarráðið á valdi sínu í mikilli óþökk þorra landsmanna. Nákvæmlega ekkert hefir gerst þótt einhverjum klámhundum hafi tekist að koma böndum á Sigmund litla Dávíð og dregið hann inní Framsóknarfjósið eins og hvurn annan stagkálf og undir sæng gömlu Maddömunnar sem ku ætla að geyma hann undir gumpi sínun þar til um hægist þrátt fyrir að hún sé svo dauðvona að ekkert blasir við henni annað en framsóknarleg hymmnaríkisvist í fjóshaugnum.
Hvort sem kosið verður fyrr eða síðar er hætt við að einhver óæskileg niðurstaða komi uppúr kjörkössunum. Ríkisstjórnarflokkunum er umhugað að vinna tíma til að laga stöðu sína með hefðbundnu lýðskrumi, sjálfshóli og yfirboðum að ógleymdum væntingum þessara aðila til gleymsku og gullfiskaminni kjósenda. Hinumegin borðsins eru fjórir vandræðaflokkar, jafn kapítalískrir í grunninn og bófaflokkarnir, sem berjast við að telja kjósendum trú um að þeir geti framkvæmt kapítalismann betur en kapítalistarnir sjálfir. Það er því ekki um auðugan garð að gresja ef aðeins er litið til flokksendemana sem eiga fulltrúa á Alþingi nú til dags. Að kasta atkvæði sínu á einhvern þessara er kjósa köttinn í sekknum, - kapítalíska sekknum.
Í mínum augum er aðeins einn stjórnmálaflokkur á Íslandi, þótt lítill sé og þingmannslaus, sem gerir sér grein fyrir að engar raunverulegar þjóðskipulagsbreytingar verða nema að kapítalisminn verði settur uppá hillu og geymdur þar eins og sögulegur gripur sem ekki verður notaður meir. Þessi flokkur er Alþýðufylkingin.
Gengið til kosninga 8. október? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.4.2016 | 18:16
Helvíti mikill brandarakall
Ekki átti nokkur maður von á að Bjarni Ben væri sá öndvegisgrínari sem nú hefir komið á daginn. Þegar hann kva uppúr með að ,,ekki yrði búið við óbreytt ástand" var ekki laust við að margir skelltu uppúr, sérstaklega í ljósi þess að það verður jafn óbreytt ástand þótt Sigmundur Dávíð klöngrist úr forsætisraðherrastólnum og fái sér sæti fram í sal. Ríkisstjórnin verður sama auðvaldsskrímslið eftir sem áður og menningarstigið innan bófaflokkanna tveggja í stjórninni mun ekkert breytast. Það hefir nefnilega ekki neitt gerst, ekkert breyttst, sama glorulega arðræningja- og fjárglæfrastjórnin situr áfram í sínu tortólíska syndromi og stjórnar í þágu eigenda sinna, yfirstéttarinnar á Íslandi.
En Sigmundur Dávíð ætlar sem sé að gerast óbreyttur þingmaður aftur og halda áfram að vera formaður Framsóknarflokksins og leggur til að durgurinn Sigurður Ingi verði forsætisráðherra. Svona sjónhverfingar gagnga ef til, en vonandi ekki, í grunnhyggið og hrekklaust fólk. Það má til dæmis ekki gleymast að durgurinn Sigurður Ingi hefir varið tortólískar gjörðir Sigmundar Dávíðs af fullum þunga hingað til, sem bendir til þess að hann hafi nákvæmlega sama siðferðisskilning og sá tortólíski. Það sama á við um afgangin af framsóknarendemunum sem sæti eiga á Alþingi.
Svo tókst formanni Framsóknarflokksins að bæta enn einni rósinni í hnappagatið í dag með því að halda því fram að forseti Íslands hafi logið því uppá hann að hann hafi komið að Bessastöðum í hádeginu til að fá forsetann til að skrifa uppá þingrof og kosningar með honum. Svona giljagaur á að sjálfsögðu ekki erindi í ráðherrastól og ekki heldur að sitja á Alþingi; hann á að láta sér nægja að hokra á Hrafnabjörgum eins og Guðbjartur Jónsson baslaði í Sumarhúsum.
Ekki búið við óbreytt ástand | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.4.2016 | 13:49
Viðstaddir komust við er þeir sáu útganginn á kauða
Það þókti heldur þrifleg sjón, að sjá hann Sigmund okkar hérna Dávíð skjögra eins og bæklaðann hrægamm út frá Bessastöðum í hádeginu, nýflengdann, án þingrofsheimildar og í ofanálag með bullandi vantraust sjálfstæðismanna í öðrum buxnavasanaum. Ekki var laust við að vistaddir kæmust við að horfa uppá útganginn á drengstaulanum; en í dyragáttinni stóð félagi Ólafur Ragnar á svipinn eins og strangur faðir sem nýbúinn er að veita stjúpsyni sínum verðskuldaða ráðningu fyrir óviðurkvæmileg strákapör. Á meðan þetta gerðist stóð Vigdís Hauksdóttir út glugga Alþingishússins (hún hefir staðið þar steinrunnin síðan í gær) starði á styttuna af Jóni, afmynduð í framan af skelfingu og fyrirlitningu.
Fyrr í morgun steðjaði frú Ingveldur á fund Pírata þeirra erinda að leggja drög að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Pírata eftir kosningar. Að sögn var henni vel tekið með sérrýi og Álaborgarákavíti og fór ískyggilega vel á með henni og Helga Hrafni, sem svo sannarlega var sætasti töffarastúfurinn í partýinu. En á Austurvelli fannst horugur snýtuklútur og velti finnandinn lengi vöngum yfir því hvaða óbermi hefi misst þennan hroða úr vasa sínum. Í morgun geriðst það líka, að ein griðkona gömlu Framsóknarmaddömunnar sparkaði í bræðiskasti í eina helstu mjólkurkúna í fjósi maddömunnar og afsakaði sig á eftir með því að henni hefði sýnst þetta vera Jóhannes Kristjánsson blaðasnápur og uppljóstrari.
Enginn veit á þessari stundu hvert Sigmundur Dávíð lét aka sér eftir útreiðina á Bessastöðum. Sumir telja að hann hafi skipað ráðherrabílstjóranum að keyra með sig í loftköstum austur á Seyðisfjörð og fara þar með bílstjórann og ráðherrabílinn um borð í Norrænu og sigla með henni til Leirvíkur á Hjaltlandi og setjast þar að. Aðrir eru frekar á því að nú sé Sigmundur Dávíð sestur upp hjá Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra, framsóknarmanni og vandræðamanni, og séu þeir nú í óðaönn að hugga hvorna annan og sleikja sárin. En á meðan öllu þessu stendur bíður Guðlaugur Þór átekta í Alþingishúsinu eftir rétta augnablikinu til að steypa Bjarna Ben af stóli og skríða sjálfur ofaní kjötketilinn til að orna sér við enn meiri völd.
Veitti ekki heimild til þingrofs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2016 | 09:15
Sigurður Snorrason böðull mættur til leiks?
Ekki get ég að því gert, hvernig sem á því stendur, að mér finnst fyrirsögn þessarar fréttar og yfirbragð greinarinnar hljóma dálítið í líkingu við að nú séu böðlarnir komnir heim og mættir til starfa þannig allt sé til reiðu til þess að aftakan fari fram. Öll gögn í málinu liggja fyrir, meðal annars mótmælaskjal forkólfa framsóknarmanna á Akureyri sem fyrir sitt leyti krefjast pólitísks dauðadóms og aftöku formanns Framsóknarflokksins. Það er ekki nema von að gamla Framsóknarmaddaman liggi þessa stundina fyrir dauðanum og glundroði sé brostinn á á skagfirska efnahagssvæðinu, Ólafur útvegsbóndi og Siggi bánkustjóri í steininum og yfir öllu þessi voki Sigurður Snorrason böðull í líki Bjarna Ben og félaga Ólafs Ragnars Grímssonar.
Síðan lokaaðförin að Sigmundi Dávíð hófst síðastliðið sunnudagskvöld hefir Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og formaður skuggasveinadeildar Framsóknar verið gjörsamlega lamaður og fótavistarlaus, bæði vegna ógurlegs ölvunarástands sem og hamslausrar hræðslu við að nú sé velmektardögum hans og Framsóknarflokksins lokið fyrir fullt og allt. Harmagrátur Kolbeins og bagalegt heilsufar hefir að sjálfsögðu níst vini hans og vandamenn innað innstu hjartarótum, en þó hafa óþokkar á borð við Brynjar Vondulykt og Óla Apakött hlegið að volæði Kolbeins og sagt hann hafa gott af dálítilli niðursveiflu, það lækki kanske gorgeirinn í honum og dempi niður í honum þennan rosalega einkennilega kynferðislega pervertisma og ofsa sem einkennt hefir Kolbein.
Hinsvegar stormaði eiginkona Kolbeins Kolbeinssonar, frú Ingveldur, uppí Valhöll í gær og hélt þar innblásið erindi um nauðsyn þess að eyða ,,andskotans framsóknaróværunni" eins og hún orðaði það, og segja formanni Framsóknarflokksins að fara til Fjandans; ennfremur að henni stæði algjörlega á sama hvort Kolbeinn eiginmaður hennar legðist líka í kör eins og Framsóknarmaddamann, en það skyldi sá góði maður vita að ekki flögraði að henni að bera brennivín, kannabis og amfetamín í hann svo hann gæti haldið áfram að skíta í buxurnar og áreyta hana sjálfa og vini hennar sem koma í heimsókn með vofeiflegum perratilburðum.
Bjarni og Ólafur komnir heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2016 | 18:48
Kondor tortúlus beint í flasið á æstum múgnum
Það var víst heldur betur vængjasláttur á forsætisráðherra þegar hann tróð sér hlaunagleyður úr þingsal og burt úr Alþingishúsinu á æðisgengnum flótta. Að sögn sjónarvotta var þetta ekki mildur mildur og mjúkur vængjasláttur eins og hjá skógarþröstum eða heiðlóum heldur þungur og áfergjulegur, nákvæmlega eins og þegar hrægammur flögrar um. Einkum þókti hann bera sig eins og gammategundin kondor tortolus, eins og hún heitir uppá latnesku, þegar sá fugl er að flýta sér í æti. Er útúr þinghúsinu kom lenti kondor tortolus beint í flasinu á fleiri þúsund mótmælendum sem vilja vængstýfa ráðherrann og hvarf hann á örskotsstund inní manngrúann og hefir ekki sést síðan.
En útí USA missti Bjarni af flugi heim og eru menn hræddir um að hann muni missa af öllum flugferðum og skipaferðum til Íslands að minnsta kosti næstu tvo áratugina. En það er auðvitað allt í lagi og gleðiefni fyrir hans hönd svo lengi sem Bandaríkjamenn taka hann ekki sem ólöglegan innflytjenda og senda hann einhvern fjandann útí buskann. Vér viljum nefnilega Bjarna heim en látum oss samt í léttu rúmi liggja þótt hann verði veðurtepptur í USA nokkuð lengi.
Ekki var Sigmundur Dávíð stokkinn úr þinghúsinu með sína einka framsóknarfjósafýlu en þingmenn ríkisstjórnarinnar hurfu eins og snæljós útí veður og vind. Eftir sátu stjórnarandstöðuþingmennirnir eins og kokkálaðir kapítalistar í yxnakasti og jusu svívirðingum yfir tóman þingsal; einkum var tilfinnanlegur fýlusvipur kvennþingmönnum andstöðunnar með mikilli skeifu og glamrandi nefmælgi. En Heimdallur, móðurflokkur Pírata, er hættur að styðja Sigmund Dávíð sem forsætisráðherra og segja að hann megi til fjandans fara fyrir þeim. Af því tilefni hefir öllum fundum Alþingis verið aflýst á morgun, og ef til vill verður ekki fundað þar meir. Þá bar til tíðinda í gærkvöldi að Máría Borgargagn myrti sjónvarpstækið sitt með sleggju þegar Jóhannes blaðamaður birtist eins og skrattinn úr sauðarleggnum í miðju viðtali erlends fjölmiðlamanns og Sigmundar Dávíðs og barnaði samtal þeirra á sérlega ósmekklegan hátt.
Sigmundur yfirgaf þingsalinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 5
- Sl. sólarhring: 160
- Sl. viku: 1245
- Frá upphafi: 1542505
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 1101
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007