Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2018
30.1.2018 | 18:53
Þjófafélag byggt á þjófum og þjófnuðum
Hverskonar helvítis kjaftæði er þetta. Veit þetta fólk virkilega ekki að við búum í þjófafélagi og meint velferð þar af leiðandi byggð á þjófnaði og af þjófum? Ef þingmenn gera sér ekki grein fyrir svo einfaldri staðreynd þá ættu þeir að fá sér annað gera.
Velferð byggð á þjófnaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.1.2018 | 18:16
Að vola utan í Steingrími J.
Hvaða hvaða, er þingkonan H. Mogensen að kjökra utan í Steingrím J. yfir því að hún sé búin á því á kvöldin? Það ætti að vera auðvelt að fullvissa þingkonuna um að betra væri fyrir hana að beina grátstöfum sínum að ljósastaurum eða sorptunnum en Steingrími J. því ljósastaurar og sorptunnur eru að öllu jöfnu mikið hjartahlýrri en þessi Steingrímur J. En ef tilfellið er að þingkonan er sé sífellt í rugli með dagskrá þingsins, eins og ringlaður kálfur úti á túni, þá væri ráð fyrir hana að leita til Óla góða, þingmanns VG, en hann er öldrunarlæknir að mennt.
Annars gæti maður best trúað, að Steingrímur J. haldi dagskrá þingsins leyndri fyrir þingmönnum og skelli málum á dagskrá eftir eigin hentisemi og ekki í samráði fyrir neinn nema sjálfan sig. Allt stjórnarliðið er skíthrætt við téðan Steingrím J. og fyrr mundu gögl VG hlaupa fyrir björg en gera eitthvað sem gæti móðgað þetta hroðalega grýlumenni.
En varðandi frú H. Mogensen, þá er frekar hætt við að ef hún er búin á því á kvöldin þá sé hún líka búin á því á morgnana og daginn; og ummæli hennar benda einmitt til að svo sé. En að láta sér fljúga í hug að vola utan í Steingrími J. út af þessu ,,búináþví" er svo absúrd að aungin venjuleg orð ná að lýsa öðru eins. Sennilega þarf hún að leita sér hvíldar, kanski á Náttúrleysingjahælinu í Hveragerði, kanski á vitaskipinu Árvakri, kanski á Tómstundaheimili ríkisins að Hrakhólum í Köldukvísl. Kanski.
Ég er bara búin á því á kvöldin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2018 | 14:28
Hr. Bessason, ljósritið og minnisvarðinn
Nú liggur fyrir að krónprins elítunnar í Eflingu er að minnsta kosti jafn syfjaður og fráfarandi verkalýðsforstjóri félagsins. Sigurður Bessason var bein framlegnging af loddaranum Halldóri Björnssyni og nú ætlar elítan að bjóða verkafólki í Reykjavík uppá að kjósa grútsyfjað ljósrit af Sigurði í staðinn fyrir Sigurð og fara þá menn að bera saman bækur sínar um hvor sé hugsjónasljórri og minni verkalýðssinni Sigurður eða ljósritið, eða hvort ljósritið sé eftir vill fremra Sigurði í samvinnusókn við auðvaldið.
Hér áður og fyrr lá leið stjórnarmanna í Dagsbrún, undanfara Eflingar, í gegnum Sósíalistaflokkinn og síðar gegnum Alþýðubandalagið meðan það var sósíalískur flokkur. Þetta á Sigurðu Bessasyni að vera kunnugt, enda man ég ekki betur en hann væri á sínum tíma í hinu sósíalíska Alþýðubandalagi. En undir síðustu aldamót hnignaði verkalýðshreyfingunni mjög án þess að nokkur rök væru fyrir slíku. Slepjukrataflokkurinn Samfylking tók almenn verkalýðshreyfinguna að mestu yfir og gekk með hana í björg frjálshyggju, auðvalds og ESB-endaleysu. Stórir gerendur í hnignun og úrkynjun verkalýðshreyfingarinnar eru kauðar á borð við Sigurð Bessason, sem aldrei hefur getað nuddað auðvaldsstýrurnar úr augunum, Gylfa Arnbjörnsson, Björn framsóknarmann Snæbjörnsson á Akureyri, sem er víst formaður Stafsgreinasambandisins nú um stundir og Stjána nokkurn, sem er mikill verkalýðsforstjóri í Keflavík.
Nú stendur sem sé til að endurnýja verkalýðshreyfinguna, hressa upp á hana hvað lífræna róttækni snertir, og þá verða gömlu stéttasamvinnueðlurnar að hafa sig á brott. Best væri að vinir Gylfa og hr. Bessasonar í atvinnurekendasamtökunum skjóti skjólshúsi yfir þessa kunningja sína og ali önn fyrir þeim. En fyrir utan verkalýðshöllina, þar sem ASÍ og Efling hafa aðsetur, væri við hæfi að reisa dálítinn minnisvarða sem á stæði: ,,Ráðlegt er að hafa í hakk hagfræðinga og skítapakk."
Styðja fulltrúa sem rugga ekki bátnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2018 | 15:17
Skriðan er blessunarlega farin af stað ...
Ég er ansi hræddur um að kjör verkafólks hafi um langan aldur ekki verið verri en einmitt nú í miðju góðæri braskarastéttanna, auðvaldsins, Bjarna Ben og Katrínar Jakobs. Það sem einkennilegast er, er sú nöturlega staðreynd að verkalýðsforstjórarnir hjá ASÍ og Starfsgreinasambandinu virðast ekki hafa hugmynd um hver staðan er hjá verkafólki, já og fleiri stéttum. Eða vita endemin ef til vill hvernig staðan er, en kjósa fremur að öskra upp í eyrun á fólki hvort það sjái ekki hvað það hafi það gott, hvað launin hafi nú hækkar rausnarlega,- að ekki sé minnst á kaupmáttinn, sem fari beinlínis með himinskautum í góðærinu mikla. - Sjáið ekki veisluna, fíflin ukkar!
Og ekki kemur á óvart, að vel gangi hjá Sólveigu Önnu Jónsdóttur að safna undirskriftum vegna framboðs síns í Eflingu. Þrátt fyrir allt, þá held ég að verkafólk, ekki aðeins á höfuðborgarsvæðinu heldur út um allt land, sé búið að bíða drykklanga stund eftir að einhver, eða einhverjir, með bein í nefinu lýstu sig fúsa til að hafa forgöngu um að velta forustu auðvaldsins í verkalýðssamtökunum úr sessi og hefja verkalýðssamtökin aftur til vegs og virðingar, og róttækni, í samfélaginu.
Skriðan er farin af stað á höguðborgarsvæðinu og nú verður að koma hlutunum á skrið í hinum stóru félögunum innan Starfgreinasambandsins.
Skammist sín ekki fyrir léleg kjör | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2018 | 11:28
Ætli hafi ekki farið kjánahrollur um flesta
Það er ekki nema von að fari kjánahrollur um Ragnar Þór formann VG við að lesa glamrið sem Gylfi ASÍ-forseti lætur hafa eftir sér í fjölmiðlum; Ég hugsa að mörgum hafi verið líkt farið og Ragnari, ekki síst þeim sem hafa einhverntíma hafa nasasjón af makki og rottugangi ríkjandi afla í verkalýðsforustunni. Á undanförnum árum hefur andúð fólks á valdsmönnum ASÍ og Starfsgreinasambandsins verið að þyngjast jafnt og þétt, uns svo er komið að launafólki þykir tími til að láta reyna á þessa forustusauði, sem meta vináttu atvinnurekenda og hægrisinnaðra stjórnvalda sig meira skipta en stuðning fátæks og illa lauðaðs.
Við sem vitum, að skrifstofusjakalar ASÍ og Starfsgreinasambandsins hafa fyrir nokkuð löngu tapað tiltrú þeirra sem látnir eru borga þessum köllum margföld verkamannalaun, viljum auðvitað bjarga samtökum verkafólks undan þessum auðvaldsvinum og lítilmennum og frelsa verkalýðshreyfinguna undan þeim á lýðræðislegan hátt.
Verkafólk á Íslandi, og raunar Íslendingar allir, á betra skilið en að dröslast með verkalýðsforustu, sem er svo keimlík atvinnurekendaforustunni að vart verður greint þar á milli. Og fyrir mér má sjálfur Pokurinn hirða þá vesalinga, sem gert hafa sér að leik fyrir há laun og einhver völd, að gera lítið úr fátæku fólki, lítilsvirða samtök þess, en hafa samt lyst á að láta þessa sömu fátæklinga greiða sér ráðherralaun.
Kjánahrollur fór um Ragnar Þór | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2018 | 08:57
Sótt að sjakalakontór ASÍ
Gylfi grallari og æðsti skrifstofusjakali ASÍ veit ósköp vel, að ef hann og hans kammeratar á komtórnum missa stuðnig Eflingar, auk VR, fer að þrengja allmikið að þeim. Og ef verkafólki auðnast að ná aftur stórum félögum á borð við Einingu í Eyjafirði, Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur er auðvaldsleik Gylfa með atvinnurekendaforustunni og stjónvöldum lokið. Þó að Gylfi sé þessi endemis sjakali þegar hann er að hlaupa kringum borðin í ,,alþýðuhöll" ASÍ þá veit hann manna best, að afskipti manna af kosningum í öðrum félögum er ekkert nýtt. Það er hinsvegar nokkuð framandi fyrir atvinnurekendavinina í ASÍ, að formaður VG lýsi beint yfir stuðningi við mótframboð gegn ríkjandi valdhöfum í Eflingu; slóttugir skrifstofusjakalar eru vanir að hafa sitt fram með baktjaldamakki, undirferli og ísmeygilegri illmælgi um menn og málefni, sem falla ekki nógu þægilega að hinu siðlausa auðvaldssálarlífi þeirra.
Afskipti formanns VR fordæmalaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2018 | 20:56
Framhleypnin ríður ekki við einteyming
Öhh-höhh-höhh-höhh, nú bíðum vér í ofvæni eftir hver viðbrögð Katrínar Jakobsdóttur verða þegar einhver forsætisráðherragarmurinn tilkynnir um að hann sé með skitu. Og þar sem Katrín er framhleypin og doldill bullari, þá má vel vænta þess þegar Margrét Þórhildur danadrottning fær bullandi iðrakveisu, að Katrín rjúki til og sendi Margréti kveðju og segi henni sögur af eigin innyflakvefsóttum og þeim salernisferðum sem þessháttar kvillum heyra til. Ekki er hægt að gera ráð fyrir því að forsætisráðherra Nýja-Sjálands hafi nokkurn tíma heyrst minnst á Kattarinu Jakkobbsdógttur from Iceland og þar af leiðandi hefir eflaust sett ákafan hlátur að frú Jacindu Ardern þega hún las hið kjánalega skeyti Katrínar yfir.
Nær væri oss að kanna hvurnig á því stendur að frú Ardern á Nýja-Sjálandi á von á barni. Það er aungvu líkara en hún eigi jafnvel fremur von á einhverju öðru, til dæmis hvolpi eður kiðlingi. Finnst yður ekki undarlegt ef frú Ardern væri hreint ekki hissa þótt hún fengi jarmandi kiðling í fangið en ekki barn? Jú, það er allt dularfullt við þetta og minnir á að mikill er máttur Andskotans -, líka meðal andfætlinga. En vér verðum að vona hið besta, en vera þó undirbúin hinu versta.
Fyrir tíu árum eða svo, var gerður harður aðsúgur að frú Ingveldi vegna barnaleysis hennar. Menn og konur notuðu ljót orð um þessa fágætu konu og báru henni á brýn að hafa borið börn sín út um leið og þau kómu í heiminn. Annað fólk, ekki skár innréttað, fullyrti að frú Ingveldur væri steingeld eins og slægður þorskur fyrir utan að aunginn maður í víðri veröld hefði áhuga á að gera henni krakka. Um síðir komst frú Ingveldur á snoðir um þann orðróm sem andstyggilegir einstaklingar höfði klínt á hana án þess að láta sér detta í hug huganlegar afleiðingar. Enda urðu flestir, sem fengu frú Ingveldi í heimsókn dagana þar á eftir, hálfundrandi öllum þeim ósköpum sem dundu yfir. Já, frú Ingveldur hafði þannig endaskipti á öllum þeim ókindum, sem borið höfðu hana óhróðri, að vissulega hefir aunginn, sem enn er á lífi, gleymt þeim heimsóknum. Og fjórar ókindur anduðust sama dag og frú Ingveldur heimsókti þær; og í dánarvottorði þeirra allra stóðu þessi orð, undirrituð af lækni: ,,Dánarorsök hálsbrot eftir að hafa kastað sér út um glugga." Nema að í vottorði einnar stóð: ,,Féll af reiðhjóli og dauðrotaðist."
Katrín sendir ófrískum forsætisráðherra góðar kveðjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2018 | 17:48
Nú er dauðafæri fyrir verkafólk
Það er löngu kominn tími til að endurreisa verkalýðshreyfinguna og gera hana að því stéttarbaráttutæki fólksins sem hún var á fyrstu áratugum sínum á Íslandi. Síðustu þrjá áratugina hefur leið hinnar fræknu hreyfingar legið hratt niður á við, en að sama skapi hefur forustusveitin nuddað sér ákafar upp við atvinnurekendaauðvaldið, já og auðvaldið yfirleitt, svo erfitt er orðið að greina á milli hvort þessi eða hinn verkalýðsfrömuðurinn er að tala fyrir samtök atvinnurekenda eða ekki.
Nú er eins og eitthvað sé að rofa til í samtökum verkalýðsins, fólk sé loks að vakna eftir áratuga þyrnirósarsvefn. Eða hvað? Er meint líf í dauðri hreyfingu aðeins bóla, mýrarljós, óskhyggja hinna fáu? Að minnsta kosti er eitthvað meir en lítið einkennilegt við, að háværustu talsmenn innanbúðarbyltingar í verkalýðshreyfingunni skuli vera með um og yfir eina miljón á mánuði í tekjur. Er eitthvað eðlilegt við að formaður í félagi láglaunafólk sé með fjór- eða fimmföld lágmarkslaun semkvæmt þeim töxtum sem þessir verkalýðsgullrassar hafa skrifað upp á fyrir félagsmenn sína? Nei, satt að segja eru svona karlar ekki beint trúverðugir; um þá má segja að þeir séu ógeðfelldir og andlegir auðnuleysingjar í þokkabót.
Ég hlustaði á Solveigu Jónsdóttur í Silfri Egils í morgun, en mér skilst að hún sé á leið í formansframboð hjá Eflingu. Miðað við það sem hún sagði þar, þá hefur hún alla burði til að verða frábær verkalýðsformaður, sem leitt getur nauðsynlega byltingu og endurreisn innan verkalýðshreyfingarinnar. En til að ná undirtökunum í verkalýðshreyfingunni, þarf fólk af sama tagi og Solveig til að taka hin stóru félögin innan Starfsgreinasambandsins, þ.e. Einingu í Eyjafirði, Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs og sjómannafélag Keflavíkur. Ef að það tekst, er gamla, úrkynjaða samtryggingarmafían í samtökum verkafólks fallin og eftirleikurinn þar af leiðandi auðveldur.
Vonar að byltingin haldi áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.1.2018 | 12:44
Hverslags skepnur eru það ...
Hverslags skepnur eru það að upplagi sem hafa geð og nennu í sér til að rífa sig upp fyrir allar aldir á laugardagsmorgni til að sitja fund með íhaldshækjunum í VG? Það hlýtur að útheimta afar sljóar sálargáfur, að fá ekki séð hve hlægilegt er að horfa á hokur flokkseigenda VG hjáleigukotinu í túnjaðri Höfuðbólsins, Sjálfstæðisflokkins, helstu uppsprettu ójafnaðar, yfirgangs og ómennsku í samfélaginu. Og dettur virkilega einhverjum í hug að taka flokksræxni á borð við VG, sem upphaflega var stofnaður til að verða flokkur vinstrisósíalista, alvarlega eftir að í ljós kom, að æðsta markmið þeirra sem eiga þennan umskiptingaflokk var allan tímann að komast í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, þessu siðspillta og glæpsamlega höfuðvígi auðvaldsins á Íslandi? Nei, það eru aðeins fífl sem taka ógeð eins og VG alvarlega og enn meiri fífl sem rífa sig upp á laugardagsmorgnum til að mæta á fundi hjá þessu skrímslasamkvæmi.
Í tvígang hefi ég nýlega heyrt útvarpsmenn segja við Katrínu Jakobsdóttur í viðtalsþáttum að VG væri sósíalískur flokkur án þess að Katrín hreyfði nokkrum andmælum við þessum öfugmælum. Ef Katrín hefur með þögn sinn verið að samþykkjað að VG væri sósíalistaflokkur er hún ákaflega óheiðarlegur stjórnmálamaður, ef hægt er að nota orðið stjórnmálamaður yfir hana almennt, eða hún er fattlaus og sálarsljó með afbrigðum. Ég hallast frekar að því að þessi ,,formaður" og gluggaskraut Steingríms, Álfheiðar og Svavarsfjölskyldunnar, sé óheiðarlegur póltíkus, mjög óheiðarlegur, enda uppalin í handarkrikanum á Steingrími J. Sigfússyni, sem þekktastur er fyrir að vera einhver mesti pólitískur óheilindamaður sem uppi hefir verið á þessari öld og hinni síðustu.
Það verður mikill dagur í sögu íslenskrar þjóðar þegar og ef henni tekst að losa sig við þá pólitísku óöld og ruglandi, sem geysað hefir alla þessa öld, með handónýta þingmenn, gjörspillta lukkuriddara, loddara og andlega uppskafninga. Það er engu líkara en orðið hafi einhverkonar ketilsprengin í pósthólfi 101 Reykjavík, sem þyrlað hafi trénuðum kaffihúsaspekingum og heilþvegnum peningagéðsjúklingum út um öll foldarból. Og í sameiningu hafi þessum óþjóðalýð tekist að eyðileggja íslenskt samfélag; það er nánast enginn hlutur samfélagsins í lagi eftir helreið þessara sjálfhverfu og sjálfumglöðu vesalinga. Það verður verk að vinna á Íslandi þegar úrkynjunar- og undanrennuvíman rennur af þjóðinni og stjórnmálum hennar og farið verður að vinda ofan af hroðanum, sem haldið hefir samfélaginu í helgreipum frjálshyggjuóra og ofsagræðgi, en það gerist ekki meðan flokksafmán sem kallast ,,Vinstrihreyfing" telur það verkefni sitt að vera hækja Sjálfstæðisflokksins og hjáleiguhokrari á hjáleigukoti auðvaldsins.
Nógu margir sem tala um aðgreiningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2018 | 15:34
Hvað mundu fíflin á Íslandi gjöra ef Tromp kæmi?
Hva, halda þessi helvíti þarna í Sviss, að Dónaldur Tromp bandaríkjaforseti sé belja, eða hvað, eða einhverskonar sauðnaut? Þessi fífl baula eins og nautgripir á aðra nautgripi þegar merkasti forseti Bandaríkjanna, fyrr og síðar, kemur að heimsækja þá. Þeir mega þakka fyrir ef Tromp sigar ekki lofther Bandaríkjanna, US Army, á fáeinar svissneskar borgir lætur leggja þær í rúst.
Og hvað mundu fíflin á Íslandi gjöra ef Tromp kæmi hingað til okkar í heimsókn? Mundu þau baula og baula þar til augun færu út úr tóftunum á þeim? Að minnsta kosti hluti Íslendinga eru ekki síðri beljur og sauðnaut en þessir aumingjar í Sviss, sem gjörðu landi sínu og þjóð til skammar með gauli á sjálfan forseta Bandaríkjanna. En ég er líka viss um að Tromp mundi verða í essinu sín ef hann kæmi til Íslands, því hér eru blauðir fjölmiðlar, sem mundu skíta í sig á slaginu, þegar karlinn færi að skamma þá fyrir falskar fréttir og illgjarna umfjöllun um menn og málefni. Sjáið þið ekki íslenska fjölmiðlunga fela sig eins og melrakka ofan í holum og undir moldarbörðum þegar Tromp kæmi?
Einusinni bauluðu nokkrir skítugir götustrákar með arafat-trefla á efir okkar góða Brynjari Vondulykt. Þetta var í Austurstræti um miðjan dag. Brynjar snarsnöri sér við og gómaði götustrákana og kyrkti þá næstum í treflum sínum. Síðan hafa þessir drengir hvorki komið upp hósta né stunu, og allra síst ef þeir hafa grum um Vondulyktina einhversstaðar nær. Já, Brynjar Vondalykt er snarráður maður og líkur Tromp í sjón og raun, einkum þó raun. Og hvað haldið þið að baulararnir í Sviss hefðu gjört ef Tromp hefði sett undir sig hausinn og vaðið að þeim eins og nashyrningur? Já, alveg rétt esskkka, þeir hefðu lítið gert nema í buxurnar, því það er það eina sem slík heigulssauðnaut þora þegar á hólminn er komið.
Baulað á Donald Trump í Davos | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007